Tvö dönsk börn hafa látist af völdum COVID-19
PressanDanska smitsjúkdómastofnunin staðfesti í gær að barn á aldrinum 0-9 ára hefði nýlega látist af völdum COVID-19. Tvö dönsk börn á þessum aldri hafa látist af völdum sjúkdómsins frá upphafi heimsfaraldursins en í byrjun febrúar var staðfest að barn á þessum aldri hefði látist af völdum sjúkdómsins. Á heimasíðu smitsjúkdómastofnunarinnar kemur fram að 22.380 börn á Lesa meira
Gildar bankabækur Dana
PressanÓhætt er að segja að bankabækur Dana séu ansi gildar þessi misserin. Innlán þeirra eru nú þau þriðju hæstu í sögunni. Samtals eiga þeir 1.038 milljarða danskra króna á bankareikningum sínum en það jafngildir rúmlega 20.000 milljörðum íslenskra króna. Þetta kemur fram í nýju tölum frá danska seðlabankanum og miðast þær við stöðuna í júní. Lesa meira
Neitar að láta bólusetja börnin sín – Gæti misst forræðið
Pressan44 ára tveggja barna danskur faðir, Kim Mulvad, á á hættu að missa forræði yfir tveimur börnum sínum því hann neitar að láta bólusetja þau gegn kórónuveirunni. Hann á 13 ára stúlku og 16 ára pilt með fyrrum eiginkonu sinni, Rikke, en ólíkt henni þá er hann mjög mótfallinn því að börnin verði bólusett. „Ég er ekki Lesa meira
50.000 tilkynningar í Danmörku um aukaverkanir af völdum bóluefna gegn COVID-19
PressanDönsku lyfjastofnuninni hafa nú borist um 50.000 tilkynningar um aukaverkanir af völdum bóluefna gegn COVID-19. Aldrei fyrr hefur svo mikill fjöldi tilkynninga um aukaverkanir borist stofnuninni. Flestar snúast um vægar aukaverkanir en fáar um alvarlegar. Í venjulegu árferði berast stofnuninni um 7.000 tilkynningar um aukaverkanir bóluefna og lyfja. Fyrir nokkrum vikum höfðu 47 konur tilkynnt um Lesa meira
Áttunda hvert 12-15 ára danskt barn hefur fengið bóluefni gegn COVID-19
PressanUm miðjan júlí var byrjað að bólusetja 12-15 ára börn í Danmörku gegn COVID-19 og gátu foreldrar þeirra þá pantað tíma fyrir þau í bólusetningu. Í gær var staðan sú að rúmlega 12% af aldurshópnum hafði þegar fengið einn skammt af bóluefni en aðeins er bólusett með bóluefnum frá Moderna og Pfizer/BioNTech í Danmörku. Upphaflega átti ekki að bjóða upp Lesa meira
Óhugnanlegar grunsemdir í Danmörku – Undirbýr hópur háttsettra hermanna valdarán?
PressanGetur verið að í Danmörku sé hópur valdamikilla aðila, þar á meðal háttsettra hermanna, sem er að undirbúa valdarán? Þessari spurningu velta margir fyrir sér þessa dagana í kjölfar brottreksturs Lars Gram úr varaliði úrvalssveita hersins. Hann var rekinn úr varaliðinu og þar með hernum nýlega eftir að hann heimsótti tvo félaga sína úr úrvalssveitunum Lesa meira
Dönsk kona fékk blóðtappa eftir bólusetningu með bóluefni frá Janssen
PressanDönsk heilbrigðisyfirvöld skýrðu frá því í gær að ung kona hefði, að því er talið er, fengið sjaldgæfa tegund blóðtappa, eftir bólusetningu með bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni. Þetta er fyrsta skráða tilfellið í Danmörku. Danska ríkisútvarpið (DR) skýrir frá þessu. Bóluefnin frá Janssen og AstraZeneca eru ekki notuð í hinni opinberu bólusetningaáætlun í Danmörku en hins vegar getur fólk fengið bólusetningu Lesa meira
TikTok-maðurinn verður áfram í gæsluvarðhaldi – Kallaði sig „Fljúgandi grísinn“
PressanÞann 18. maí síðastliðinn handtók lögreglan í Kaupmannahöfn 29 ára mann vegna gruns um sjö gróf kynferðisbrot, þar á meðal nauðganir, gegn ungum stúlkum. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Á mánudaginn fór lögreglan fram á að gæsluvarðhaldið yrði framlengt og varð dómarinn við því og úrskurðaði manninn í áframhaldandi gæsluvarðhald til 10. ágúst. Maðurinn neitar Lesa meira
Danir eiga eina milljón skammta af bóluefnum á lager – „Algjörlega óskiljanlegt“
PressanDanir eiga nú rúmlega eina milljón skammta af bóluefnum AstraZeneca og Janssen gegn kórónuveirunni á lager. Þessi bóluefni eru ekki notuð í hinni opinberu bólusetningaáætlun í Danmörku og hafa því safnast upp í geymslum sóttvarnastofnunarinnar en búið var að semja um kaup á þeim löngu áður en ákveðið var að nota þau ekki. Danska ríkisútvarpið, DR, skýrir frá þessu. Fram kemur að Lesa meira
Nauðgaði eiginkonunni margoft – Fékk aðra karla til að nauðga henni
Pressan36 ára karlmaður var í vikunni dæmdur í sjö ára fangelsi af dómstól í Sønderborg í Danmörku. Hann var ákærður fyrir að hafa ítrekað nauðgað eiginkonu sinni, sem er andlega fötluð, og að hafa fengið aðra menn til að nauðga henni. Að auki var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa nauðgað fyrrum eiginkonu sinni þrisvar sinnum Lesa meira