Einn af ofurstum Pútíns ráðinn af dögum með bílsprengju
Fréttir07.09.2022
Bardin Artem Igorevich, ofursti, var útnefndur af Vladímír Pútín og ráðamönnum í Kreml til að stýra úkraínsku borginni Berdyansk sem er í Zaporizhzhia héraðinu. Í gær var hann ráðinn af dögum með bílsprengju í borginni. Upptaka, sem hefur gengið á samfélagsmiðlum, sýnir bíl ofurstans í ljósum logum örskömmu eftir að sprengjan sprakk. Igorevich var fluttur á sjúkrahús í skyndinu en lést þar af völdum áverka sinna að sögn Yaroslav Trofimov, Lesa meira