Helga Jóhanna ferðaþjónustubóndi nýr formaður FKA Suðurlandi
Eyjan02.10.2023
Helga Jóhanna Úlfarsdóttir var kosin formaður á aðalfundi FKA Suðurland sem haldinn var í Rauða húsinu Eyrabakka. Helga Jóhanna er eigandi Heima Holiday Homes og ferðaþjónustubóndi að Skeiðum í uppsveitum Suðurlands. „Við höldum áfram góðu starfi FKA Suðurlands er kemur að sýnileika, tengslaneti og að hafa áhrif á samfélagsumræðuna,“ segir Helga Jóhanna sem var með framboðsræðu á netinu þar sem hún var stödd erlendis. Lesa meira