Mynd
Flugvél þurfti að nauðlenda þegar það kviknaði í hleðslubanka
Farþegaþota indverska flugfélagsins IndiGo þurfti að nauðlenda í Hyderabad á sunnudag eftir að eldur kviknaði í farþegarými vélarinnar. Mikil skelfing greip um sig meðal farþega áður en áhöfninni tókst að ná tökum á ástandinu.
Um er að ræða Airbus A321-farþegaþotu sem var á leið frá Delhi til Chennai.