Hörður segir þungan vetur í aðsigi
EyjanHörður Ægisson, ritstjóri Markaðar Fréttablaðsins, ritar grein í Fréttablaðið í dag sem ber heitið „Stór ákvörðun“. Í greininni fjallar hann um gjaldeyrismál og hlutafjárútboð Icelandair. Hann segir dæmi um að sum útflutningsfyrirtæki, einkum útgerðarfélög, hafi setið á gjaldeyri í stað þess að skipta honum í krónur. Fyrirtækin hafi viljað bíða eftir frekari lækkun á gengi krónunnar. Lesa meira
Almennir fjárfestar þurfa að gangast undir mat til að fá að taka þátt í hlutafjárútboði Icelandair
EyjanÞeir almennu fjárfestar sem hafa áhuga á að taka þátt í hlutafjárútboði Icelandair þurfa að gangast undir mat hjá Íslandsbanka eða Landsbankanum til að sýna fram á að þeir búi yfir nægilegri þekkingu og reynslu af áskriftarréttindum sem fjármálagerningi. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag og hefur fengið þetta staðfest hjá Fjármálaeftirliti Seðlabankans. Fram kemur að Fjármálaeftirlitið Lesa meira
Gætu sölutryggt hlutafjárútboð Icelandair
EyjanTil greina kemur að sölutryggja hlutafjárútboð Icelandair og er það til skoðunar hjá félaginu að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair Group. Með sölutryggingu er átt við að samningur er gerður á milli fjármálafyrirtækis og útgefanda verðbréfa þar sem fjármálafyrirtækið skuldbindur sig til að kaupa þau hlutabréf sem seljast ekki í almennu útboði. Fréttablaðið skýrir frá þessu. Blaðið segist Lesa meira
Allt veltur á hlutafjárútboði Icelandair
EyjanIcelandair stefnir að því að ljúka samningum við ríkið, banka og kröfuhafa í þessari viku. Allir þræðir fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins hafa áhrif á hver annan. Enn liggur ekki ljóst fyrir hversu háa fjármögnun þarf að tryggja fyrir lánveitingu frá bönkum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að allir Lesa meira
Icelandair stefnir á að ljúka samningum í vikulok – Gengisveiking styður við endurreisn félagsins
EyjanStefnt er að því að ljúka samningum Icelandair Group við lánardrottna fyrir lok vikunnar. Um 15 lánardrottna er að ræða. Viðræðurnar eru komnar mislangt á veg og samningsatriðin eru misjöfn. Starfsfólk Icelandair og ráðgjafar, innlendir og erlendir, koma að viðræðunum. Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag og hefur eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair. Hann sagði Lesa meira
Flugfreyjur fella nýjan kjarasamning – Segjast hafa boðið ein bestu kjör sem þekkjast á alþjóðamarkaði
FréttirFélagsmenn Flugfreyjufélags Íslands hafa fellt nýjan kjarasamning sem skrifað var undir hjá Ríkissáttasemjara þann 25. júní síðastliðinn. Atkvæðagreiðslu félagsins sem fór fram á netinu lauk í dag. Mikil ólga hefur verið innan flugfreyjufélagsins vegna samningana en samkvæmt heimildum DV eru uppi eru ásakanir um að Icelandair hafi tekið út tvö ákvæði sem talið var að Lesa meira
Icelandair íhugar að ráða flugfreyjur sem ekki eru félagar í Flugfreyjufélagi Íslands
FréttirIcelandair á í gríðarlegum fjárhagsvanda og verður að sækja sér tugi milljarða á næstunni til að tryggja framtíð félagsins. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa sagt að eitt mikilvægasta atriðið í því sé að gera nýja kjarasamninga við flugmenn, flugvirkja og flugfreyjur. Samningar hafa náðst við flugvirkja og flugmenn en ekki við flugfreyjur. Stefnt er að því að Lesa meira
Vilja fækka frídögum og frysta laun
EyjanSamkvæmt tillögum sem fulltrúar Icelandair hafa lagt fyrir samninganefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) þá verður frídögum flugmanna félagsins fækkað um allt að fimm og laun þeirra hækka ekki næstu tvö árin. Samkvæmt tillögum Icelandair þá verða laun flugfreyja ekki hækkuð fyrr en í október 2023 en þau hafa ekki hækkað síðan í maí 2018. Ef Lesa meira
Ríkisstjórnin vill ábyrgjast lán til Icelandair
EyjanRíkisstjórnin samþykkti á fundi í dag að ábyrgjast lán til Icelandair. Ábyrgði er háð því að félaginu takist að auka hlutafé sitt. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir að með þessari aðgerð og aðstoð við greiðslu launa í uppsagnarfresti nemi stuðningur ríkisins við Icelandair milljörðum króna. RÚV skýrir frá þessu. Fundur ríkisstjórnarinnar stóð yfir í nokkrar klukkustundir Lesa meira
Icelandair stefnir á hlutafjárútboð – Almenningur getur tekið þátt
EyjanNú er unnið að því að afla Icelandair Group aukins fjármagns. Meðal þess sem er á döfinni er að efna til almenns hlutafjárútboðs á næstu vikum og mun almenningi gefast kostur á að taka þátt. Útboðið færi fram samhliða hlutafjárútboði til fagfjárfesta en þar er aðallega horft til lífeyris- og verðbréfasjóða. Gengið yrði á sambærilegum Lesa meira