Mynd

KK hafnaði milljón fyrir lag og samdi á korteri eitt sitt þekktasta lag: „Ég er ekki sniðugur í markaðsmálum en ég er mjög heppinn“

Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson eða KK telur að gervigreind muni valda gríðarlegu offramboði á tónlist en óttast ekki að tæknin taki yfir mannlega sköpun. Í Gervigreindarklúbbnum segir hann gervigreind geta orðið öflugt verkfæri fyrir tónlistarmenn og segist sjálfur tilbúinn að prófa hana við lagasmíðar.