Nýtt kórónuveiruafbrigði í mikilli sókn í Danmörku – Smitar bólusetta auðveldar en önnur afbrigði
PressanKórónuveiruafbrigðið BQ.1.1 hefur sótt í sig veðrið í Danmörku að undanförnu eins og víða um heiminn. Danska smitsjúkdómastofnunin SSI segir að afbrigðið verði væntanlega orðið ráðandi þar í landi innan nokkurra vikna. Tyra Grove Krause, faglegur forstjóri hjá SSI segir að afbrigðið smiti bólusett fólk auðveldar en önnur afbrigði og það sama eigi við um þá sem hafa áður Lesa meira
Kínverjar slaka á sóttvarnaaðgerðum – Telja að ein milljón geti látist
PressanKínversk stjórnvöld hafa nú breytt stefnu sinni varðandi kórónuveiruna og það ekki lítið. Í tæplega þrjú ár hefur hörðum aðgerðum verið beitt til að halda aftur af útbreiðslu veirunnar en í kjölfar víðtækra mótmæla nýlega gáfu stjórnvöld eftir og hafa nú slakað á aðgerðunum. BBC segir að nú þurfi ekki að framvísa neikvæðri niðurstöðu sýnatöku til Lesa meira
Heimurinn bíður – Hvað gerir Xi?
PressanXi Jinping, forseti Kína, stendur frammi fyrir því að þurfa að taka erfiða ákvörðun og að mati sérfræðinga er ekki öruggt að hann muni taka þessa ákvörðun. Allt snýst þetta um sívaxandi mótmæli í Kína vegna stefnu stjórnvalda hvað varðar heimsfaraldur kórónuveirunnar. Stefnan sem er rekin veitir ekkert svigrúm og hefur í för með sér að Lesa meira
Ráða 100.000 nýja starfsmenn í iPhone-verksmiðju
PressanFyrirtækið Foxconn, sem framleiðir vörur fyrir Apple, hefur að undanförnu ráðið 100.000 nýja starfsmenn til starfa í risaverksmiðju sinni í Zhengzhou í Kína. Verksmiðjunni var lokað fyrir mánuði síðan eftir að kórónuveirusmit komu upp meðal starfsfólks. Margir starfsmenn hættu þá störfum og allt stefndi í að þetta myndi hafa mikil áhrif á sölu iPhone fyrir jólin. Fyrirtækið réðst þá í mikla Lesa meira
Hræðsla í milljónaborgum – Óttast alvarlega stöðu
PressanÍ mörgum kínverskum borgum hefur viðbúnaðarstig verið hækkað vegna fjölgunar kórónuveirusmita. Sýnatökum hefur verið fjölgað og skólum og ferðamannastöðum hefur verið lokað. Á mánudaginn greindust 28 með veiruna í Shanghai en þar búa rúmlega 25 milljónir. Reuters skýrir frá þessu. Yfirvöld segja að á mánudaginn hafi 2.089 smit greinst í landinu og það mesti fjöldi smita á einum degi síðan Lesa meira
Ný rannsókn – Kórónuveirubóluefni geta haft áhrif á tíðahringinn
PressanNiðurstöður nýrrar stórrar rannsóknar sýna að bóluefni gegn kórónuveirunni geta haft áhrif á tíðahring kvenna. Rannsóknin náðin til 20.000 kvenna. VG skýrir frá þessu og vísar í rannsóknina. Fram kemur að allt frá því að byrjað var að bólusetja gegn kórónuveirunni hafi konur víða um heim tilkynnt um breytingar á tíðahring sínum. Ekki er vitað hvað Lesa meira
Blóðprufa getur sagt til um hættuna á langvarandi COVID-19
PressanBlóðprufa, sem er tekin úr fólki sem er smitað af COVID-19, getur sagt til um hvort það er líklegt til að glíma við langvarandi COVID-19. Sýnataka af þessu tagi gæti veitt læknum færi á að gefa þeim, sem eru í hættu á að fá langvarandi COVID-19, lyf snemma í sjúkdómsferlinu til að reyna að koma í veg fyrir Lesa meira
Nýtt kórónuveiruafbrigði sneiðir að mestu leyti hjá ónæmi í fólki
PressanSíðustu mánuði hefur verið frekar rólegt yfir nýjum kórónuveiruafbrigðum, að minnsta kosti hafa ekki komið fram afbrigði sem sérfræðingar hafa miklar áhyggjur af. En nú virðist sem friðurinn sé úti því afbrigðið BA.2.75.2 veldur nú áhyggjum. Afbrigðið virðist vera einstaklega gott í að komast fram hjá ónæmisvörnum fólks, hvort sem þær eru fengnar með bóluefni eða smiti. Lesa meira
Kári segir að heimsfaraldrinum fari líklega að ljúka
FréttirÍ síðustu viku sagði forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO að heimsfaraldur kórónuveirunnar sé í rénun og Joe Biden, Bandaríkjaforseti, lýsti því yfir um helgina að faraldrinum væri lokið í Bandaríkjunum. „Ég hef lokað skilningarvitum mínum fyrir öllu tengdu Covid,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í samtali við Fréttablaðið. Hann sagðist þó telja líklegt að honum fari að ljúka. Hann benti á Lesa meira
Biden lýsir yfir endalokum kórónuveirufaraldursins
PressanCOVID-19 veldur enn vanda en faraldrinum er lokið í Bandaríkjunum. Þetta sagði Joe Biden, forseti, í fréttaskýringaþættinum 60 mínútum á CBS sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi. Hann sagði að COVID-19 valdi enn vandræðum og enn séu mörg verkefni tengd veirunni en faraldrinum sé lokið. „Þið hafið kannski tekið eftir að enginn notar andlitsgrímu. Allir virðast vera í góðu formi svo ég held að þetta Lesa meira