Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar haldin við hátíðlega athöfn
EyjanJafnvægisvog FKA er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA. Að hreyfiaflsverkefninu standa auk FKA, forsætisráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, Pipar\TBWA, Ríkisútvarpið, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá. Áhugaverð erindi voru á ráðstefnunni og mælaborð kynnt sem varpar ljósi á stöðuna jafnréttismálum í atvinnulífinu í dag. Mælaborðið er gott verkfæri sem er byggt á gögnum frá Creditinfo, Freyju Lesa meira
Nýliðamóttakan hjá FKA er ekki staður til að heyra saumnál detta
EyjanFjölmargar deildir, nefndir og ráð starfa í öflugu stóru félagi eins og FKA sem í eru 1420 konur af landinu öllu. Eitt af hlutverkum Fræðslunefndar FKA er að sjá um Nýliðamóttöku tvisvar á ári og fór ein slík fram í húsakynnum Össurar á dögunum. „Hildur Einarsdóttir rafmagnsverkfræðingur með meistaragráðu í læknisfræðilegri verkfræði og reiknifræðilegum taugavísindum Lesa meira
Hugrekki er hópíþrótt, segir Halla Tómasdóttir
EyjanHalla Tómasdóttir ávarpaði konur á upphafsfundi starfsársins hjá LeiðtogaAuði hjá Félagi kvenna í atvinnulífinu á dögun um og vekti mikla hrifningu. „Það var frábært að hefja starfsárið hjá LeiðtogaAuði með Höllu sem er okkar kona,“ segir Svanhildur Jónsdóttir sérfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti og formaður LeiðtogaAuða. „Halla Tómasdóttir hefur unnið hjá stórfyrirtækjum á borð við Lesa meira
Ragga Nagli kenndi Framtíðarkonum hvernig setja á mörk
FókusOpnunarviðburður FKA Framtíðar, sem er deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fór fram fyrir viku síðan, fimmtudaginn 7. september. Á viðburðinn mættu hátt í 100 konur og skemmtu sér stórkostlega yfir dagskrá kvöldsins. Viðburðurinn var tengslakvöld þar sem félagskonur voru hvattar til að mæta með vinkonu með sér til að leyfa þeim að kynnast Lesa meira
Tengslamyndun í FKA fer fram á margvíslegan hátt – líka í golfskóm
EyjanFKA golfferðir og -mót slá ávallt í gegn og ferðir skipulagðar innanlands og utan eru jafnan gefandi gæðastundir. Að þessu sinni styrktu félagskonur böndin og mynduðu ný viðskipta- og vinatengsl á Golfmóti FKA sem fór fram í Leirunni Reykjanesbæ. Golf í morgunmat, hádegismat og kvöldmat mögulega líka með kaffinu „Rúmlega þrjátíu konur mættu og Lesa meira
Opnunarviðburður FKA 2023: „Hvað gerir maður þegar það er óskað er eftir bankastjóra? – Sækir um!“
EyjanÁ annað hundrað kvenna komu saman í nýju húsnæði Landsbanka í Reykjastræti á opnunarviðburði sem haldinn var í vikunni. „Fjárfestu í þér til framtíðar“ var yfirskriftin þar sem konur af höfuðborgarsvæðinu og alls staðar að af landinu hófu starfsár félagsins sem er jafnframt 25 ára afmælisár félagsins. „Nýja Landsbankahúsið er stórglæsilegt og tekur sannarlega vel Lesa meira
Svanhildur er nýr formaður LeiðtogaAuðar
EyjanÁ aðalfundi LeiðtogaAuðar í Landsneti miðvikudaginn 31. maí síðastliðinn tók Svanhildur Jónsdóttir sérfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti við sem formaður. LeiðtogaAuður er sérstök deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, fyrir konur sem hafa yfirgripsmikla stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu, bæði einkageiranum og hinu opinbera. Félagskonur LeiðtogaAuðar eru hluti af forystusveit íslensks viðskiptalífs sem gegna eða hafa gegnt Lesa meira
Ný stjórn FKA Framtíðar
EyjanNý stjórn FKA framtíðar hefur verið kosin fyrir næsta starfsár, en FKA Framtíð er deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu og er með yfir 400 félagskonur, segir í tilkynningu frá FKA. Aðalfundur FKA Framtíðar var haldinn á dögunum og kosin stjórn fyrir næsta starfsár. FKA Framtíð er deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fyrir Lesa meira
Unnur Elva nýr formaður FKA
EyjanAðalfundur Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA var haldinn á Nauthóli miðvikudaginn 10. maí 2023 og þar tók við ný stjórn félagsins. Unnur Elva Arnardóttir forstöðumaður hjá Skeljungi er nýr formaður félagsins sem telur í nýtt og öflugt starfsár þar sem FKA fagnar meðal annars 25 ára afmæli. Stjórnarkonurnar Guðrún Gunnarsdóttir hjá Fastus og Dóra Eyland Lesa meira
Hlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum 100 stærstu fyrirtækja er 26% – „Jafnrétti er ekki einkamál kvenna“
EyjanHlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum 100 stærstu fyrirtækja landsins er einungis 26%, konur eru einungis 10% forstjóra og 19% stjórnarformanna. Staðan í stjórnum er þó umtalsvert betri þar sem konur eru orðnar 40% stjórnarmanna á móti 60% körlum í 100 stærstu fyrirtækjunum. Deloitte hefur tekið saman greiningu á 100 stærstu fyrirtækjum landsins mælt í veltu og Lesa meira