Innbrotsþjófar með Urriðaholtið í sigtinu – Verkfærum beitt á hurðarkarma
FréttirÍbúar í Urriðaholtshverfinu hafa verið að deila ljósmyndum og frásögnum af innbrotum og tilraunum til innbrota undanfarna daga. Virðist sem svo sem innbrotsþjófar séu með hverfið í sigtinu. Einn íbúi við Hraungötu, vestarlega á holtinu, lýsti því á samfélagsmiðlum í gær að brotist hafi verið inni í útigeymslurnar á húsnæðinu. Einnig að reynt hafi verið Lesa meira
Rannsókn lögreglu á gluggagægjunum lokið – „Þeir hafa engin tengsl við nein innbrot“
FréttirLögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn á tengslum sorphirðumanna við tvö innbrot á Álftanesi. Engin tengsl hafa fundist. Þetta staðfestir Helgi Gunnarsson, lögreglufulltrúi á lögreglustöðinni í Hafnarfirði við DV. „Þeir hafa engin tengsl við nein innbrot,“ segir Helgi. Aðspurður um hvort búið sé að upplýsa innbrotin tvö, sem framin voru við Túngötu á Álftanesi segir Helgi svo Lesa meira
Lögreglan skoðar tengsl gluggagægja meðal sorphirðumanna og innbrota á Álftanesi
FréttirLögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðar nú ábendingar um að sorphirðumenn á Álftanesi hafi verið að líta inn um glugga fólks til að athuga hvort einhver sé heima. Tvö innbrot hafa verið framin í kjölfar þess að sést hafi til sorphirðumanns á glugga. Forstjóri Íslenska gámafélagsins segir allar ábendingar kannaðar af hálfu félagsins. Tvö innbrot hafa verið Lesa meira
Réðu vin bæjarstjórans í góða stöðu hjá Garðabæ – „Þessi ákvörðun skapar vantraust frá fyrsta degi“
EyjanLúðvík Örn Steinarsson var í vikunni ráðinn sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslusviðs Garðabæjar. Fulltrúar minnihlutans eru æfir yfir þessu enda er Lúðvík vinur Almars Guðmundssonar bæjarstjóra og er innmúraður Sjálfstæðismaður sem hefur tengt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. „Þetta er mjög alvarlegt,“ segir Sara Dögg Svanhildardóttir, oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Garðabæjar. En hún og fulltrúar Garðabæjarslistans og Framsóknarflokksins lögðust gegn ráðningu Lúðvíks Lesa meira
Útsvarsgreiðendur þurfa að borga á fjórða hundrað milljónir vegna klúðurs Strætó
FréttirBorgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að borgin skyldi veita Strætó bs. aukafjárframlag sem nemur 198.989.442 króna. Óskaði stjórn Strætó eftir framlaginu, frá borginni og öðrum eigendum félagsins, til að greiða skaðabætur og vexti sem félagið var dæmt til að greiða Teiti Jónassyni ehf. Það fyrirtæki fór í mál við Strætó vegna framkvæmdar Lesa meira
Jólagleði í Garðabæ – Leikskólabörnin kveiktu jólaljósin á Garðatorgi
FókusMeð samstilltu átaki Almars Guðmundssonar, bæjarstjóra í Garðabæ, og leikskólabarna í bænum voru ljósin á jólatrénu á Garðatorgi tendruð nú rétt eftir hádegið. Spennan í loftinu var mikil í fallegu veðrinu á fyrsta degi jólamánaðarins þegar börn úr leikskólum bæjarins söfnuðust saman fyrir framan jólatréð, sem árlega er ljósum prýtt fyrir framan bæjarskrifstofurnar á Garðatorgi Lesa meira
Hundruð undirskrifta safnast gegn skipulagi Arnarlands í Garðabæ
Fréttir250 íbúar í Akrahverfi í Garðabæ hafa skrifað undir lista gegn skipulagi tengdu fyrirhuguðu heilsuhverfi í Arnarlandi. Hið nýja hverfi verður tengt inn í Akrahverfi og Borgarlínan mun keyra í gegnum bæði hverfin. „Við íbúar Akrahverfis í Garðabæ mótmælum harðlega fyrirhuguðum breytingum á deiliskipulagi hverfisins þar sem umferð frá Arnarlandi er beint inn í hverfið Lesa meira
Reiði út af nýju heilsuhverfi í Garðabæ – „Garðabær stelur Kópavoginum frá Kópavogsbúum“
FréttirÍbúar í bæði Kópavogi og Garðabæ eru ósáttir við fyrirhugaða uppbyggingu hins svokallaða Arnarlands, eða Arnarnesháls í Garðabæ. Þar munu rísa níu hæða stórhýsi sem meðal annars taka sýnina yfir Kópavoginn af Kópavogsbúum í Smárahverfi. Einnig mun umferðarþungi aukast til muna í Smárahverfi og Akrahverfi í Garðabæ. „Sjórinn fyrir neðan heitir Kópavogur sem er sálin Lesa meira
Næturstrætó mun stoppa í Kópavogi og Garðabæ – „Þau njóta góðs af gjafmildi Hafnarfjarðar“
FréttirNæturstrætó mun eftir allt saman stoppa bæði Kópavogi og Garðabæ þrátt fyrir að bæjarstjórnir þessara sveitarfélaga vilji ekki borga krónu fyrir. Hafnarfjörður mun borga fyrir verkefnið. „Það væri asnalegt að stoppa ekki þarna,“ segir Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó. Hann segir það ekki hafa nein áhrif á kostnað við verkefnið að stoppa á þessum tveimur stöðum. Þau njóta góðs Lesa meira
Næturstrætó stoppar heldur ekki í Garðabæ
FréttirFulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks höfnuðu í dag tillögu Viðreisnar og Garðabæjarlistans að bjóða upp á þjónustu næturstrætó. Eins og greint hefur verið frá munu Hafnfirðingar hefja tilraunakeyrslu næturstrætó í haust, frá 1. október til áramóta. DV greindi frá því um helgina að Kópavogsbær myndi ekki taka þátt í verkefninu og mun næturstrætó því keyra í gegnum Kópavog án þess Lesa meira