Nýjar og eldfimar upplýsingar um húsleitina heima hjá Trump
EyjanMeðal þeirra skjala sem bandaríska alríkislögreglan FBI fann við húsleit heima hjá Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseta, fyrir mánuði síðan voru háleynileg skjöl um kjarnorkuvopn annars ríkis. Það þykir að sjálfsögðu mjög alvarlegt mál að leyniskjöl hafi legið óvarin á heimili Trump en nú eru komnar fram upplýsingar um önnur háleynileg skjöl sem fundust á heimilinu. Lesa meira
Fundu skjöl um kjarnorkuvopn erlends ríkis heima hjá Trump
FréttirMeðal þeirra skjala sem fundust heima hjá Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseta, í Mar-a-Lago í Flórída voru leyniskjöl um kjarnorkuvopn annars ríkis. Þessi skjöl eru með svo háa leyndarflokkun að sumir af þjóðaröryggisráðgjöfum Joe Biden, forseta, hafa ekki heimild til að lesa þau. Washington Post skýrði frá þessu í gærkvöldi. Ekki kemur fram hvaða kjarnorkuveldi eigi í hlut en skjölin eru sögð Lesa meira
Anna komst inn í Mar-a-Lago og hitti Trump – Hvað vildi hún? Hver er hún?
PressanÞegar hin fallega og heillandi Anna de Rothschild birtist á Palm Beach á Flórída tók ríka og valdamikla fólkið strax vel á móti henni. Hún fékk aðgang að Mar-a-Lago, heimili Donald Trump fyrrum forseta, þar sem íhaldssamir Repúblikanar flykkja sér um forsetann fyrrverandi. Hún sat fyrir á ljósmynd með Trump, áhrifamönnum úr Repúblikanaflokknum og auðmönnum sem fjármagna starfsemi Repúblikanaflokksins. „Við héldum að afi hennar ætti peninga og Lesa meira
Hvað veit Donald Trump um kynlíf Emmanuel Macron?
FréttirÍ Elysee höllinn í Frakklandi velta margir fyrir sér hvað það er sem Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseti, þykist vita um kynlíf Emmanuel Macron, Frakklandsforseta. Hefur Macron verið að gera eitthvað bak við luktar dyr heimilis síns þegar eiginkona hans, Brigitte, hefur verið að heiman? Franskir forsetar eru svo sem þekktir fyrir að halda sig ekki bara við eiginkonur sínar. Frægasta dæmið er líklega að Lesa meira
Hörð árás Biden á Trump og stuðningsfólk hans – Ógn við lýðræðið
EyjanJoe Biden ávarpaði bandarísku þjóðina í gærkvöldi og réðst harkalega að Donald Trump, fyrrum forseta, og stuðningsfólki hans. Inntakið í boðskap hans var að fólk verði að kjósa í kosningunum í nóvember til að tryggja og varðveita réttindi sín. Biden sagði að Trump og stuðningsfólk hans, Maga Repúblikanar, séu fulltrúar öfgahyggju sem ógni grundvelli lýðræðis í Bandaríkjunum: „Maga Repúblikanar virða ekki Lesa meira
Spáir alvarlegum afleiðingum ef Trump verður ákærður – „Það verða óeirðir á götunum“
Fréttir„Ég segi það svona að ef Donald Trump verður ákærður fyrir meðferð hans á leyniskjölum þá verða óeirðir á götunum.“ Þetta sagði öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham í þættinum „Sunday Night in America“ á Fox News sjónvarpsstöðinni. Graham er einarður stuðningsmaður Trump. Í þættinum kom hann með tvenn rök fyrir af hverju stuðningsmenn Trump geti hugsanlega brugðist svo illa við ákæru á hendur forsetanum fyrrverandi. Þessi rök snúast Lesa meira
Fyrrum ráðgjafi Trump- „Hann er taugaóstyrkur“
FréttirStephanie Grisham var um hríð fjölmiðlafulltrúi Donald Trump þegar hann sat í embætti forseta Bandaríkjanna. Hún þekkir því vel til hans og eiginkonu hans, Melania Trump, og hefur ekki verið hrædd við að skýra frá einu og öðru frá embættistíma Trump. Það hefur hún gert bæði í bók, sem hún skrifaði, og í viðtölum. Í nýlegu viðtali við CNN sagði hún að Trump sé nú Lesa meira
„Hróp á hjálp“ – Skefur ekki utan af því í umsögn um nýja bók Jared Kushner
PressanÁ næstu dögum kemur bókin „Breaking History“ út en þetta er endurminningabók Jared Kushner og fjallar um tíma hans í Hvíta húsinu en hann var ráðgjafi tengdaföður síns, Donald Trump, á meðan hann gegndi forsetaembættinu. En miðað við það sem Dwight Garner, bókarýnir hjá The New York Times, segir þá er það algjör tímaeyðsla að lesa bókina. Garner er greinilega brugðið yfir hversu léleg bókin er og Lesa meira
Liz Cheney tapaði í forvali Repúblikana – Trump gleðst
EyjanEins og spáð hafði verið tapaði Liz Cheney í forvali Repúblikanaflokksins í Wyoming í gær. Það liggur því ljóst fyrir að þingsetu hennar lýkur í haust en hún hefur setið í fulltrúadeild Bandaríkjaþings síðan 2017. Donald Trump, fyrrum forseti, hafði vonast til að Cheney myndi tapa en það hefur farið mjög illa í hann að hún hefur verið gagnrýnin á hann og embættisfærslur hans. Hún Lesa meira
Segir að Trump geti fengið 10 ára fangelsisdóm
Pressan„Við erum að tala um mjög alvarlegan glæp hér.“ Þetta sagði Lisa Rubin, sérfræðingur í lögum, í samtali við Insider um mál Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseta, í kjölfar húsleitar alríkislögreglunnar FBI á heimili hans í Mar-a–Lago í síðustu viku. Hún sagði að út frá þeim upplýsingum, sem hafa komið fram um að FBI hafi leitað að leyniskjölum sem Trump er sagður hafa tekið með sér úr Hvíta Lesa meira