Vinsæll hægrisinnaður fjölmiðlamaður og bóluefnaandstæðingur lést af völdum COVID-19
PressanHinn hægrisinnaði útvarps- og sjónvarpsmaður Dick Farrel er látinn af völdum COVID-19. Hann var harður gagnrýnandi Anthony Fauci, helsta smitsjúkdómafræðings Bandaríkjanna, og hvatti fólk til að láta ekki bólusetja sig gegn kórónuveirunni. Farrel lýsti Fauci sem „valdasjúkum lygalaupi“ sem væri hluti af samsæri „valdasjúkra frjálslyndra klikkhausa“ og hvatti hlustendur sína til að láta ekki bólusetja sig. Hann skipti að sögn um skoðun varðandi Lesa meira
Ný rannsókn – Væg veikindi barna af völdum kórónuveirunnar og skammvinn eftirköst
PressanNiðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að fá börn veikjast alvarlega af COVID-19 í kjölfar kórónuveirusmits. Það sama á við um langtímaáhrif smits, þau eru sjaldgæf hjá börnum. Algeng einkenni hjá börnum eru höfuðverkur og þreyta. Tvö af hverjum þremur börnum fá engin sjúkdómseinkenni. Það voru vísindamenn við Kings College London sem gerðu rannsóknina en hún hefur verið birt í læknaritinu The Lancet. Lesa meira
Lést af völdum COVID-19 – Vildi ekki láta bólusetja sig
Pressan45 ára bandarísk kona, Tricia Jones, smitaðist af Deltaafbrigði kórónuveirunnar og lést af völdum COVID-19 í byrjun júní. Hún hafði hafnað bólusetningu gegn kórónuveirunni því hún óttaðist aukaverkanir. Fox 4 hefur þetta eftir móður hennar, Deborah Carmichael. Jones lést 9. júní. Carmichael sagði að henni hafi sjálfri liðið illa eftir bólusetningu og að það hafi hugsanlega hrætt Jones. „Ég gat ekki sannfært hana um að Lesa meira
Læknar telja að næsti stóri vandinn í heilbrigðismálum sé skammt undan – Tengist COVID-19
PressanÞað hefur örugglega ekki farið fram hjá neinum að nú erum við í miðjum alheimsvanda hvað varðar heilbrigðismál vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Margt bendir til að næsta stóra vandamálið, tengt heilbrigðismálum, sé skammt undan og tengist COVID-19. Í grein í vísindaritinu The New England Journal of Medicine segja tveir bandarískir læknar, þeir Steven Philips og Michelle A. Williams, að eftirköst COVID-19 smita séu næsta stóra heilbrigðisvandamálið á heimsvísu. Williams er deildarforseti Lesa meira
Tvær lyfjaverksmiðjur fá leyfi til að framleiða bóluefni Pfizer gegn COVID-19
PressanTvær lyfjaverksmiðjur, annars vegar í Þýskalandi og hins vegar í Sviss, fengu í gær leyfi Evrópsku lyfjastofnunarinnar, EMA, til að framleiða bóluefni Pfizer/BioNTech gegn kórónuveirunni. Önnur verksmiðjan er í Reinbek í Þýskalandi en hin er í Stein í Sviss. Þýska lyfjafyrirtækið Allergopharma á verksmiðjuna í Reinbek og Novartis þá í Stein. Verksmiðjurnar munu annast mismunandi hluta af framleiðsluferlinu. EMA reiknar með að verksmiðjurnar muni leggja Lesa meira
COVID-19 hneyksli skekur Svíþjóð – Tóku 100.000 sýni en sendu þau ekki í rannsókn
PressanSænska lögreglan rannsakar nú það sem talið er vera umfangsmikið svindl með COVID-19 sýnatökur. Grunur leikur á að fyrirtæki eitt hafi tekið 100.000 sýni og rukkað 1.500 sænskar krónur fyrir hvert þeirra en það svarar til rúmlega 21.000 íslenskra króna. En sýnin voru aldrei send í rannsókn og þeir sem sýnin voru tekin úr fengu þau Lesa meira
Nýtt bóluefni gegn COVID-19 sýnir 90% virkni
PressanBandaríska lyfjafyrirtækið Novavax reiknar með að sækja um markaðsleyfi fyrir bóluefni fyrirtækisins gegn COVID-19 í september. Fyrirtækið segir að bóluefnið sýni mjög góða virkni og veiti einnig góða vernd gegn nýjum afbrigðum veirunnar. Það stefnir því í að enn bætist í vopnabúr okkar gegn kórónuveirunni sem hefur herjað á heimsbyggðina síðan snemma árs 2020. Þetta Lesa meira
Handahófskenndur útdráttur í bólusetningar
FréttirÍ vikunni verður byrjað að boða fólk handahófskennt í bólusetningu gegn kórónuveirunni. En áður en byrjað verður á því verður reynt að tæma alla forgangslista en nokkur þúsund manns eru eftir á þeim listum. Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, að þeir sem eru Lesa meira
100 ára gamalt bóluefni virðist virka gegn kórónuveirunni
PressanNú standa yfir rannsóknir um allan heim á bóluefni gegn berklum en svo virðist sem þetta 100 ára gamla bóluefni virki gegn kórónuveirunni og veiti vernd gegn COVID-19. Bóluefnið heitir Calmette og var þróað gegn berklum fyrir um 100 árum og er enn notað. Rannsóknir hafa sýnt að bóluefnið veitir 68% vernd gegn COVID-19 sem er meiri Lesa meira
Hér eru mestu líkurnar á að alvarlega veikir COVID-19 sjúklingar deyi
PressanEf maður er alvarlega veikur af COVID-19 eru verstu löndin til að vera í, í Afríku. Þetta kemur fram í umfjöllun BBC um nýja rannsókn sem hefur verið birt í hinu viðurkennda læknariti The Lancet. „Dánartíðnin er miklu hærri í Afríku en annars staðar í heiminum vegna skorts á nauðsynjum,“ er haft eftir Bruce Biccard, prófessor við háskólann í Cape Town í Suður-Afríku. Hann sagði Lesa meira