Maðurinn sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á umdeildan hátt dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn
FréttirJakub Polkowski sem vakti mikla athygli á síðasta ári eftir að hafa misst hús sitt í Reykjanesbæ á vægast sagt umdeildu nauðungaruppboði var 19. apríl síðastliðinn dæmur í Héraðsdómi Reykkjaness fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa ráðist á lögreglumenn við skyldustörf í október 2022. Sumarið 2023 var einbýlishús í Reykjanesbæ sem Jakub átti Lesa meira
Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat
FréttirMaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ráðast á dreng, sem hafði ætlað sér að gera dyraat heima hjá manninum, og slá hann í andlitið og halda honum niðri. Það kemur ekki fram í dómnum í hvaða sveitarfélagi atvikið átti sér stað en það var embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum sem ákærði manninn svo Lesa meira
Sakfelldur fyrir að ráðast á barn sem hann sagði vera að leggja son hans í einelti
FréttirHéraðsdómur Reykjaness hefur sakfellt mann fyrir að hafa ráðist á níu ára gamlan dreng en maðurinn sagði drenginn hafa verið að leggja son hans í einelti. Það kemur ekki fram í dómnum í hvaða sveitarfélagi þetta átti sér stað en það var embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum sem lagði ákæruna fram. Í dómnum kemur fram að Lesa meira
Flugfélag viðurkenndi bótaskyldu en tveir farþegar enduðu í mínus
FréttirÍ lok febrúar var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjaness í máli karls og konu, sem bæði eru íslensk, gegn ítalska flugfélaginu Neos. Maðurinn og konan kröfðust bóta vegna átta klukkustunda tafar á flugi félagsins frá Ítalíu til Íslands. Kröfðust þau þess að þeim yrði greitt hvoru um sig 56.452 krónur í bætur auk dráttarvaxta. Lesa meira
Reyndi að komast aftur til Íslands með dagbækur um hvernig beita á konur kynbundnu misrétti
FréttirGæsluvarðhaldsúrskurður Héraðsdóms Reykjaness yfir manni nokkrum var staðfestur í Landsrétti í gær. Maðurinn leitaði til lögreglu á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins og sagðist þá vilja sækja um alþjóðlega vernd. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að það hafði maðurinn áður gert en verið vísað úr landi. Hann gaf lögreglu misvísandi upplýsingar um hver hann Lesa meira
Lýstu ótta við meintan ofbeldismann og drógu allt til baka
FréttirÍ dag var birtur dómur sem féll 4. janúar síðastliðinn í Héraðsdómi Reykjaness. Maður var sýknaður af ákæru um að hafa beitt sambýliskonu sína og son þeirra líkamlegu og andlegu ofbeldi sem og hótunum. Lýstu bæði konan, drengurinn og eldri sonur hennar, stjúpsonur mannsins, að þau óttuðust manninn. Konan, stjúpsonurinn og drengurinn, sem af lýsingum Lesa meira
Maður á níræðisaldri efast um að hann sé faðir sonar síns
FréttirÍ Lögbirtingablaðinu í dag er birt tilkynning um stefnu vegna máls sem maður á níræðisaldri hefur höfðað gegn fyrrverandi eiginkonu sinni og syni þeirra til vefengingar á faðerninu. Eiginkonan fyrrverandi er einnig á níræðisaldri og er eins og maðurinn búsett á höfuðborgarsvæðinu en sonur þeirra sem er á sextugsaldri býr erlendis. Í stefnunni segir að Lesa meira
Lögregla má rannsaka síma manns sem er grunaður um alvarleg ofbeldisbrot
FréttirLandsréttur kvað fyrir um viku upp úrskurð í máli sem varðar rannsókn á síma manns sem er grunaður um aðild að ráni, frelsissviptingu, stórfelldri líkamsárás og kynferðisbroti. Héraðsdómur Reykjaness hafði 29. september veitt Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu heimild til að rannsaka rafrænt innihald síma mannsins, sem hald hafði verið lagt á. Héraðsdómur komst að þeirri Lesa meira
Þrjár konur kvaddar fyrir dóm
FréttirÍ Lögbirtingablaðinu í dag eru birt fyrirköll og ákærur vegna mála þriggja kvenna. Konurnar eru ákærðar fyrir að hafa staðið að ólöglegum innflutningi á verkjalyfjum til landsins og eru kvaddar til að koma fyrir Héraðsdóm Reykjaness þann 3. október næstkomandi og hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Sæki konurnar ekki dómþing má Lesa meira
Gallamálið í Hafnarfirði – Deilt um hvort að byggingarstig hússins hafi legið fyrir
FréttirEins og DV og fleiri fjölmiðlar hafa greint frá hafa hjónin Sæmundur Jóhannsson og Ester Erlingsdóttir þurft undanfarin ár að glíma við afleiðingar galla á fasteign þeirra að Burknavöllum í Hafnarfirði sem þau keyptu árið 2008. Gallarnir hafa valdið m.a. lekavandamálum í húsinu sem hefur stuðlað að myglumyndun. Húsið var tiltölulega nýlegt þegar hjónin keyptu Lesa meira