Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á
FókusSnorri Másson, ritstjóri með meiru, vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrum forsætisráðherra og formaður Miðflokksins, bankaði óvænt upp á fyrr í dag ásamt kollega sínum Bergþóri Ólafson, alþingismanni. Sigmundur Davíð og Bergþór voru þar mættir til „að ræða málin“ og voru skömmu síðar mættir inn í stofu hjá Snorra. Lesa meira
Bergþór segir stöðuna óboðlega: „Hvernig lentum við á þessum stað?“
Fréttir„Hvernig lentum við á þessum stað? Gátum við gert eitthvað betur á fyrri stigum. Hvað nú?“ Þessum spurningum varpar Bergþór Ólason fram í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag vegna þeirrar stöðu sem uppi er á Reykjanesi. „Tugir þúsunda íbúa á Reykjanesi búa nú við þá stöðu að híbýli þeirra hafa verið án hefðbundinnar húshitunar Lesa meira
Vilhjálmur vill stjórnarslit ef hvalveiðar verða ekki leyfðar á ný
EyjanFjölmennur fundur fór fram á Akranesi fyrr í kvöld vegna banns við veiðum á hvölum sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti degi áður en vertíðin átti að hefjast. Hefur ákvörðunin vakið óánægju hjá samstarfsflokkum flokks Svandísar, Vinstri grænna, í ríkisstjórn. Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. sem fær ekki að stunda fyrirhugaðar hvalveiðar kallaði ráðherrann kommúnista og Lesa meira
Bergþór Ólason: „Hvað ætli Eyþór hafi gert Bjarna?“
Eyjan„Það þótti undarleg sú mikla leynd sem var yfir samkomulagi sem forsætis-, fjármála- og samgönguráðherra undirrituðu með borgar- og bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu í liðinni viku. Þörfin fyrir leyndina varð þó öllum ljós þegar undirritað plaggið birtist loks sl. fimmtudag. Fyrstu viðbrögð undirritaðs þegar plöggin voru birt voru að hugsa „Hvað ætli Eyþór hafi gert Bjarna?“en Lesa meira
Kolbrún um Klaustursþingmenn: Hjákátleg sjálfsvorkunn gert þá að alþjóðlegu athlægi
EyjanKolbrún Bergþórsdóttir hefur verið dugleg við að láta Klaustursþingmennina fá það óþvegið í leiðurum Fréttablaðsins og dregur hvergi undan í dag þar sem hún sakar Bergþór Ólasson, þingmann Miðflokksins, um sjálfsvorkun. Tilefnið er ræða Bergþórs á Evrópuráðsþinginu á dögunum, sem Kolbrún segir „vandræðalega“: „Það var verulega vandræðalegt að sjá í seinni fréttatíma RÚV, síðastliðið þriðjudagskvöld, Lesa meira
Er þetta fyndnasta myndband dagsins? Guðmundur hermir eftir ræðu Bergþórs á Evrópuþinginu
FréttirGuðmundur Brynjólfsson, rithöfundur og djákni, birti í dag myndskeið sem vakið hefur mikla athygli og umfram allt kátínu. Í myndskeiðinu skopstælir Guðmundur ræðu Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, á Evrópuþinginu í gær. Þar var meðal annars rætt um Klaustursmálið, en Bergþór var einn af sexmenningunum á upptöku Báru Halldórsdóttur á samræðum þingmanna á Klaustur Bar í Lesa meira
„Ég er bara orðin þreytt á þessari vitleysu“ segir Bára um samsæriskenningar Miðflokksmanna
FréttirEkki er annað að skilja á ummælum þingmanna Miðflokksins um helgina að um skipulagða aðgerð, samsæri, hafi verið að ræða þegar Bára Halldórsdóttir tók samræður þeirra upp á Klaustri bar fyrir áramót eins og frægt er orðið. Á máli þeirra má ráða að um eitt stór samsæri hafi verið að ræða gegn þeim. Sigmundur Davíð Lesa meira
Saka stjórnarflokkana um að ganga á bak orða sinna
Eyjan„Afstaða hins nýja meirihluta liggur nú fyrir. Stjórnarflokkarnir nýta sér þær fordæmalausu aðstæður sem uppi eru og varða virðingu Alþingis og störf til að ganga á bak orða sinna varðandi samkomulag við stjórnarandstöðuna um skiptingu formennsku í nefndum.“ Svo segir í sameiginlegri yfirlýsingu þingflokka Samfylkingar, Pírata, Viðreisnar og Flokks fólksins þar sem stjórnarflokkarnir eru sagðir Lesa meira
Hanna Katrín segir heiminn kominn á hvolf: „You can’t make this shit up“
EyjanHanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar sem á sæti í umhverfis- og samgöngunefnd, er „gríðarlega“ ósátt við niðurstöður fundarins í morgun, þar sem Bergþór Ólason steig til hliðar og Jón Gunnarsson tekur við tímabundið. Tillagan um að hún yrði formaður var felld. Hún segist þó ekki ósátt við formennskusætið, heldur að stjórnarflokkarnir séu að nýta sér Lesa meira
Björn Leví ósáttur: „Miðflokkurinn á ekki þetta sæti“
EyjanBjörn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og áheyrnarfulltrúi í umhverfis- og samgöngunefnd, er ekki sáttur við niðurstöðu fundarins í morgun, þar sem Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, steig til hliðar sem formaður. Jón Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, mun taka við tímabundið meðan endanleg niðurstaða fæst, samkvæmt tilkynningu stjórnarflokkanna í morgun. Björn Leví segir að ríkisstjórnarflokkarnir hafi stutt Miðflokkinn í Lesa meira