Matur í maga eða hiti í húsinu? Erfiður vetur fram undan hjá mörgum Bretum
PressanMikil hækkun á orkuverði mun reynast fátækustu Evrópubúunum erfið í vetur. Líklega verður ástandið einna verst í Bretlandi þar sem milljónir manna standa frammi fyrir erfiðu vali, vali um hvort þeir vilja mat í magann eða hita á heimili sínu. Á síðasta ári var dapurlegt metið slegið í Bretlandi varðandi orkuverð og þá vöruðu sérfræðingar Lesa meira
Segja að Rússar hafi stolið uppskriftinni að bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni
PressanBreska leyniþjónustan segir að Rússar hafi stolið uppskriftinni að bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni og sé rússneska bóluefnið Sputnik V byggt á sömu uppskrift. Áður var vitað að bóluefnin voru búin til með sömu aðferðum en nú virðist sem að um nákvæmlega sömu aðferðir sé að ræða, að minnsta kosti ef leyniþjónustan hefur rétt fyrir sér. Daily Mail skýrir frá þessu. Þegar heimsfaraldur Lesa meira
Óbólusettar barnshafandi konur eru um fimmtungur veikustu COVID-19 sjúklinganna á Englandi
PressanTæplega fimmtungur veikustu COVID-19 sjúklinganna á Englandi síðustu mánuði voru óbólusettar barnshafandi konur. Þetta sýna tölur frá breska heilbrigðiskerfinu, NHS, sem hvetur barnshafandi konur til að láta bólusetja sig. Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að tölur sem ná frá 1. júlí til 30. september sýni að 17% þeirra COVID-19 sjúklinga sem þurftu að vera í öndunarvél voru óbólusettar Lesa meira
Telja að morðingi Sarah Everard hafi jafnvel framið fleiri afbrot
PressanÍ gær var breski lögreglumaðurinn Wayne Couzens dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morðið á hinni 33 ára gömlu Sarah Everar í mars. Lögreglan er nú að rannsaka hvort Couzens hafi fleiri afbrot á samviskunni eftir að fram kom að bíll hans hafi sést við vettvang tveggja annarra afbrota. Couzens nam Everard á brott, nauðgaði henni, kyrkti og brenndi lík hennar og faldi síðan. Everard var ein á heimleið Lesa meira
Nýjar og hrollvekjandi upplýsingar um morðið á Sarah Everard komu fram fyrir dómi í gær
PressanÞann 10. mars síðastliðinn fannst hin 33 ára Sarah Everard látin. Þá var vika liðin síðan hún hvarf þegar hún var á heimleið í Lundúnum. Réttarhöld yfir morðingja hennar standa nú yfir í Lundúnum og í gær komu nýjar og hrollvekjandi upplýsingar fram. Það hefur lengi verið vitað að það var lögreglumaðurinn Wayne Couzens sem myrti Everard en hann hefur viðurkennt það. Fyrir Lesa meira
Bretar í miklum vanda – Íhuga að kalla herinn til starfa innanlands
PressanBretar glíma við risavaxið vandamál þessa dagana. Við útgöngu þeirra úr ESB hurfu 25.000 erlendir flutningabílstjórar á brott. Þetta veldur því að illa gengur að dreifa matvælum, eldsneyti og öðrum nauðsynjavörum. Nú er staðan orðin svo alvarleg að ríkisstjórn Boris Johnson íhugar að kalla herinn til starfa og láta hann taka að sér að dreifa olíu, mjólk og Lesa meira
Alþjóðleg glæpasamtök taka höndum saman til að auka sölu kókaíns
PressanSkipulögð bresk glæpasamtök starfa nú með fyrrum samkeppnisaðilum sínum, skipulögðum alþjóðlegum glæpasamtökum, við innflutning á meira magni kókaíns til Evrópu. Meðal samstarfsaðilanna er ítalska mafían. Þetta segir Lawrence Gibbons, hjá bresku National Crime stofnuninni, að sögn The Guardian. Hann segir að gögn sýni að bresk glæpagengi séu stöðugt að styrkja tengsl sín við önnur valdamikil evrópsk glæpagengi og sé þetta eftirtektarvert því Lesa meira
„Barnaskortur“ í Bretlandi gæti valdið efnahagslegum samdrætti
PressanBretar standa frammi fyrir „barnaskorti“ sem gæti leitt til „langvarandi efnahagslegrar stöðnunar“. Þetta segir hugveitan Social Market Foundation sem segir að fæðingartíðnin í landinu sé nú aðeins tæplega helmingur þess sem hún var á eftirstríðsárunum og þegar hún náði hámarki á sjöunda áratugnum. Þetta veldur hækkandi meðalaldri sem aftur getur leitt til efnahagslegrar stöðnunar eða samdráttar. Hugveitan segir að Lesa meira
Lögðu hald á 1,5 tonn af kókaíni í lystisnekkju undan strönd Englands
PressanSex voru handteknir í skútu undan strönd Plymouth í síðustu viku. Um var að ræða sameiginlega aðgerð bresku og áströlsku lögreglunnar. Um borð í skútunni fannst 1,5 tonn af kókaíni en verðmæti þess er sem nemur rúmlega 21 milljarði íslenskra króna. Skútan er skráð í Jamaíka. Einn Breti er meðal hinna handteknu en hinir eru frá Níkaragva. Lesa meira
Bresk sjúkrahús eiga á hættu að yfirfyllast af COVID-19 sjúklingum
PressanKórónuveirusmitum fer fjölgandi í Bretlandi og fjöldi COVID-19 sjúklinga á sjúkrahúsum hefur ekki verið meiri síðan 11. mars síðastliðinn. Á síðustu dögum fjölgaði innlögðum COVID-19 sjúklingum um rúmlega 1.000 og á annað hundrað hafa látist. BBC segir að um 1.000 af þeim rúmlega 8.000 COVID-19 sjúklingum sem liggja á sjúkrahúsum séu í öndunarvél. Samkvæmt nýjustu tölum þá greindust að meðaltali rúmlega Lesa meira