Fjögur ár í sviðsljósinu – Hvar er Melania núna?
PressanÍ fjögur ár var hún ein þekktasta kona heims en eftir að eiginmaður hennar, Donald Trump, tapaði í bandarísku forsetakosningunum og flutti í kjölfarið úr Hvíta húsinu er eins og Melania Trump sé horfin. Bandarískir fjölmiðlar segja að hún hafi til dæmis ekki verið viðstödd þegar Donald Trump fagnaði 75 ára afmæli sínu nýlega. Forsetinn fyrrverandi hélt upp á afmælið þann Lesa meira
FBI varar við „nethermönnum QAnon“ – Óttast aukið ofbeldi
PressanBandaríska alríkislögreglan FBI varar við að aukinnar óþolinmæði gæti hjá þeim sem aðhyllast samsæriskenningar QAnon og að það geti leitt til aukins ofbeldis. Í nýju hættumati frá FBI kemur fram að herskáir fylgjendur samsæriskenningahreyfingarinnar geti hugsanlega yfirgefið Internetið fljótlega til að setja mark sitt á hinn raunverulega heim. CNN segir að FBI telji að stuðningsmenn QAnon séu byrjaðir að efast um áætlun hins dularfulla Q sem er upphafsmaður Lesa meira
Trump gengur illa að finna útgefanda að endurminningum sínum – Óttast ósannindi hans
PressanDonald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseti, hefur unnið að ritun endurminninga sinna og það vita stóru bókaforlögin. Þau eru þó hikandi við að gefa bókina út og hafa ekki gert Trump nein tilboð um að gefa hana út. Hann segist þó hafa fengið tilboð frá tveimur stórum forlögum en það vilja þau ekki kannast við. Politico skýrir frá Lesa meira
Símahneyksli Trumpstjórnarinnar vindur enn meira upp á sig – Fengu gögn um eiginn lögmann
PressanEins og DV skýrði frá fyrr í dag þá fékk bandaríska dómsmálaráðuneytið gögn frá Apple og öðru ótilgreindu fyrirtæki um símanotkun að minnsta kosti tveggja þingmanna Demókrata frá 2017 til 2021. Þetta gerðist í stjórnartíð Donald Trump. Þetta þykir mikið hneyksli í Bandaríkjunum og hafa Demókratar líkt málinu við Watergatehneykslið sem varð Richard Nixon að Lesa meira
Njósnir dómsmálaráðuneytisins vekja reiði meðal Demókrata
PressanBandaríska dómsmálaráðuneytið ætlar að hefja rannsókn á tilraunum ríkisstjórnar Donald Trump til að afla sér gagna um samskipti stjórnmálamanna úr röðum Demókrata. Í stjórnartíð Trump skipaði dómsmálaráðuneytið Apple til að afhenda gögn um samskipti stjórnmálamanna úr röðum Demókrata. New York Times sagði í umfjöllun að stjórn Trump hafi reynt að komast að hver lak upplýsingum um tengsl kosningaframboðs Trump við Rússland. Dómsmálaráðuneytið hafi því skipað Apple og öðru ónafngreindu tæknifyrirtæki Lesa meira
Texas er nýr heimavöllur Trump
PressanEftir ósigurinn í forsetakosningunum flutti Donald Trump til Flórída og hefur nokkuð hægt um sig opinberlega en á bak við tjöldin situr hann ekki auðum höndum og beitir áhrifum sínum til hins ítrasta innan Repúblikanaflokksins. Hann hefur sterk ítök í flokknum í Texas og þar virðast flokksmenn vilja þóknast honum. Ef fólk hefur átt von á að Repúblikanar í Texas myndu taka Lesa meira
Trump segist verða settur aftur í forsetaembættið í ágúst
PressanDonald Trump hefur að undanförnu sagt nánu samstarfsfólki sínu að hann reikni með að verða settur aftur í embætti forseta í ágúst. Trump hefur ítrekað haldið þeim staðlausu fullyrðingum fram að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum í nóvember. Hann hefur ekki getað lagt nein gögn fram þessu til stuðnings og dómstólar hafa vísað tugum mála, tengdum Lesa meira
Segir að Trump sé reiðubúinn til að fórna börnunum sínum
Pressan„Ég tel að Donald Trump muni snúast gegn öllum, einnig börnunum.“ Þetta sagði Michael Cohen, fyrrum lögmaður Trump, í samtali við MSNBC.com um þá staðreynd að saksóknarar í New York hafa hafið sakamálarannsókn á málum tengdum fyrirtækjum Trump. Það sem er til rannsóknar er hvort Trumpsamsteypan hafi villt fyrir lánveitendum og tryggingafélögum um virði fasteigna og annarra eigna og hvort fyrirtækið hafi ekki greitt það sem því Lesa meira
Ný bók varpar ljósi á álit Obama á Trump – „Kynþáttahatari, klikkhaus og spilltur andskoti“
PressanÁ meðan Donald Trump sat í Hvíta húsinu gætti Barack Obama, forveri hans, sín á að skipta sér ekki af málum tengdum Trump og embættisfærslum hans. En í kosningabaráttunni á síðasta ári var Obama greinilega búinn að fá nóg og hann gat ekki lengur haldið skoðunum sínum á Trump fyrir sig sjálfan. Þetta er að minnsta kosti staðhæft í nýrri bók, „Battle for the Soul: Inside the Democrats‘ Campaigns to Defeat Donald Trump“ eftir blaðamanninn Edward-Isaac Dovere. The Guardian hefur Lesa meira
Saksóknarar hefja sakamálarannsókn á fyrirtækjum Donald Trump
Pressan„Við erum nú að rannsaka hugsanleg afbrot Trumpsamsteypunnar.“ Þessar upplýsingar fengust á skrifstofu Letita James, saksóknara í New York. CNN segir að saksóknarinn vinni nú með saksóknara á Manhattan að rannsókn á málum tengdum Donald Trump og fjölskyldu hans. Segir CNN að þetta sýni alvarleika málsins. Saksóknaraembættin hafa síðasta árið verið með sitthvora rannsóknina í gangi en nú taka þau höndum saman. Þetta getur endað með að Donald Trump verði Lesa meira