Smita sjálfboðaliða viljandi af kórónuveirunni
PressanBreskir sjálfboðaliðar verða vísvitandi sýktir af kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, í tengslum við rannsókn á hvort aukaverkanir fylgi bóluefni gegn henni. Þátttakendurnir verða fyrst sprautaðir með bóluefni og um mánuði síðar verða þeir sýktir af Sars-Cov-2 veirunni sem er kórónuveiran sem herjar á heimsbyggðina þessi misserin. Sky skýrir frá þessu. Tilraunin hefst í janúar en það eru bresk Lesa meira
Trump telur að bóluefni gegn kórónuveirunni verði tilbúið eftir 3-4 vikur
PressanDonald Trump, Bandaríkjaforseti, sagði í samtali við ABC News í gærkvöldi að hann telji að bandarískt bóluefni gegn kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, verði líklega tilbúið eftir 3 til 4 vikur. Þetta stangast á við mat flestra sérfræðinga á þessu sviði sem og embættismanna Trump. Trump kom fram á ABC News í gær og svaraði þar spurningum frá kjósendum. Meðal þess sem spurt var um er Lesa meira
Nokkrar algengar samsæriskenningar um kórónuveiruna
PressanÞegar erfiðleikar steðja að hefst sannkallað góðæri hvað varðar samsæriskenningar. Með tilkomu samfélagsmiðla varð dreifing slíkra kenninga mun auðveldari en áður og frá upphafi heimsfaraldurs kórónuveirunnar hafa margar samsæriskenningar verið á lofti í tengslum við faraldurinn og uppruna veirunnar. Nokkrar af algengustu og kannski vinsælustu kenningunum eru: Kórónuveiran er lífefnavopn. Í upphafi faraldursins var það Lesa meira
Verkefni aldarinnar – Þurfa 8.000 fraktvélar til að ferja bóluefni gegn COVID-19
PressanAlþjóðasamtök flugfélaga, IATA, segja að fram undan sé risastórt verkefni við að koma bóluefni gegn kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, til allra jarðarbúa. Segja samtökin að til að koma einum skammti til allra 7,8 milljarða jarðarbúa þurfi að nota 8.000 Boeing 747 fraktflutningavélar og að það þurfi að byrja að skipuleggja þetta núna. Lyfjafyrirtæki um allan heim keppast nú við að þróa Lesa meira
Stöðva tilraunir með lofandi bóluefni gegn COVID-19
PressanMiklar vonir hafa verið bundnar við bóluefni gegn kórónuveirunni sem lyfjafyrirtækið AstraZeneca er að þróa í samstarfi við vísindamenn í Oxford. Bóluefnið hefur verið nefnt „Oxfordbóluefnið“ því nokkrir færustu sérfræðingar heims í gerð bóluefnis hafa unnið að þróun þess. En nú er komið bakslag í þessa vinnu því tilraunir með bóluefnið hafa verið stöðvaðar eftir að einn þátttakandi Lesa meira
Vísindamenn hafa efasemdir um bóluefni Rússa og Kínverja
PressanÞegar rússnesk yfirvöld tilkynntu nýlega að bóluefni, þróað þar í landi, væri komið í framleiðslu höfðu margir efasemdir um virkni bóluefnisins. Nú setja margir vísindamenn einnig spurningarmerki við kínverskt bóluefni. Ástæðan fyrir efasemdum vísindamannanna er að bæði bóluefnin eru byggð á frekar einfaldri kvefveiru. Bóluefnið, sem kínverska fyrirtækið CanSinos, hefur þróað er byggt á breyttri útgáfu af adenoveiru gerð 5, Ad5, Lesa meira
Bandaríkin taka ekki þátt í alþjóðlegu samstarfi um bóluefni gegn kórónuveirunni
PressanBandaríkin ætla ekki að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi rúmlega 170 ríkja varðandi bóluefni gegn kórónuveirunni. Ríkin ætla að deila bóluefninu til að tryggja að sem flestir jarðarbúar fái aðgang að því. Judd Deere, talsmaður Hvíta hússins, sagði í yfirlýsingu að Bandaríkin vilji ekki láta spillt Kína og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina WHO stjórna sínum málum. Þess í stað muni Bandaríkin Lesa meira
Bóluefnasérfræðingarnir í Oxford segja að búast megi við fleiri heimsfaröldrum
PressanSarah Gilbert, prófessor við Oxford háskóla, stýrir vinnu vísindamanna við háskólann við þróun bóluefnis gegn kórónuveirunni sem nú herjar á heimsbyggðina. Miklar vonir eru bundnar við bóluefnið og að það verði tilbúið til notkunnar innan ekki svo langs tíma. Gilbert segir að hegðun og framferði okkar mannanna í tengslum við náttúruna auki hættuna á að veirur fari á flug um Lesa meira
Fauci varar við frumhlaupi í leyfisveitingum bóluefnis gegn kórónuveirunni
PressanAnthony Fauci, einn helsti smitsjúkdómasérfræðingur Bandaríkjanna, varar við frumhlaupi í leyfisveitingum bóluefnis gegn kórónuveirunni. Á mánudaginn sagði hann að ef leyft yrði að hefja notkun bóluefnis af neyðarástæðum þá gæti það skemmt fyrir tilraunum við þróun annarra bóluefna. Hann lét þessi ummæli falla eftir að embættismenn í Hvíta húsinu viðruðu hugsanlega möguleika á gefa út neyðarheimild Lesa meira
Þjóðverjar munu hugsanlega hefja bólusetningar gegn kórónuveirunni í janúar 2021
PressanKlaus Cichutek, yfirmaður þýska lyfjaeftirlitsins, segir að hugsanlega verði byrjað að bólusetja ákveðna þjóðfélagshópa í byrjun næsta ár. Nokkrir lyfjaframleiðendur eru nú að gera prófanir á fólki með hugsanlega bóluefni gegn kórónuveirunni og taka tugir þúsunda manna þátt í þessum tilraunum. Margir sérfræðingar telja að einhver bóluefni verði tilbúin til notkunar í árslok. Cichutek sagði að gögn Lesa meira