Vilja réttlæti fyrir bjarnarhúninn sem var skotinn á Hornströndum – Leti og níska að skjóta ísbirni
FréttirErlendir dýraverndunarsinnar hafa stofnað undirskriftalista vegna dráps ísbjarnarhúnsins á Hornströndum. Sagt er að dráp ísbjarna sé aðeins gert til þess að spara pening. Kanadískir dýraverndunarsinnar stofnuðu undirskriftalistann í gær á vefsíðunni Change.org. Þegar þetta er skrifað hafa 40 manns skrifað undir. Titillinn er „Réttlæti fyrir ísbjörninn sem lögreglan á Íslandi skaut.“ „Nýlegt dráp lögreglunnar á ísbirninum Lesa meira
Sláandi niðurstöður vísindamanna sem fylgdust með ferðum 20 ísbjarna
PressanLífsbaráttan hjá ísbjörnum á norðurhveli jarðar getur verið býsna strembin ef marka má niðurstöður vísindamanna sem komu fyrir staðsetningarbúnaði og myndavélum á um tuttugu ísbjörnum sem hafast við úti fyrir ströndum Manitoba í Kanada. Fylgst var með ferðum bjarndýranna á árunum 2019 til 2022 og var markmiðið að sjá hvernig dýrunum reiðir af í sífellt erfiðari aðstæðum vegna hlýnunar Lesa meira
Telja að blanda ísbjarna og brúnbjarna muni ryðja sér til rúms
PressanÍsbirnir, sem eru stærsta rándýrið á landi, eru í hættu vegna loftslagsbreytinganna. Samhliða hækkandi hita færa brúnbirnir sig lengra norður á bóginn og þar með nær yfirráðasvæðum ísbjarna. Fregnir hafa borist frá Rússlandi um að ísbirnir og brúnbirnir séu nú farnir að sjást á sömu svæðunum. Árið 2006 var björn skotinn á kanadíska heimskautasvæðinu. Hann Lesa meira
Samkynhneigðir ísbirnir reita ítalskan stjórnmálamann til reiði
PressanÍtalir ganga að kjörborðunum þann 25. september og kjósa til þings. Kosningabaráttan hefur verið hörð og mörg málefni virðast vera stjórnmálamönnum hugleikinn þessa dagana. Meðal annars réðst Federico Mollicone, úr hinum hægrisinnaða flokki Fratelli d‘Italia, harkalega á samkynhneigða ísbirni. Fratelli d‘Italia nýtur góðs stuðnings Ítala þessa dagana og miðað við skoðanakannanir mun flokkurinn sigra í kosningunum. Hvort stuðningsmenn flokksins Lesa meira
Ný rannsókn varpar ljósi á gamlar grænlenskar þjóðsögur – Ísbirnir brjóta höfuð rostunga með steinum
PressanÁ Grænlandi hafa lengi verið sagðar ógurlegar sögur af ísbjörnum sem brjóta höfuð rostunga með þungum steinum og stórum klakastykkjum. Þetta eru margar sögur og hafa haldist lítið breyttar í gegnum tíðina. Af þessum sökum ákváðu vísindamenn að rannsaka hvort þær gætu átt sér stoð í raunveruleikanum. Þeir komust að því að ekki sé útilokað Lesa meira
Ísbirnir gætu heyrt sögunni til innan 80 ára
PressanLoftslagsbreytingarnar fara illa með ísbirni því um leið og meðalhitinn á norðurheimskautasvæðinu hækkar fækkar þeim dögum sem hafís er á svæðinu. Það kemur sér illa fyrir ísbirni sem nota hafísdagana til að veiða sér til matar. Það er eðlilegt að magn hafíss minnki á sumrin og þá fara ísbirnir í land og fasta. En sífellt Lesa meira
Ísbjörn hengdur við borðstokkinn
FókusSkipverjar á skipinu Guðnýju ÍS 266 komust í hann krappan þegar þeir hengdu ísbjörn við borðstokkinn sumarið 1993. Sögðu þeir þetta hafa verið mannúðlegustu aðferðina við að aflífa dýrið sem engan veginn hefði verið hægt að bjarga. Skipstjórinn fékk hins vegar á sig kæru frá dýraverndarsamtökunum fyrir ómannúðlega meðferð á birninum. Tók nokkrar sekúndur Guðný Lesa meira
Bjarndýr skotið í Fljótavík: „Þegar hann fékk leið á að skoða dyrnar fór hann í dótið okkar. Át þar appelsínur og gleypti heilt franskbrauð“
FókusÁrið 1974 var bjarndýr skotið í Fljótavík á Vestfjörðum. Átti það ekki nema þrjá til fjóra metra ófarna til manna þegar því var veitt eftirtekt. Frá þessu segir meðal annars í nýútkominni bók, Hvítabirnir á Íslandi, en í henni fjallar höfundurinn, Rósa Rut Þórisdóttir, um alla landgöngu bjarndýra hér á landi, allt frá landnámi til Lesa meira