Þetta er síðasta myndin af henni – Nú er líkið fundið
Pressan02.08.2022
Dularfullt hvarf Christina Powell þann 5. júlí hefur valdið ættingjum hennar og lögreglunni heilabrotum. Ekki dró úr heilabrotunum á mánudag í síðustu viku þegar lík hennar fannst í bifreið hennar sem hafði staðið við verslunarmiðstöð í San Antonio í eina viku. Það var öryggisvörður sem fann líkið síðdegis á mánudaginn á bílastæði Huebner Oaks Center sem er aðeins nokkra kílómetra frá heimili hennar í San Antonio. Lesa meira