Kári hefur litla trú á orðum Svíans – „Það liggur við að ég spyrji hvað hann sé að reykja“
FréttirFréttastofa RÚV hafði um helgina eftir Richard Bergström, yfirmanni bóluefnamála Svía, sem á sæti í samninganefnd framkvæmdastjórnar ESB um bóluefni, að reikna megi með að bólusetningu við kórónuveirunni verði lokið hér á landi um mitt næsta sumar. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, gefur ekki mikið fyrir þessi orð Bergström. „Þegar þessi Svíi sem býr í Lesa meira
Stjórnvöld ræða við fleiri lyfjaframleiðendur en Pfizer um bóluefni
FréttirStjórnvöld hafa að undanförnu rætt við fleiri bóluefnaframleiðendur en Pfizer um aðkomu að tilraunaverkefni þar sem um 60% fullorðinna yrðu bólusett. Viðræður við Pfizer eru sagðar komnar lengst á veg og í vikunni muni koma í ljós hvort þær beri árangur. Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Eins og fram hefur komið í fréttum að undanförnu byggjast viðræðurnar við Pfizer, Lesa meira
Býr Dani undir að harðar sóttvarnaaðgerðir muni gilda fram á vor eða sumar
PressanMette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í gærkvöldi að ólíklegt sé að hægt verði að slaka á þeim sóttvarnaaðgerðum sem nú eru í gildi í landinu og líklega muni þær gilda í allan vetur og því þurfi Danir að undirbúa sig undir það. Þetta sagði hún í samtali við TV2. Núverandi sóttvarnaaðgerðir gilda til 17. janúar en ólíklegt er Lesa meira
Bóluefnin eru ekki trygging fyrir að fólk fái ekki kórónuveiruna
PressanBóluefnum gegn kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, hefur verið lýst sem vendipunkti í baráttunni við heimsfaraldurinn. En það að fá bólusetningu er ekki trygging fyrir að fólk smitist ekki af veirunni. Nú þegar er byrjað að bólusetja með bóluefninu frá Pfizer og BioNTech hér á landi og stutt er í að byrjað verði að bólusetja með bóluefni frá Moderna. Virkni beggja bóluefnanna Lesa meira
Atferlisfræðingur spáir fyrir um hvað tekur við að heimsfaraldri loknum
PressanHvernig munum við bregðast við og hegða okkur þegar við höfum sigrast á heimsfaraldri kórónuveirunnar? Við höfum nú þurft að sætta okkur við margskonar takmarkanir á daglegu lífi síðustu mánuði og þurfum þess væntanlega áfram um nokkurra mánaða skeið að minnsta kosti. Ljósið í myrkrinu er að byrjað er að bólusetja fólk víða um heim Lesa meira
Allt að tíu sinnum fleiri kórónuveirusmit í Wuhan en áður var talið
PressanTæplega hálf milljón íbúa í Wuhan í Kína gæti hafa smitast af kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, en það eru tíu sinnum fleiri en opinberar tölur sýna. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar kínversku smitsjúkdómastofnunarinnar. Í rannsókninni var notast við sýni úr 34.000 íbúum í Wuhan, þar sem veirunnar varð fyrst vart, og íbúum í Hubei-héraði þar sem Lesa meira
Segja 2020 hafa verið erfitt ár fyrir Bandaríkin en langt frá því að vera versta ár sögunnar
PressanEf rætt er við Bandaríkjamenn um árið sem er að líða verður að teljast mjög líklegt að þeir segi það vera það versta sem þeir muna eftir og er það heimsfaraldur kórónuveirunnar sem á sök á því. En að mati sagnfræðinga er árið ekki það versta í sögunni og nær raunar aðeins áttunda sæti lista Lesa meira
WHO segir að COVID-19 sé ekki endilega stóri faraldurinn
PressanSérfræðingar hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO segja að yfirstandandi kórónuveirufaraldur sé „ekki endilega stóri faraldurinn“ þrátt fyrir að hann sé alvarlegur. Þeir segja einnig að heimsbyggðin verði að læra að lifa með þessari kórónuveiru. David Heymann, prófessor og formaður ráðgjafanefndar WHO um smitsjúkdóma, sagði á fréttamannafundi á mánudaginn að það séu „örlög“ veirunnar að verða landlæg og Lesa meira
Nýtt stökkbreytt afbrigði kórónuveirunnar í Suður-Afríku – Jafnvel meira smitandi en enska afbrigðið
PressanStjórnvöld í Suður-Afríku hafa gripið til umfangsmikilla sóttvarnaaðgerða með lokunum á margvíslegri samfélagsstarfsemi í kjölfar þess að nýtt afbrigði kórónuveirunnar hefur greinst þar í landi. Afbrigðið er talið meira smitandi en hið svokallaða „enska afbrigði“ sem er 70% meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar. 80-90% þeirra smita sem greinast nú í Suður-Afríku eru af völdum Lesa meira
Útlendingar fá ekki að koma til Japan vegna nýja kórónuveiruafbrigðisins
PressanJapönsk yfirvöld hafa bannað öllum útlendingum að koma til landsins en bannið tók gildi í gær, mánudag. Það gildir til loka janúar. Ástæðan fyrir því er að nokkur smit af hinu nýja og stökkbreytta afbrigði kórónuveirunnar hafa greinst í landinu. Japanskir ríkisborgarar og útlendingar búsettir í landinu mega áfram koma þangað en verða að fara Lesa meira