Dularfullur sjúkdómur á Indlandi
PressanHeimsbyggðin berst nú við kórónuveiruna, sem veldur COVID-19, en í Eluru á Indlandi berjast yfirvöld og almenningur einnig við annan sjúkdóm. Fram að þessu hafa tæplega 500 verið lagðir inn á sjúkrahús og einn hefur látist af völdum sjúkdómsins. Þessi sjúkdómur er allt öðruvísi en COVID-19 en sjúklingar eru sagðir glíma við ógleði, froðufella og fá krampa. India Today og The Guardian skýra frá Lesa meira
Sónarmyndirnar sýndu óhugnaðinn í maga hans
PressanFlestir tengja það við hamingju þegar farið er í sónar enda fara verðandi mæður oft í slíka myndatöku. En fyrir tvítugan mann frá Nýju-Delí á Indlandi tengist minningin um sónar öðru en hamingju. Myndatakan sýndi að í maga hans var fjöldi sníkjudýra, orma sem geta orðið allt að 30 sm á lengd. Videnskab.dk skýrir frá þessu. Fram kemur að Lesa meira
Bandaríkin og Indland styrkja bandalag sitt gegn Kína
PressanBandarísk og indversk stjórnvöld hafa ákveðið að styrkja samstarf sitt og standa saman gegn því sem Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir vera „ágengni“ Kínverja. Þetta sagði hann á fréttamannafundi í Nýju-Delí á þriðjudaginn þar sem löndin kynntu aukið varnarsamstarf sitt. Pompeo og Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sögðu að hernaðarsamstarfið við Indland „yrði áfram hornsteinninn“ í samstarfi ríkjanna. Pompeo sagði að ríkin verði Lesa meira
Ástralía, Indland, Bandaríkin og Japan taka þátt í stórri heræfingu á Indlandshafi
PressanÍ næsta mánuði fer stór heræfing Ástrala, Indverja, Japana og Bandaríkjamanna fram á Indlandshafi. Markmiðið er að styrkja hernaðarsamstarf ríkjanna, ekki síst í ljósi erfiðra samskipta þeirra við Kínverja þessi misserin og aukinnar spennu í þeim samskiptum. Ríkin hafa staðið fyrir svipuðum heræfingum árlega síðan 1992 en umfang þeirra hefur farið vaxandi á síðustu árum. Lesa meira
Lág dánartíðni af völdum COVID-19 á Indlandi vekur undrun – Tengist það beinbrunasótt?
PressanIndverjar hafa að undanförnu aflétt sumum af þeim sóttvarnaraðgerðum sem gripið hefur verið til vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Nú er verið að opna samfélagið á nýjan leik í áföngum. Fjöldi smitaðra hefur farið lækkandi síðustu daga og margir hafa jafnað sig af COVID-19. En yfirvöld eru á tánum og óttast að faraldurinn blossi upp á nýjan leik Lesa meira
Bandaríkin vilja mynda bandalag í Asíu gegn Kínverjum
PressanMike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór nýlega í stutta heimsókn til Japan. Þar fundaði hann með forsætisráðherra Japan auk utanríkisráðherrum Japan, Ástralíu og Indlands. Markmiðið var að ræða málefni Kína og dró Pompeo enga dul á að Bandaríkin vilja mynda bandalag með Ástralíu, Japan og Indlandi gegn Kína. Ríkin fjögur eiga nú þegar í samstarfi, Quad-samstarfinu, en Pompeo vill víkka það út Lesa meira
Handtekin fyrir „klámfengið” myndband
Pressan27 ára frönsk kona, Marie-Helene, var handtekin í Uttarakhand á Indlandi þann 27. ágúst síðastliðinn fyrir það sem heimamenn telja „klámfengið“ athæfi. Hún hafði tekið upp myndband, þar sem hún er nakin, á heilagri brú yfir Gangesfljótið. CNN skýrir frá þessu. Brúin sem um ræðir heitir Lakshman Jhula og er um fimm kílómetra norðan við borgina Rishikesh. Samkvæmt trúnni þá fór guðinn Lakshmana yfir Gangesfljótið þar sem Lesa meira
Gleraugu Gandhi á uppboði – Gætu selst á 2,6 milljónir
PressanMahatma Gandhi er heimsþekktur fyrir hlut sinn í baráttunni fyrir sjálfstæði Indlands frá Bretlandi. Hann á marga aðdáendur víða um heim og nú geta þeir farið að kíkja í veskið til að kanna hvort þeir eigi næga peninga til að kaupa gleraugu Gandhi sem lést 1948. Gleraugun verða boðin upp þann 21. ágúst hjá East Bristol Auctions í Bretlandi að sögn Sky. Gleraugun voru Lesa meira
Indland er þriðja landið þar sem kórónuveirusmit eru orðin fleiri en tvær milljónir
PressanEnn fjölgar smitum af völdum kórónuveirunnar, sem veldur COVID-19, á Indlandi og er landið þriðja landið þar sem fjöldi staðfestra smita fer yfir tvær milljónir. Í gær greindust 62.500 með veiruna og fór heildartalan þá yfir tvær milljónir. Um 1,4 milljónir manna hafa jafnað sig á veirunni miðað við tölur frá Johns Hopkins háskólanum. Það eru staðbundnir faraldrar Lesa meira
Játaði 50 morð – Líkunum hent fyrir krókódíla
PressanIndverskur raðmorðingi hefur játað að hafa myrt rúmlega 50 leigubílstjóra og að líkum þeirra hafi verið hent fyrir krókódíla. 2004 var Devender Sharma dæmdur í lífstíðarfangelsi í Jaipur fyrir að hafa myrt sjö leigubílstjóra á árunum 2002 til 2004. Hann fékk 20 daga leyfi úr fangelsinu í janúar á þessu ári en sneri ekki aftur Lesa meira