Kórónuveirufaraldurinn er í sókn í Danmörku – Bæta við sýnatökugetuna
PressanHeimsfaraldur kórónuveirunnar er í sókn í Danmörku þessa dagana en þar eru engar sóttvarnaaðgerðir í gildi. Í gær greindust tæplega 1.900 smit og hafa ekki verið svo mörg á einum degi mánuðum saman. Til að bregðast við þessu ákvað heilbrigðisráðuneytið í gær að auka sýnatökugetuna um 50%. Á þriðjudaginn voru tekin 93.000 sýni í landinu öllu en Lesa meira
Flest smitanna fóru framhjá yfirvöldum – Kórónuveiran barst fyrr til Evrópu en áður var talið
PressanNú eru tæp tvö ár síðan heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á heimsbyggðinni en samt sem áður er enn ekki alveg vitað hvenær faraldurinn braust í raun út og byrjaði að dreifa sér um heiminn. Niðurstöður nýrrar rannsóknar bandarískra vísindamanna sýna að það gerðist líklegast töluvert fyrr en talið hefur verið fram að þessu. Einnig sýna niðurstöðurnar Lesa meira
Þingnefnd mælir með ákæru á hendur Jair Bolsonaro vegna heimsfaraldursins
EyjanBrasilísk þingnefnd hefur samþykkt skýrslu, þar sem mælt er með að Jair Bolsonaro forseti, verði ákærður vegna viðbragða hans við heimsfaraldri kórónuveirunnar. Leggur nefndin því til að forsetinn verði ákærður. Atkvæði féllu 7-4 þegar atkvæði voru greidd um skýrsluna. Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að í skýrslunni sé lagt til að forsetinn verði ákærður fyrir margvísleg brot í Lesa meira
Metfjöldi kórónuveirusmita í Færeyjum – Aukning eftir að aðgerðum var hætt á landamærunum
PressanÓhætt er að segja að kórónuveirusmitum hafi fjölgað mikið í Færeyjum að undanförnu. Þann 24. október voru 290 smitaðir í landinu en í gær voru þeir 379 og hafa aldrei verið fleiri. Á mánudaginn greindust 99 smit og hafa aldrei verið fleiri á einum degi. Vegna stöðunnar hefur landsstjórnin, í samráði við farsóttanefndina, ákveðið að grípa til Lesa meira
Kórónuveirusmitum fjölgar mikið víða í Evrópu – 4 mánaða útgöngubann
PressanVíða í Evrópu er kórónuveiran nú í mikilli sókn, sérstaklega í austurhluta álfunnar. Í síðustu viku tilkynntu yfirvöld í Lettlandi og Rússlandi um nýjar sóttvarnaaðgerðir sem verða að teljast ansi harðar. Í Rússlandi hefur hvert dapurlega metið á fætur öðru verið slegið að undanförnu hvað varðar fjölda smita og andláta af völdum COVID-19. Til að bregðast við þessu Lesa meira
Kínverjar reyna að dreifa nýrri kenningu um uppruna kórónuveirunnar – Humar kemur við sögu
PressanAllt frá upphafi heimsfaraldurs kórónuveirunnar hefur ein helsta kenningin um uppruna hennar verið að hún borist í fólk úr leðurblöku á matarmarkaði í kínversku borginni Wuhan. Önnur kenning, sem hefur náð töluverðri útbreiðslu, er að veiran hafi sloppið út úr tilraunastofu í Wuhan. Báðar þessar kenningar falla kínverskum stjórnvöldum lítt í geð og hafa þau ítrekað reynt Lesa meira
Indverjar hafa fengið einn milljarð skammta af bóluefni gegn kórónuveirunni
PressanÞrír fjórðu hlutar fullorðinna Indverja hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni gegn kórónuveirunni og um 30% hafa lokið bólusetningu. Um 1,3 milljarðar búa í Indlandi. Indverska heilbrigðisráðuneytið skýrði frá þessu í gær. Aðeins er um hálft ár síðan fjöldi smita í landinu var svo mikill að heilbrigðiskerfið var við það að kikna. Lesa meira
Banna bólusettum börnum að koma í skólann – Óttast að þau „smiti“ óbólusetta
PressanEinkaskólinn Centner Academy í Miami í Flórída hefur tilkynnt foreldrum nemenda að ef börn þeirra fari í bólusetningu gegn kórónuveirunni megi þau ekki mæta í skólann í 30 daga eftir bólusetninguna. Stjórnendur skólans óttast að bólusettir nemendur „smiti“ ögnum frá sér, ögnum úr bóluefninu sem þeir telja geta verið skaðlegar fyrir heilsu fólks. WSVN og The Washington Post skýra frá Lesa meira
Dapurleg kórónuveirumet slegin í Rússlandi
PressanÍ gær greindust 34.303 Rússar með kórónuveiruna en frá upphafi faraldursins hafa ekki svo margir greinst með veiruna á einum sólarhring. Á laugardaginn var annað dapurlegt met slegið en þá létust 1.002 af völdum COVID-19 og var það í fyrsta sinn sem fleiri en 1.000 létust á einum degi. Í gær var fjöldinn litlu minni eða Lesa meira
Rúmenska heilbrigðiskerfið ræður ekki við álagið vegna fjórðu bylgju kórónuveirunnar
PressanÁlagið á rúmenska heilbrigðiskerfið er orðið svo mikið að kerfið stendur ekki undir því. Aðeins er búið að bólusetja um þriðjung landsmanna gegn kórónuveirunni og fjórða bylgja heimsfaraldursins leggst því þungt á landið. Smitum hefur fjölgað gríðarlega síðustu daga. Á föstudaginn greindust tæplega 14.000 smit og 385 létust af völdum COVID-19 en aldrei fyrr hafa svona Lesa meira