Japönsk fyrirtæki vilja ekki að Ólympíuleikarnir fari fram í Tókýó í sumar
PressanNiðurstöður könnunar, sem var gerð á meðal stjórnenda rúmlega 11.000 japanskra fyrirtækja, sýna að meirihluti þeirra er á móti því að Ólympíuleikarnir fari fram í Tókýó í sumar. Flestir vilja aflýsa leikunum eða fresta þeim aftur vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Það var hugveitan Tokyo Shoko Research sem gerði könnunina. 56% aðspurðra sögðust telja að annað hvort eigi að aflýsa leikunum eða fresta Lesa meira
Bjartsýni um að Ólympíuleikarnir í Tókýó fari fram á þessu ári
PressanStefnt er að því að Ólympíuleikarnir fari fram í Tókýó í sumar en þeim var frestað á síðasta ári vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. En það eru ekki allir á því að leikarnir eigi að fara fram og má finna andstöðu við það meðal almennings í Japan, meðal íþróttamanna, sjálfboðaliða og fyrirtækja sem styrkja leikana. En forsvarsmenn leikanna stefna Lesa meira
Geymdi látna móður sína í frysti í 10 ár
PressanAf ótta við að missa leiguíbúð sína geymdi japönsk kona líkið af móður sinni í frysti í íbúðinni í 10 ár. Konan, sem er nú 48 ára, hafði búið með móður sinni. Þegar hún fann móður sína látna fyrir 10 árum faldi hún líkið af ótta við að missa íbúðina sem þær leigðu. Japanskir fjölmiðlar Lesa meira
Útlendingar fá ekki að koma til Japan vegna nýja kórónuveiruafbrigðisins
PressanJapönsk yfirvöld hafa bannað öllum útlendingum að koma til landsins en bannið tók gildi í gær, mánudag. Það gildir til loka janúar. Ástæðan fyrir því er að nokkur smit af hinu nýja og stökkbreytta afbrigði kórónuveirunnar hafa greinst í landinu. Japanskir ríkisborgarar og útlendingar búsettir í landinu mega áfram koma þangað en verða að fara Lesa meira
Hér borðar fólk skyndibita á aðfangadagskvöld – „Ég held nánast að það sé bara í eðli okkar“
PressanJólamaturinn hefur valdið fjölskyldudeilum, ofáti og vanlíðan. Óháð því hvað er á boðstólum þá er jólamaturinn líklegast ein vinsælasta og umtalaðasta máltíð ársins. Þetta er einnig máltíðin sem á að vera nákvæmlega eins og hún var á síðasta ári og öll árin þar á undan. En hvað ef það væri ekki hangikjöt, svínakjöt, kalkúnn, rjúpur eða Lesa meira
Fleiri féllu fyrir eigin hendi í október í Japan en af völdum COVID-19 frá upphafi
PressanJapanskir sérfræðingar vara nú við andlegri vanlíðunarkreppu vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Aðvörunin kemur í tengslum við fjölgun sjálfsvíga á undanförnum mánuðum. Í október tóku 2.153 eigið líf en þetta er mesti fjöldi sjálfsvíga á einum mánuði síðan 2015. Til samanburðar má geta að 2.057 hafa látist af völdum COVID-19 síðan heimsfaraldurinn skall á í byrjun árs. Yfirvöld Lesa meira
Ástralía, Indland, Bandaríkin og Japan taka þátt í stórri heræfingu á Indlandshafi
PressanÍ næsta mánuði fer stór heræfing Ástrala, Indverja, Japana og Bandaríkjamanna fram á Indlandshafi. Markmiðið er að styrkja hernaðarsamstarf ríkjanna, ekki síst í ljósi erfiðra samskipta þeirra við Kínverja þessi misserin og aukinnar spennu í þeim samskiptum. Ríkin hafa staðið fyrir svipuðum heræfingum árlega síðan 1992 en umfang þeirra hefur farið vaxandi á síðustu árum. Lesa meira
Bandaríkin vilja mynda bandalag í Asíu gegn Kínverjum
PressanMike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór nýlega í stutta heimsókn til Japan. Þar fundaði hann með forsætisráðherra Japan auk utanríkisráðherrum Japan, Ástralíu og Indlands. Markmiðið var að ræða málefni Kína og dró Pompeo enga dul á að Bandaríkin vilja mynda bandalag með Ástralíu, Japan og Indlandi gegn Kína. Ríkin fjögur eiga nú þegar í samstarfi, Quad-samstarfinu, en Pompeo vill víkka það út Lesa meira
29 ára raðmorðingi fann fórnarlömb sín á Twitter – „Þetta er allt hárrétt“
PressanTakahiro Shiraishi, 29 ára, hefur játað að hafa myrt níu manns. Hann hefur verið nefndur „Twitter-morðinginn“ því hann fann fórnarlömbin á Twitter. Mál hans er nú fyrir dómi en verjandi hans heldur því fram að fórnarlömbin hafi öll viljað deyja og að Shiraishi hafi drepið þau með þeirra samþykki. Verjandinn telur að þetta eigi að virða skjólstæðingi hans til Lesa meira
Shinzo Abe segir af sér sem forsætisráðherra Japan
PressanAð undanförnu hafa verið vangaveltur og orðrómar í gangi í Japan varðandi heilsufar Shinzo Abe, forsætisráðherra, og hafa margir hafa áhyggjur af að heilsufar hans sé ekki alveg upp á það besta. En Abe mun að sögn japanska ríkisútvarpsins NHK segja af sér embætti í dag og það sama segja aðrir japanskir fjölmiðlar. Abe hefur boðað til fréttamannafundar í kvöld að japönskum tíma Lesa meira