fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Joe Biden

Biden er búinn að fá skýrslu um uppruna kórónuveirunnar og Kína – En það vantar eitt í hana

Biden er búinn að fá skýrslu um uppruna kórónuveirunnar og Kína – En það vantar eitt í hana

Pressan
26.08.2021

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, fékk fyrr í vikunni skýrslu frá bandarískum leyniþjónustustofnunum um uppruna kórónuveirunnar sem nú herjar á heimsbyggðina. Hann hafði fyrirskipað leyniþjónustustofnunum landsins að rannsaka málið til að fá skorið úr um hvort veiran hafi átt upptök sín úti í náttúrunni eða hvort hún hafi sloppið út af rannsóknarstofu í Wuhan. Skýrslan er enn sem komið Lesa meira

Þetta kalla bandamenn Bandaríkjanna Joe Biden

Þetta kalla bandamenn Bandaríkjanna Joe Biden

Pressan
24.08.2021

Óhætt er að segja að Joe Biden, Bandaríkjaforseti, glími nú við stærstu pólitísku krísu stjórnmálaferils síns sem er nú ansi langur, nær yfir marga áratugi. Ástæðan er staðan í Afganistan í kjölfar ákvörðunar hans um að ljúka brottflutningi Bandaríkjahers frá landinu fyrir lok ágúst. Ákvörðun hans hefur verið sögð vera „rugl“. Meðal þeirra sem hafa gagnrýnt hann Lesa meira

Ótrúlegt bréf frá Osama bin Laden vekur athygli – Sá hann vandræði Biden fyrir?

Ótrúlegt bréf frá Osama bin Laden vekur athygli – Sá hann vandræði Biden fyrir?

Pressan
24.08.2021

Bréf frá Osama bin Laden, stofnanda hryðjuverkasamtakanna al-Kaída, hefur að undanförnu vakið töluverða athygli en það var skrifað 2010. Þá hét forseti Bandaríkjanna Barack Obama og varaforseti hans var Joe Biden sem nú er forseti Bandaríkjanna. Bin Laden var heilinn á bak við hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin í september 2001. Það liggur beint við að halda að bin Laden hafi viljað Biden feigan á þessum tíma og hefði ekki hikað við að láta Lesa meira

Biden var fastur fyrir í ávarpi til þjóðarinnar – „Ég stend algjörlega við ákvörðun mína“

Biden var fastur fyrir í ávarpi til þjóðarinnar – „Ég stend algjörlega við ákvörðun mína“

Pressan
17.08.2021

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, ávarpaði bandarísku þjóðina í gærkvöldi varðandi ástandið í Afganistan í kjölfar þess að hann kallaði bandaríska herliðið í landinu heim. Hann viðurkenndi að staða mála í landinu væri óljós en varði um leið ákvörðun sína um að kalla þá 3.500 hermenn, sem enn voru í landinu, heim. Biden hefur sætt vaxandi gagnrýni fyrir að Lesa meira

Mótmælin á Kúbu valda Joe Biden vanda

Mótmælin á Kúbu valda Joe Biden vanda

Pressan
15.07.2021

Nýleg mótmæli gegn kommúnistastjórninni á Kúbu valda Joe Biden, Bandaríkjaforseta, og stjórn hans ákveðnum vanda því stóra spurningin er hvað sé í raun hægt að gera til að styðja mótmælendur og almenning á Kúbu. Mótmæli brutust út í borgum og bæjum á Kúbu á sunnudaginn þar sem fólk mótmælti slæmum lífskjörum, matarskorti, lyfjaskorti og slælegum viðbrögðum yfirvalda Lesa meira

Biden nærri því að lýsa yfir sigri í baráttunni við kórónuveiruna – Deltaafbrigðið ógnar

Biden nærri því að lýsa yfir sigri í baráttunni við kórónuveiruna – Deltaafbrigðið ógnar

Pressan
05.07.2021

Joe Biden tók á móti um 1.000 gestum í Hvíta húsinu í gær í tilefni af þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. Þetta er í fyrsta sinn frá því að hann tók við embætti sem hann opnar dyr embættisbústaðarins fyrir gestum. Biden sagði að Bandaríkin væru á réttri leið í baráttunni við heimsfaraldur kórónuveirunnar en lagði um leið áherslu á að sigur sé Lesa meira

Biden segir að Íran fái ekki að koma sér upp kjarnorkuvopnum á meðan hann er forseti

Biden segir að Íran fái ekki að koma sér upp kjarnorkuvopnum á meðan hann er forseti

Pressan
30.06.2021

Svo lengi sem Joe Biden er forseti Bandaríkjanna mun Íran ekki fá að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Þetta sagði Biden á mánudaginn þegar fundur hans og Reuven Rivlin, forseta Ísraels, var að hefjast. Nú standa yfir viðræður á milli Bandaríkjanna, Íran og fleiri ríkja um kjarnorkusamninginn við Íran en Biden hefur lýst sig reiðubúinn til að koma Bandaríkjunum aftur inn í samninginn en Donald Trump, Lesa meira

Biden ætlar að segja Pútín hvar mörkin liggja og heitir því að aðstoða Úkraínu

Biden ætlar að segja Pútín hvar mörkin liggja og heitir því að aðstoða Úkraínu

Pressan
15.06.2021

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, fundar með Vladimír Pútín, Rússlandsforseta, í Genf í Sviss á morgun. Á fundi þeirra ætlar Biden að gera Pútín grein fyrir hvar Bandaríkin draga mörkin varðandi eitt og annað í alþjóðamálum. Hann heitir því einnig að Bandaríkin muni verja fullveldi Úkraínu fyrir ágangi Rússa. Þetta sagði Biden í gær að loknum leiðtogafundi NATO í Brussel. Á fréttamannfundi sagði hann að Bandaríkin vildu ekki standa í deilum við Rússa Lesa meira

Joe Biden kominn til Bretlands – Fyrsta utanlandsferð hans eftir embættistökuna

Joe Biden kominn til Bretlands – Fyrsta utanlandsferð hans eftir embættistökuna

Pressan
10.06.2021

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, kom til Bretlands í gærkvöldi en þá lenti Air Force One, flugvél forsetaembættisins, á herflugvellinum Mildenhall í Suffolk. Þetta er fyrsta utanlandsferð Biden eftir að hann tók við embætti forseta en hann mun heimsækja nokkur Evrópuríki. Fjölmargir starfsmenn bandaríska flughersins og fjölskyldur þeirra biðu forsetans í flugskýli þar sem hann ávarpaði fólki. Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af