Segja að Rússar hafi stolið uppskriftinni að bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni
PressanBreska leyniþjónustan segir að Rússar hafi stolið uppskriftinni að bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni og sé rússneska bóluefnið Sputnik V byggt á sömu uppskrift. Áður var vitað að bóluefnin voru búin til með sömu aðferðum en nú virðist sem að um nákvæmlega sömu aðferðir sé að ræða, að minnsta kosti ef leyniþjónustan hefur rétt fyrir sér. Daily Mail skýrir frá þessu. Þegar heimsfaraldur Lesa meira
Rúmlega 60 barnabrúðir látast daglega
PressanÁ hverju ári látast rúmlega 22.000 stúlkur, svokallaðar barnabrúðir, af völdum erfiðleika á meðgöngu eða við fæðingu. Þetta svarar til þess að rúmlega 60 barnabrúðir látist daglega að meðaltali. Þessar stúlkur eru gefnar í hjónaband áður en þær ná 18 ára aldri. Í dag er alþjóðlegi stúlknadagur Sameinuðu þjóðanna og af því tilefni birti Red Barnet (Björgum barninu) Lesa meira
Óbólusettar barnshafandi konur eru um fimmtungur veikustu COVID-19 sjúklinganna á Englandi
PressanTæplega fimmtungur veikustu COVID-19 sjúklinganna á Englandi síðustu mánuði voru óbólusettar barnshafandi konur. Þetta sýna tölur frá breska heilbrigðiskerfinu, NHS, sem hvetur barnshafandi konur til að láta bólusetja sig. Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að tölur sem ná frá 1. júlí til 30. september sýni að 17% þeirra COVID-19 sjúklinga sem þurftu að vera í öndunarvél voru óbólusettar Lesa meira
Hækkandi orkuverð ógnar endurreisnarstarfinu eftir heimsfaraldurinn
PressanMiklar hækkanir á orkuverði ógna þeirri efnahagslegu uppsveiflu sem ESB hefur sett milljarða evra í að koma í gang eftir heimsfaraldurinn. Í minnisblaði sem fjármálaráðherrar Evrusvæðisins ræddu á fundi á mánudaginn kemur fram að út frá efnahagslegu sjónarhorni þá geti hærra orkuverð hugsanlega seinkað endurreisn efnahagslífsins. Þetta var í fyrsta sinn sem fjármálaráðherrarnir ræddu hækkandi orkuverð en Lesa meira
Rúmenar líkja stöðu kórónuveirufaraldursins við yfirfulla Örkina hans Nóa
PressanRúmensk sjúkrahús eru við það að yfirfyllast og bólusetningarhlutfall þjóðarinnar er eitt það lægsta í Evrópu. Stjórnvöld hafa því stöðvað allar aðgerðir, sem ekki teljast bráðaaðgerðir, á sjúkrahúsum landsins í einn mánuð. Þetta er gert til að reyna að koma í veg fyrir að heilbrigðiskerfi landsins hrynji. Það er heimsfaraldur kórónuveirunnar sem veldur þessu mikla Lesa meira
Legosjóðurinn gaf UNICEF 9 milljarða
PressanLego Fonden, Legosjóðurinn, hefur að markmiði að styðja við verkefni sem bæta menntun barna í gegnum leik. En nýlega var vikið frá þessu markmiði þegar sjóðurinn gaf UNICEF, Barnahjálp SÞ, 70 milljónir dollara, sem svara til um 9 milljarða íslenskra króna, til að koma bóluefnum gegn COVID-19 til fólks sem hefur ekki aðgang að þeim að öðrum kosti. Lesa meira
Læknir með örvæntingarfullt neyðarkall – „Það er kominn tími til að ég segi sannleikann vinir mínir“
Pressan„Það er kominn tími til að ég segi sannleikann vinir mínir.“ Svona hefst pistill sem bandaríski læknirinn Cathy Canty skrifaði á Facebook um helgina. Hún býr í Idaho en þar er staðan vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar orðin svo alvarlega að hún taldi sig ekki getað þagað lengur. „Sjúkrahúsin eru full af COVID sjúklingum, vinir. FULL,“ skrifar hún. Hún er læknir í bænum Twin Falls í suðurhluta ríkisins, Lesa meira
„Ekki fara á sjúkrahús og komið ástvinum ykkar út af gjörgæsludeildum“ – Ný og hættuleg samsæriskenning breiðist út
PressanFyrirsögnin hér að ofan er tekin úr hvatningu til efasemdarfólks um bólusetningar gegn kórónuveirunni sem fer mikinn á mörgum síðum á Facebook sem þetta efasemdarfólk sækir. Hún er sett fram í kjölfar nýrrar samsæriskenningar sem breiðist nú nokkuð hratt út. Kenningin gengur út á að læknar komi í veg fyrir að óbólusett fólk fái svokallaða „kraftaverkameðferð“ við COVID-19 og láti það viljandi Lesa meira
Bjartsýnn ráðherra segir að næsta vor verði búið að sigrast á heimsfaraldrinum
PressanVið getum byrjað að lifa venjulegu lífi næsta vor án kórónuveirunnar. Þetta er eflaust eitthvað sem margir vilja heyra og vona svo sannarlega að reynist rétt og þó fyrr væri. Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýskalands, er svona bjartsýnn og segist reikna með að næsta vor verði búið að ná upp hjarðónæmi í Þýskalandi og þar með sigra kórónuveirunnar. Lesa meira
Segja að kórónuveiran verði orðin svipuð og kvefpest næsta vor
PressanKórónuveiran, sem veldur COVID-19, verður að lokum eins og venjuleg kvefpest og gæti verið komin á það stig næsta vor. Þetta er mat Dame Sarah Gilbert og Sir John Bell sem eru prófessorar í læknisfræði. Þau segja að á endanum muni sjúkdómseinkenni COVID-19 minna á hefðbundið kvef. Sky News skýrir frá þessu. Með þessu draga þau væntalega úr áhyggjum Lesa meira