Lítill árangur af kvöldverðarfundi leiðtoga ESB og Bretlands í gærkvöldi – Samningslaust Brexit færist nær
EyjanBoris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fór til Brussel síðdegis í gær til að funda með Ursula von der Leyen, formanni framkvæmdastjórnar ESB, um samning á milli ESB og Bretlands um tollamál og fleira. Núverandi samningur gildir til áramóta en ef samningar nást ekki verður svokallað „hart Brexit“ staðreynd frá áramótum. Vonast hafði verið til að fundur þeirra myndi skila árangri en svo varð Lesa meira
Fundu eitt tonn af kókaíni í bananamauki
PressanBreskir tollverðir fundu rúmlega eitt tonn af kókaíni í bananamauksfarmi sem kom með skipi frá Kólumbíu. Fíkniefnin fundust við hefðbundna leit í flutningaskipi þann 12. nóvember síðastliðinn. The Independent skýrir frá þessu. Fram kemur að skipið hafi lagst að bryggju í London Gateway Port nærri ármynni Thames. Skipið átti síðan að sigla áfram til Hollands. Í heildina var um 1.060 kíló af kókaíni Lesa meira
Þeim sem neita að láta bólusetja sig við kórónuveirunni verður hugsanlega meinaður aðgangur að mörgum stöðum, segir ráðherra
PressanNadhim Zahawi, ráðherra bólusetninga í Bretlandi, segir að þeim sem ekki vilja láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, verði hugsanlega meinaður aðgangur að mörgum stöðum. Til dæmis geti svo farið að sjúkrahús muni krefjast staðfestingar á að fólk hafi verið bólusett áður en það fær aðgang að þeim. Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að Zahawi telji það Lesa meira
Skotar vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði sem fyrst
PressanÞjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði Skotlands ætti að fara fram á næsta kjörtímabili skoska þingsins sem hefst á næsta ári. Þetta segir Nicola Sturgeon leiðtogi skosku heimastjórnarinnar sem segist ætla að berjast fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram. Í samtali við BBC sagði Sturgeon, sem er leiðtogi Skoska þjóðernisflokksins, að það sé „fjöldi ástæðna fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla ætti að fara fram á fyrri Lesa meira
Bretar segjast hafa náð stjórn á kórónuveirufaraldrinum á nýjan leik
PressanMatt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, sagði í gær að Bretar hafi náð stjórn á kórónuveirufaraldrinum á nýjan leik. „Við höfum náð stjórn á þessari veiru á nýjan leik,“ sagði ráðherrann. Bretar eru nú að undirbúa sig undir að slaka aðeins á þeim sóttvarnaaðgerðum sem gripið hefur verið til að undanförnu í baráttunni við faraldurinn. Boris Johnson, forsætisráðherra, sagðist í gær Lesa meira
Gekk til liðs við Íslamska ríkið – Biður nú um fyrirgefningu og vill koma heim
PressanÁrið 2015 hélt Shamima Begum til Sýrlands ásamt tveimur öðrum unglingsstúlkum, hún var þá 15 ára, til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið. Hún giftist vígamanni og eignaðist þrjú börn með honum. Þau eru öll sögð látin sem og eiginmaður hennar. Hún dvelur nú sjálf í al-Roj flóttamannabúðunum í Sýrlandi. Bresk stjórnvöld hafa svipt Lesa meira
Tvíbent jólagjöf Boris Johnson til bresku þjóðarinnar – Gæti verið Trójuhestur
PressanBoris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur tilkynnt að slakað verði á sóttvarnaaðgerðum, vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar, um jólin. Þá mega fjölskyldur hittast í fimm daga. En þetta getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir útbreiðslu veirunnar að mati sérfræðinga bresku ríkisstjórnarinnar. Faraldurinn hefur sótt í sig veðrið víða um Evrópu á undanförnum vikum og er Bretland þar engin undantekning. Yfirvöld í Lesa meira
Boris Johnson í sóttkví – Fundaði með þingmanni sem greindist með COVID-19
PressanBoris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er kominn í sóttkví. Þetta gerðist eftir að í ljós kom að þingmaðurinn Lee Anderson var með COVID-19 en Johnson fundaði nýlega með honum. Anderson fékk einkenni COVID-19 og fór í sýnatöku og var niðurstaðan jákvæð. Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að rakningateymi heilbrigðisyfirvalda hafi haft samband við Johnson og sagt honum að hann þyrfti að fara í sóttkví vegna smits Anderson. Johnson tísti um þetta Lesa meira
„Hryllingshússparið“ sakfellt fyrir morð
PressanHryllingsmyndaaðdáandinn Nathan Maynard Ellis og unnusti hans, David Leesley, voru nýlega fundnir sekir um að hafa myrt Julia Rawson í Tipton á Englandi. Þeir lokkuðu hana inn í „hryllingshúsið“ sitt eftir að hafa hitt hana þegar þeir voru úti að skemmta sér. Maynard-Ellis er sagður hafa verið haldinn nánast morðþráhyggju og aðdáun á raðmorðingjum. Fyrir dómi Lesa meira
Óvænt áhrif kórónuveirusmits í dönskum minkum – Beikonskortur á Englandi
PressanUm helgina lögðu bresk stjórnvöld algjört bann við komum fólks frá Danmörku til Bretlands og einnig var lagt bann við að flugvélar, sem koma frá Danmörku, fái að lenda í Englandi. Ástæðan er að stökkbreytt kórónuveira hefur fundist í dönskum minkum og hefur hún borist í fólk. Þetta stökkbreytta afbrigði getur, ef allt fer á Lesa meira