Metfjöldi flóttamanna reynir að komast yfir Ermasund í smábátum
PressanFjöldi þeirra flóttamanna og annarra sem reyna að komast ólöglega til Bretlands með því að sigla yfir Ermarsund hefur aldrei verið meiri en nú. Það sem af er ári hafa fleiri reynt að sigla yfir Ermarsund en allt síðasta ár. Fjöldinn er nú orðinn tíu sinnum meiri en 2018. Á miðvikudag í síðustu viku stöðvuðu yfirvöld 15 báta með Lesa meira
Bretar hafa tryggt sér 230 milljónir skammta af hugsanlegu bóluefni gegn kórónuveirunni
PressanMeð tveimur nýjum samningum hafa bresk stjórnvöld tryggt sér 230 milljónir skammta af hugsanlegu bóluefni gegn kórónuveirunni. Á mánudaginn var skrifað undir samninga um kaup á 90 milljónum skammta af hugsanlegu bóluefni. Annar samningurinn er við fyrirtækin Pfizer og BioNTech sem vinna saman að þróun bóluefnis. Bretar hafa nú tryggt sér 30 milljónir skammta af Lesa meira
Önnur bylgja kórónuveirunnar i vetur gæti orðið verri en sú fyrsta
PressanEf önnur bylgja kórónuveirunnar skellur á Bretlandi næsta vetur gæti hún orðið enn verri en sú fyrsta. Önnur bylgja gæti orðið til þess að 120.000 manns, til viðbótar, látist af völdum veirunnar. Þetta sýnir nýtt reiknilíkan breskra vísindamanna. Heilbrigðisyfirvöld báðu vísindamenn um að reikna út hvernig versta sviðsmyndin gæti orðið. Niðurstaðan er að á milli Lesa meira
Veðurfræðingar trúðu ekki eigin augum þegar þeir sáu ratsjármyndina
PressanBreskir veðurfræðingar ráku upp stór augu síðdegis á föstudaginn þegar þeir sáu meðfylgjandi ratsjármynd af suðausturhluta landsins. Svo var að sjá að ský væru yfir Lundúnum, Kent og Sussex en engin rigning var á þessum slóðum og ekki hafði verið gert ráð fyrir skýjuðu veðri. „Það rignir ekki í Lundúnum, Kent eða Sussex en ratsjáin Lesa meira
Breskir vísindamenn þróa bóluefni gegn kórónuveirunni – Óttast að Bandaríkin „taki það“
PressanBreskir vísindamenn vinna hörðum höndum að því að þróa bóluefni gegn kórónuveirunni sem veldur COVID-19. Robin Shattock, prófessor við Imperial College í Lundúnum, gegnir lykilhlutverki í þessari vinnu. Hann segist hafa fengið skilaboð um að ekki megi framleiða hugsanlegt bóluefni í Bandaríkjunum. Breska ríkisstjórnin óttast að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, „taki bóluefnið“ og leyfi ekki útflutning Lesa meira
Boris Johnson lofar Bretum miklum opinberum fjárfestingum
PressanBoris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, lofar samlöndum sínum miklum opinberum framkvæmdum og fjárfestingum á næstunni, hann segir umfangið verða í „Roosevelt-stíl“. Þar vísar hann til „New Deal“ áætlunar Franklin D. Roosevelt, Bandaríkjaforseta, sem skapaði mörg ný störf við opinberar framkvæmdir og átti stóran hlut að máli við að koma Bandaríkjunum í gegnum kreppuna miklu á fjórða áratug síðustu aldar. Johnson segir að Lesa meira
Breskir sérfræðingar vara við annarri bylgju kórónuveirunnar
PressanÞað er raunveruleg hætta á að önnur bylgja kórónuveirufaraldursins, sem veldur COVID-19, ríði yfir Bretlandseyjar að mati þarlendra sérfræðinga. Þessa spá setja þeir fram áður en Bretar hafa náð sér út úr fyrstu bylgju heimsfaraldursins og eru enn að vinna að opnun samfélagsins á nýjan leik. Sérfræðingarnir segja miklar líkur á að margir staðbundnir faraldrar komi Lesa meira
Breskir bílaframleiðendur skera mikið niður
PressanLítið hefur selst af lúxusbílum í heimsfaraldri kórónuveiru og nú bregðast bresku bílaframleiðendurnir Aston Martin, Bentley og McLaren við þessu með því að segja mörg þúsund manns upp störfum. Á síðustu tveimur vikum hafa fyrirtækin tilkynnt að rúmlega 3.000 manns verði sagt upp. CNN skýrir frá þessu. Á föstudaginn tilkynnti Bentley að 1.000 manns verði Lesa meira
Bretar vilja veita þremur milljónum Hong Kong-búa ríkisborgararétt
PressanDominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands, sagði fyrir helgi að Bretar muni halda áfram að verja réttindi íbúa í Hong Kong fyrir Kína. Bretar eru af þeim sökum reiðubúnir til að veita tæplega þremur milljónum Hong Kong-búa breskan ríkisborgararétt. Þetta er svar Breta við fyrirætlunum kínverskra stjórnvalda um að lögleiða ný öryggislög í Hong Kong sem var Lesa meira
Hálf milljón breskra barna sveltur
PressanFátækustu og viðkvæmustu fjölskyldur Bretlands hafa ekki efni á nægum mat handa öllum fjölskyldumeðlimum alla daga. Mörg börn úr þessum fjölskyldum treysta á ókeypis mat, sem þau fá í skólanum, en þar sem skólar eru lokaðir fá þau ekki þessar máltíðir og jafnvel ekkert í staðinn. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar sem Food Foundation, sem Lesa meira