Demókratar sigruðu í kosningunum í Georgíu
EyjanKjósendur í Georgíuríki í Bandaríkjunum gengu að kjörborðinu í gær og kusu um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings. Demókratinn Raphael Warnock og Repúblikaninn Herschel Walker börðust um sætið. Enginn frambjóðandi fékk yfir 50% atkvæða í kosningunum í nóvember og því þurfti að kjósa aftur samkvæmt kosningalögum ríkisins. Stóru bandarísku fjölmiðlarnir, sem fylgjast með talningunni, segja að Warnock hafi sigrað en talning stendur enn yfir. Sigur Lesa meira
Rússar takmarka rétt fólks til að fara til Georgíu
FréttirYfirvöld í Rússlandi hafa ákveðið að takmarka ferðir Rússa yfir landamærin til Georgíu. Tugir þúsunda hafa komið að landamærunum síðustu daga en þessi miklu straumur fór af stað eftir að Vladímír Pútín, forseti, tilkynnti um herkvaðningu 300.000 karla sem senda á til Úkraínu. Rússar hafa nú þegar komið upp varðstöðvum nærri landamærunum og hafa nú Lesa meira
Rússar streyma til Georgíu og Kasakstan
FréttirYfirvöld í Georgíu og Kasakstan segja að tugir þúsunda Rússa hafi streymt til landanna eftir að Vladímír Pútín, forseti, tilkynnti um herkvaðningu 300.000 manna. Meirihluti Rússanna eru karlmenn sem eru að flýja herkvaðningu. The Guardian segir að eftir því sem yfirvöld í Georgíu segi þá hafi fjöldi Rússa, sem koma til landsins daglega, næstum tvöfaldast síðan Pútín tilkynnti um herkvaðninguna. Áður Lesa meira
Konur í Georgíuríki geta fengið 400.000 króna skattaafslátt við þungun
PressanFyrir tæpum tveimur vikum kvað dómstóll í Georgíu í Bandaríkjunum upp dóm um að barnshafandi konur geti dregið 3.000 dollara, sem svarar til um 410.000 íslenskum krónum, frá skatti. Þessi upphæð á við hvert fóstur sem þær bera undir belti. Það var niðurstaða dómstólsins að líta eigi á fóstur sem börn á heimilinu þegar kemur Lesa meira
Donald Trump er í hefndarhug gegn flokksbróður sínum í Georgíu
EyjanDonald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseti, er ekki maður sem fyrirgefur auðveldlega eða viðurkennir að hann hafi tapað. Glöggt dæmi um það má sjá í tengslum við forsetakosningarnar á síðasta ári sem hann tapaði. Hann hefur ekki viljað sætta sig við niðurstöðurnar og hefur ítrekað sett fram ósannar fullyrðingar og samsæriskenningar um að rangt hafi verið haft við í kosningunum. Lesa meira
Hrollvekjandi símtal á síðustu mínútum lífs hennar – „Leyfðu mér bara að fara“
PressanUm síðustu helgi fannst lík hinnar áströlsku Shanae Edwards í Mtatsmindafjöllunum, fyrir ofan Tbilisi höfuðborg Georgíu. Hún var 31 árs þegar hún lést. Vitað er að síðustu mínútur lífs hennar voru skelfilegar. Lýst var eftir Shanae á föstudaginn eftir að hún hafði hringt í vinkonu sína í Bandaríkjunum og er óhætt að segja að símtalið hafi verið hrollvekjandi. Fyrst heyrði vinkona hennar Shanae grátbiðja Lesa meira
Banna borgaralegar handtökur
PressanÞingið í Gerogíuríki í Bandaríkjunum samþykkti á mánudaginn bann við borgaralegum handtökum. Það var morðið á svarta hlauparanum Ahmaud Arbery í febrúar á síðasta ári sem var kveikjan að lögunum. Hann var skotinn þegar hann var úti að trimma. Það voru hvítir menn sem skutu hann og báru því við að þeir hefðu talið hann vera innbrotsþjóf. „Arbery varð fórnarlamb ofbeldisfullrar Lesa meira
Repúblikanar reyna að draga úr möguleikum fólks til að kjósa
PressanÖldungadeild þings Georgíuríkis í Bandaríkjunum samþykkti í gær ný kosningalög sem fela í sér að verulega er þrengt að möguleikum fólks til að kjósa utan kjörfundar. Samkvæmt nýju lögunum verður mjög erfitt fyrir kjósendur að fá heimild til að kjósa utan kjörfundar. Markmiðið með lögunum er að styrkja stöðu Repúblikana í ríkinu því það eru yfirleitt kjósendur Lesa meira
Biden segir að Demókratar verði að sigra í Georgíu ef framfarir eigi að eiga sér stað í Bandaríkjunum
PressanÞann 5. janúar verður kosið um tvö sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings í Georgíu. Þetta eru gríðarlega mikilvægar kosningar því þær hafa mikil áhrif á skiptingu valdsins í Bandaríkjunum. Joe Biden, verðandi forseti, heimsótti Georgíu á þriðjudaginn og hvatti kjósendur til að kjósa frambjóðendur Demókrataflokksins. Á kosningafundi í Atlanta sagði hann að hætta sé á að pólitísk stefna hans Lesa meira
Þetta er konan á bak við sigur Biden í Georgíu – Næst er það baráttan um öldungadeildina
PressanStacey Abrams er vinsæl í Demókrataflokknum því það er ekki annað að sjá en að hún eigi stærstan hlut að máli hvað varðar sigur Joe Biden í forsetakosningunum í ríkinu. Barátta hennar er talin hafa tryggt Biden alla 16 kjörmenn ríkisins sem hefur verið vígi Repúblikana allt frá því að Bill Clinton sigraði þar 1992. Það sem rekur Abrams áfram er ósigur hennar í ríkisstjórakosningunum í Georgíu í nóvember Lesa meira