Í fyrsta sinn í 300 ár er eyjan opin fyrir almenning
Pressan15.08.2020
Í fyrsta sinn í 300 ára hefur Sipson eyjan undan strönd Cape Cod í Bandaríkjunum verið opnuð fyrir almenningi. Eyjan hefur verið í einkaeigu síðan 1711 þegar Monomoyick ættbálkurinn seldi hvítum landnámsmönnum hana. Nú er eyjan í eigu Sipson Island Trust sem vonast til að geta komið eyjunni í fyrra horf með sjónarmið frumbyggja Norður-Ameríku, um að land sé gjöf sem allir geta notað, að leiðarljósi. Lesa meira