Fundu steingerving risaeðlu á Grænlandi
PressanÁður óþekkt risaeðlutegund hefur uppgötvast á Grænlandi. Það var árið 1994 sem alþjóðlegur hópur vísindamanna vann að rannsóknum á steingervingum í austurhluta landsins. En það er núna fyrst sem niðurstaða enn ítarlegri rannsókna á steingervingunum liggur fyrir. Þær leiddu í ljós að steingervingur risaeðlu er ekki af risaeðlu af tegundinni Plateosaurur eins og áður var haldið. Það Lesa meira
Frystivörurnar í Álaborg reyndust ansi sérstakar
PressanFyrr í mánuðinum vöktu nokkur bretti með frystivörum athygli danskra tollvarða. Brettin komu til Grønlandshavnen í Álaborg. Samkvæmt farmskjölum var aðeins um venjulegar frystivörur að ræða á brettunum en skoðun tollvarða leiddi allt annað í ljós. Á brettunum hafði 7,7 milljónum danskra króna, í reiðufé, verið komið vel fyrir innan um frystivörurnar. Í tilkynningu frá tollgæslunni segir að Lesa meira
Rússar fara á fjörurnar við Grænlendinga – Vilja samstarf um fiskveiðar
PressanMörg ríki hafa áhuga á Grænlandi þessa dagana vegna legu landsins og hinna auðugu náttúruauðlinda. Skemmst er að minnast þess að Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseti, vildi gjarnan kaupa þessa stærstu eyju heims. Því tóku bæði Danir og Grænlendingar fálega. En Rússar hafa einnig áhuga á Grænlandi og hafa sýnt mikinn áhuga á auknu samstarfi ríkjanna hvað Lesa meira
Telja sig nærri því að vita af hverjum líkamshlutarnir eru sem fundust í sorpbrennslunni í Ilulissat
PressanUm síðustu helgi fannst hluti af líki í sorpbrennslunni í Ilulissat á Grænlandi og á þriðjudaginn fannst annar líkamshluti. Málið hefur að vonum vakið mikla athygli á Grænlandi og víðar og íbúum í Ilulissat, þar sem um 4.500 manns búa, stendur ekki á sama. Nú segist lögreglan telja sig vita af hverjum líkamshlutarnir eru. Fullvíst er talið að Lesa meira
Morðgátan á Grænlandi vindur enn upp á sig – Fundu annan líkamshluta
PressanUm helgina fannst líkamshluti í sorpbrennslunni í Illulisssat á Grænlandi. Síðan hefur mikil vinna lögreglunnar staðið yfir á vettvangi og í gær fannst annar líkamshluti í sorpbrennslunni. Grænlenska lögreglan hefur óskað eftir aðstoð frá Danmörku og koma rannsóknarlögreglumenn, tæknirannsóknarmenn og réttarmeinafræðingar frá Danmörku til bæjarins í dag, í allt fimm manns. Jan Lambertsen, yfirmaður rannsóknardeildar grænlensku lögreglunnar, sagði Lesa meira
Ný rannsókn varpar ljósi á gamlar grænlenskar þjóðsögur – Ísbirnir brjóta höfuð rostunga með steinum
PressanÁ Grænlandi hafa lengi verið sagðar ógurlegar sögur af ísbjörnum sem brjóta höfuð rostunga með þungum steinum og stórum klakastykkjum. Þetta eru margar sögur og hafa haldist lítið breyttar í gegnum tíðina. Af þessum sökum ákváðu vísindamenn að rannsaka hvort þær gætu átt sér stoð í raunveruleikanum. Þeir komust að því að ekki sé útilokað Lesa meira
Hungraður ísbjörn komst upp í bátinn – Myndband
PressanÁhöfn grænlensks fiskibáts brá heldur betur í brún á sunnudaginn þegar hungraður ísbjörn komst um borð í bátinn þar sem hann var við Mestervig við norðausturströnd landsins. Skipstjórinn, Niels P. Kristensen, tók meðfylgjandi myndband af birninum. Það er ljóst á upptökunni að honum er brugðið enda skelfur síminn jafn mikið og síminn. Ísbjörninn starir á hann niður um Lesa meira
Jeff Bezos og Bill Gates fjárfesta í verkefni á Grænlandi
PressanFyrirtækið Bluejay Mining hefur fengið 15 milljónir dollara frá nokkrum af ríkustu mönnum heims til að fjármagna leit að sjaldgæfum málmum á Grænlandi. Þetta eru málmar sem er hægt að nota í rafbíla. Meðal fjárfestanna eru Jeff Bezos, stofnandi netverslunarinnar Amazon, og Bill Gates, stofnandi Microsoft. Samkvæmt frétt Jótlandspóstsins þá verður fjármagnið notað til að hrinda leitarverkefninu Disko-Nuussuaq í gang á vesturströnd Grænlands. Peningarnir koma frá KoBold Metals Lesa meira
Bæjarstjórinn í Nuuk tekinn fram fyrir í bólusetningu – Starfsfólki hótað af embættismanni
PressanCharlotte Ludvigsen, bæjarstjóri í Nuuk á Grænlandi, var tekinn fram fyrir langa röð fólks, sem beið eftir að komast í bólusetningu, þann 22. júlí og bólusett á undan fólkinu. Þrír embættismenn voru með henni og voru þeir einnig bólusettir á undan þeim sem biðu. Þegar upp var staðið þurftu margir frá að hverfa þar sem bóluefnin voru á Lesa meira
Methiti á Grænlandi – 23,4 gráður
PressanSíðasta fimmtudag mældist hitinn 23,4 gráður í Hurry Fjord í Nerlerit Inaat í Scoresbysund á austanverðu Grænlandi og hefur aldrei mælst hærri hiti þar. Danska veðurstofan segir að um hitamet á austanverðu Grænlandi sé að ræða. Ástæðan fyrir þessum háa hita var háþrýstisvæði sem lá yfir svæðinu í nokkra daga. Því fylgdi nær enginn vindur Lesa meira