Þekktir vísindamenn andmæla WHO – Segja ekki útilokað að kórónuveiran hafi verið búin til af mönnum
Pressan18 virtir vísindamenn, þar á meðal farsóttafræðingur og örverufræðingur við hina þekktu og virtu háskóla Harvard og Stanford, hvetja til þess að rannsókn verði hrundið af stað um upptök kórónuveirunnar sem herjar nú á heimsbyggðina. Þeir vilja að rannsóknin verði gagnsæ og byggð á gögnum og staðreyndum. Þeir telja ekki útilokað að veiran hafi verið búin til í Lesa meira
Kínverjar loka fyrir aðgang fjallgöngumanna að Everest
PressanKínversk yfirvöld hafa lokað fyrir aðgang fjallgöngumanna að Mount Everest, hæsta fjalli heims, það sem eftir lifir fjallgöngutímabilsins. Ástæðan er heimsfaraldur kórónuveirunnar. Samkvæmt frétt Xinhua ríkisfréttastofunnar hefur leyfi eina fyrirtækisins, sem má skipuleggja ferðir upp á fjallið frá Tíbet, verið afturkallað að sinni. Afturköllunin er sögð vera til að koma í veg fyrir „innflutning á kórónuveirunni“. 21 Kínverji hafði fengið Lesa meira
Varar við nýjum ofurafbrigðum kórónuveirunnar
PressanÁ meðan ríku löndin eru að bólusetja börn og unglinga er eldra fólk í Afríku og fólk í viðkvæmum hópum látið afskipt. Þetta getur valdið mikilli hættu fyrir alla heimsbyggðina þegar fram í sækir. Ástandið á Indlandi getur haft mikil áhrif í Afríku en nú er staðan svo slæm á Indlandi að landið getur ekki Lesa meira
Kórónuveirusýnataka kostar Dani 1,2 milljarða á dag
PressanSýnataka, sýnataka og sýnataka. Þetta er það sem dönsk stjórnvöld leggja mikla áherslu á í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn og er ekkert til sparað til að fólk eigi auðveldan aðgang að sýnatökum. Þær kosta ekkert og er fólk hvatt til að fara í sýnatöku ef það hefur grun um að það sé smitað en einnig þótt Lesa meira
Spáir því að Bretland verði laust við kórónuveiruna í ágúst
PressanClive Dix, sem er að láta af störfum sem yfirmaður bólusetningaáætlunar bresku ríkisstjórnarinnar, er bjartsýnn á að það takist að kveða faraldurinn niður á Bretlandi. Hann segist telja að í ágúst verði kórónuveiran ekki lengur á sveimi í landinu. „Einhvern tímann í ágúst verður kórónuveiran ekki í umferð í Bretlandi,“ sagði hann í samtali við The Daily Telegraph. Hann Lesa meira
Bólusetningum í Bandaríkjunum fer fækkandi – Stór hópur er hikandi
PressanNú hafa 56% fullorðinna Bandaríkjamanna fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni gegn kórónuveirunni. En það er erfitt að fá þá sem eftir eru til að mæta í bólusetningu og meðal svartra íbúa í borgum landsins eru miklar efasemdir um bólusetningarnar og það sama á við um hvíta íhaldsmenn á landsbyggðinni. Í Washington D.C. hafa 37% Lesa meira
Heimsfaraldurinn leikur Indverja grátt og við bætist annar hryllingur – „Þetta er martröð ofan í faraldurinn“
PressanFyrir þremur vikum var 25 ára indversk kona úrskurðuð heilbrigð eftir alvarleg veikindi af völdum COVID-19. Á laugardaginn lá þessi sama kona á skurðarborði á sjúkrahúsi í Mumbai þar sem skurðlæknir fjarlægði sýktan vef úr nefi hennar. Fyrir utan beið annar skurðlæknir eftir að komast að til að fjarlægja augu hennar. „Ég verð að fjarlægja augu hennar til að bjarga Lesa meira
Segir indversku ríkisstjórnina hafa klúðrað góðum árangri í baráttunni við kórónuveiruna
PressanÍ ritstjórnargrein hins virta læknarits The Lancet eru indversk stjórnvöld sögð hafa klúðrað þeim góða árangri sem hafði náðst í baráttunni við kórónuveiruna og þau hafi látið aðvaranir um aðra bylgju faraldursins sem vind um eyru þjóta. Þau veiti einnig ekki réttar upplýsingar um faraldurinn. Segir í greininni að viðbrögð ríkisstjórnar Narendra Modi séu „óafsakanleg“. Indland er nú miðpunktur heimsfaraldursins. Rúmlega Lesa meira
Skelfilegt ástand á Indlandi – Starfsfólk í líkbrennslum og grafreitum trúir ekki dánartölum yfirvalda
PressanÓhætt er að segja að ástandið af völdum kórónuveirufaraldursins sé skelfilegt á Indlandi. Daglega eru mörg hundruð þúsund smit staðfest og þúsundir látast af völdum COVID-19. Álagið er mikið á líkbrennslur í landinu en þær hafa ekki undan þessa dagana. Starfsfólk þeirra segir álagið svo mikið og svo mikið um dauðsföll að tölur yfirvalda um fjölda Lesa meira
Biden vill fullbólusetja 160 milljónir Bandaríkjamanna fyrir 4. júlí
PressanÞað gengur vel að bólusetja Bandaríkjamenn gegn kórónuveirunni en Joe Biden, forseti, vill gera enn betur og á þriðjudaginn kynnti hann nýtt bólusetningamarkmið stjórnvalda. Nú er stefnt að því að 160 milljónir, hið minnsta, hafi lokið bólusetningu fyrir 4. júlí sem er þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna. Um 331 milljón býr í Bandaríkjunum. Nú hafa um 105 milljónir lokið bólusetningu og um Lesa meira