fbpx
Mánudagur 23.desember 2024

Covid-19

11 ára danskur drengur lést af völdum COVID-19

11 ára danskur drengur lést af völdum COVID-19

Pressan
27.10.2021

Á þriðjudag í síðustu viku lést 11 ára danskur drengur af völdum COVID-19. Hann greindist með kórónuveiruna tveimur dögum áður. Hann var ekki með neina alvarlega undirliggjandi sjúkdóma. Sundhedspolitisk Tidsskrift skýrði frá þessu í gær. Nordjyske segir að drengurinn hafi búið á norðanverðu Jótlandi. Að sögn dönsku smitsjúkdómastofnunarinnar er þetta fyrsta dauðsfallið af völdum COVID-19 í aldurshópnum 10 til 19 ára. Lesa meira

15 ára stúlka lést af völdum COVID-19 daginn sem hún átti að fá bóluefni

15 ára stúlka lést af völdum COVID-19 daginn sem hún átti að fá bóluefni

Pressan
05.10.2021

Jorja Halliday, 15 ára stúlka frá Portsmouth á Englandi, lést af völdum COVID-19 daginn sem hún átti að fá bóluefni gegn kórónuveirunni. Þetta segir fjölskylda hennar en Jorja lést á Queen Alexandra sjúkrahúsinu á þriðjudag í síðustu viku, fjórum dögum eftir að hún greindist með COVID-19. The Guardian hefur eftir móður hennar, Tracey Halliday, að Jorja hafi verið „yndisleg stúlka“, vinmörg og hæfileikarík í kickboxi og góð þegar kom að tónlist. „Hún var mjög Lesa meira

Ný eftirköst COVID-19 smita uppgötvuð – Hljóma skelfilega

Ný eftirköst COVID-19 smita uppgötvuð – Hljóma skelfilega

Pressan
01.10.2021

Japanskir læknar hafa tilkynnt um mjög óvenjuleg eftirköst COVID-19 smita. Áður var vitað að þreyta og skert lyktar- og bragðskyn væru meðal eftirkasta smita en það sem japönsku læknarnir hafa uppgötvað hefur ekki verið tilkynnt um áður. Í grein í vísindaritinu BMC Infectious Diseases lýsa þeir þessum eftirköstum. Þeir segja meðal annars frá 77 ára karlmanni sem veiktist af COVID-19 en Lesa meira

„Ekki fara á sjúkrahús og komið ástvinum ykkar út af gjörgæsludeildum“ – Ný og hættuleg samsæriskenning breiðist út

„Ekki fara á sjúkrahús og komið ástvinum ykkar út af gjörgæsludeildum“ – Ný og hættuleg samsæriskenning breiðist út

Pressan
27.09.2021

Fyrirsögnin hér að ofan er tekin úr hvatningu til efasemdarfólks um bólusetningar gegn kórónuveirunni sem fer mikinn á mörgum síðum á Facebook sem þetta efasemdarfólk sækir. Hún er sett fram í kjölfar nýrrar samsæriskenningar sem breiðist nú nokkuð hratt út. Kenningin gengur út á að læknar komi í veg fyrir að óbólusett fólk fái svokallaða „kraftaverkameðferð“ við COVID-19 og láti það viljandi Lesa meira

Andstæðingar bólusetninga ráðast harkalega á 17 ára COVID-19 veika stúlku

Andstæðingar bólusetninga ráðast harkalega á 17 ára COVID-19 veika stúlku

Pressan
02.09.2021

Hún er sökuð um að vera „leikkona á launaskrá yfirvalda“ eftir að hún hvatti ungt fólk til að láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni sem herjar á heimsbyggðina. Þetta er Maisy Evans frá Newport í Wales en hún liggur nú á sjúkrahúsi veik af COVID-19. Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að andstæðingar bólusetninga og samsæriskenningasmiðir hafi beint spjótum sínum að henni á samfélagsmiðlum eftir Lesa meira

Kom heim af sjúkrahúsi eftir COVID-19 innlögn – Aðkoman var skelfileg

Kom heim af sjúkrahúsi eftir COVID-19 innlögn – Aðkoman var skelfileg

Pressan
02.09.2021

Nýlega var Lisa Steadman, sem býr í Flórída, útskrifuð af sjúkrahúsi eftir sex daga innlögn en hún var með COVID-19. Það var ekki góð sjón sem mætti henni þegar hún kom heim og er hún í miklu áfalli og sorg vegna málsins. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook. Þar segir hún að eiginmaður hennar, Ron, hafi einnig verið Lesa meira

Átta hafa sótt um bætur vegna aukaverkana eftir bólusetningu gegn COVID-19

Átta hafa sótt um bætur vegna aukaverkana eftir bólusetningu gegn COVID-19

Fréttir
27.08.2021

Átta umsóknir um bætur vegna aukaverkana af völdum bólusetninga gegn COVID-19 hafa borist til Sjúkratrygginga Íslands. 3.011 tilkynningar um aukaverkanir hafa borist til Lyfjastofnunar, þar af um 191 alvarlega. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Berglindi Karlsdóttur, deildarstjóra hjá Sjúkratryggingum Íslands, að málin átta sem eru komin inn á borð stofnunarinnar séu misalvarleg. Lesa meira

Guðmundur læknir gagnrýnir bólusetningar gegn kórónuveirunni – Áhættusöm tilraun

Guðmundur læknir gagnrýnir bólusetningar gegn kórónuveirunni – Áhættusöm tilraun

Fréttir
27.08.2021

Guðmundur Karl Snæbjörnsson, sérfræðingur í heimilislækningum, gagnrýnir bólusetningaáætlun stjórnvalda og stefnu þeirra um að bólusetja sem flesta á sem skemmstum tíma þrátt fyrir að bóluefnin veiti minni vernd en lofað var. Þetta kemur fram í grein sem Guðmundur birtir í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni „Eiga börn að taka þátt í tilrauninni?“. Í upphafi greinarinnar Lesa meira

Þekktur útvarpsmaður og efasemdamaður um bólusetningu gegn COVID-19 lést af völdum COVID-19

Þekktur útvarpsmaður og efasemdamaður um bólusetningu gegn COVID-19 lést af völdum COVID-19

Pressan
24.08.2021

Phil Valentine, 61 árs útvarpsmaður í Nashville í Bandaríkjunum, lést á laugardaginn af völdum COVID-19. WWTN Radio, vinnuveitandi hans, tilkynnti þetta á Twitter. Valentine var þekktur íhaldsmaður og efasemdarmaður um bólusetningar gegn COVID-19. Rúmur mánuður er síðan hann tilkynnti að hann hefði greinst með COVID-19. Í útvarpsþætti sínum hafði hann ítrekað gert lítið úr þörfinni á að láta bólusetja sig gegn veirunni og í desember sagði Lesa meira

Frænka Trump – „Hann platar mig ekki – hann var hræddur“

Frænka Trump – „Hann platar mig ekki – hann var hræddur“

Pressan
16.08.2021

Það kom heimsbyggðinni vægast sagt á óvart í október þegar fréttir bárust af því að Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseti, væri með COVID-19. Það þurfti að leggja hann inn á hersjúkrahús vegna veikindanna. Eftir þriggja daga innlögn og læknismeðferð „sýndi“ Trump umheiminum að sjúkdómurinn, sem hann hafði ítrekað gert lítið úr, hefði lítil áhrif á hann og flaug hann þá Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af