Dæmdur í 40 lífstíðarfangelsi fyrir fjöldamorð
PressanAðfaranótt nýársdags 2017 gekk Abdulkadir Masharipov inn á næturklúbb í Istanbúl í Tyrklandi og skaut 39 manns til bana. Hann er talinn vera félagi í hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við Íslamska ríkið. Á mánudaginn dæmdi tyrkneskur dómstóll hann í 40 lífstíðarfangelsi fyrir ódæðið. Masharipov, sem er frá Úsbekistan, var sakfelldur fyrir 39 morð og eina morðtilraun. Hann var því dæmdur Lesa meira
Breska leyniþjónustan veitti New IRA þungt högg – Áhyggjur af tengslum við Miðausturlönd
PressanBreska leyniþjónustan MI5 veitti klofningshópnum New IRA (Nýja IRA) þungt högg nýlega. New IRA er klofningshópur úr hryðjuverkasamtökunum IRA sem hafa lagt vopnaða baráttu gegn yfirráðum Breta á Norður-Írlandi á hilluna. New IRA hefur hins vegar haldið hryðjuverkum áfram og látið töluvert að sér kveða á undanförnum mánuðum. Atburðarásin er nánast eins og í góðri njósnamynd og er óhætt að segja að aðgerð Arbacia hafi gengið fullkomlega upp. Samkvæmt friðarsamningi frá 1998 þá Lesa meira
Ný skýrsla – Mesta hryðjuverkaógnin gegn Bandaríkjunum er frá öfgahægrimönnum
PressanHryðjuverkaógnin, sem steðjar að Bandaríkjunum, er miklu meiri frá öfgahægrimönnum en íslömskum öfgamönnum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Center for Strategic and International Studies (CSIS) sem hefur rannsakað öll hryðjuverk í Bandaríkjunum undanfarinn aldarfjórðung. Flestar hryðjuverkaárásir og fyrirætlanir í Bandaríkjunum koma frá öfgahægrimönnum og þetta hefur færst í aukana á síðustu árum segja skýrsluhöfundar. Lesa meira
Þetta sagði Manshaus þegar hann var handtekinn í moskunni
PressanÞegar vopnaðir lögreglumenn ruddust inn í Al-Noor moskuna í Noregi þann 10. ágúst á síðasta ári var Philip Manshaus, 22 ára, svo útataður í blóði að lögreglumenn töldu að hann hefði verið skotinn en svo var ekki. Mál Manshaus er nú fyrir dómi í Noregi en hann er ákærður fyrir að hafa myrt 17 ára Lesa meira
Unglingur fangelsaður fyrir að deila myndbandi af hryðjuverkinu í Christchurch
Pressan18 ára piltur hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald af dómstóli á Nýja-Sjálandi. Hann er sakaður um að hafa deilt myndbandi af hryðjuverkinu í Christchurch á föstudaginn þegar 50 voru myrtir í tveimur moskum. Hryðjuverkamaðurinn sýndi ódæðisverk sitt í beinni útsendingu á Facebook og það var sú upptaka sem pilturinn deildi en hún er Lesa meira
Skotum hleypt af víða í Utrecht – Ekki vitað hver eða hverjir standa að baki árásunum – Útiloka ekki fleiri árásir
PressanHryðjuverkadeild hollensku lögreglunnar hélt blaðamannafund fyrir nokkrum mínútum þar sem Pieter-Jaap Aalbersberg ræddi við fréttamenn um atburðina í Utrecht í morgun. Hann sagði að skotum hefði verið hleypt af á nokkrum stöðum í borginni í morgun. Hann sagði að enginn hafi verið handtekinn vegna málsins og lögreglan viti ekki hver eða hverjir standi að baki Lesa meira
Skotárás í Utrecht í Hollandi – Margir særðir
PressanMargir eru særðir eftir skotárás í Utrecht í Hollandi að sögn lögreglunnar. RTV Utrecht segir að skotum hafi verið hleypt af nærri Oudenrijn sjúkrahúsinu í miðborginni. Almenningssamgöngur í borginni hafa verið stöðvaðar og þrjár sjúkraþyrlur hafa verið sendar á vettvang. VG segir að umfangsmiklar lögregluaðgerðir standi nú yfir í borginni. BBC segir að maður hafi Lesa meira
Hryðjuverkamaðurinn í Christchurch náði ekki að ljúka verki sínu
PressanJacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, segir að Brenton Tarrant, sem er talinn hafa skotið 49 til bana í tveimur moskum í Christchurch í gær hafi ekki náð að ljúka ætlunarverki sínu áður en lögreglan handtók hann. The Guardian og Reuters skýra frá þessu. Haft er eftir Ardern að Tarrant hafi verið með fimm skotvopn á sér Lesa meira
Hetjudáð húsvarðarins í Christchurch – „Miklu fleiri hefðu verið myrtir“
PressanVitni, sem voru í Linwood moskunni í Christchurch í gær, segja að ungur maður, húsvörðurinn, hafi unnið mikla hetjudáð þegar Brenton Tarrant réðst inn í moskuna og skaut fólk með köldu blóði. Vitnin segja að ef húsvörðurinn ungi hefði ekki gripið til sinna ráða hefðu mun fleiri látist. Sky skýrir frá þessu. Haft er eftir Lesa meira
49 eru látnir eftir hryðjuverkin á Nýja-Sjálandi
PressanÁ fréttamannafundi ríkislögreglustjórans á Nýja-Sjálandi, Mike Bush, fyrir stundu sagði hann að 49 væru nú látnir eftir árásirnar á moskurnar tvær í Christchuch fyrr í dag. 20 til viðbótar eru alvarlega særðir. Hann sagði að karlmaður á þrítugsaldri verði færður fyrir dómar á næstu klukkustundum þar sem gæsluvarðhalds verður krafist yfir honum vegna gruns um Lesa meira