Í fyrsta sinn í 300 ár er eyjan opin fyrir almenning
PressanÍ fyrsta sinn í 300 ára hefur Sipson eyjan undan strönd Cape Cod í Bandaríkjunum verið opnuð fyrir almenningi. Eyjan hefur verið í einkaeigu síðan 1711 þegar Monomoyick ættbálkurinn seldi hvítum landnámsmönnum hana. Nú er eyjan í eigu Sipson Island Trust sem vonast til að geta komið eyjunni í fyrra horf með sjónarmið frumbyggja Norður-Ameríku, um að land sé gjöf sem allir geta notað, að leiðarljósi. Lesa meira
Óvæntar atvinnuleysistölur frá Bandaríkjunum
PressanÓvæntar atvinnuleysistölur bárust frá Bandaríkjunum í gær. 960.000 manns skráðu sig atvinnulausa vikuna á undan. Þetta eru auðvitað mjög margir en þykir samt ekki svo slæmt því reiknað hafði verið með að 1,1 milljón myndi skrá sig. Það virðist því sem vinnumarkaðurinn sé að taka hægt og rólega við sér miðað við þessar tölur frá U.S. Department of Labor. Lesa meira
Milljónir Bandaríkjamanna gætu misst húsnæði sitt á næstu mánuðum
PressanÁ næstu mánuðum gæti svo farið að allt að 40 milljónir Bandaríkjamanna verði bornar út af heimilum sínum. Ástæðan er hin mikla efnahagskreppa sem fylgir heimsfaraldri kórónuveirunnar og gerir mörgum ókleift að greiða húsaleigu sína. Þá er nær öll von um aðstoð frá alríkinu úti því samningaviðræður Repúblikana og Demókrata á Bandaríkjaþingi liggja niðri þessa Lesa meira
Þess vegna er Donald Trump hræddur við Kamala Harris
Pressan„Ósiðleg, óforskömmuð, ógeðsleg og óeðlileg.“ Þetta eru bara fjögur af þeim orðum sem Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur notað til að lýsa Kamala Harris, varaforsetaefni Joe Biden. Margir bandarískir stjórnmálaskýrendur segja að það sé aðeins hægt að túlka orð Trump á einn veg. „Donald Trump er skíthræddur við Kamala Harris.“ Sagði Nicolle Wallace þáttastjórnandi hjá MSNBC á miðvikudaginn og bætti við: „Af 11 konum, sem komu til greina sem varaforsetaefni, er Lesa meira
Ótrúleg uppgötvun – „Þau fullkomnustu sem ég hef séð á ferlinum“
PressanÍ síðustu viku gerðu bandarískir toll- og landamæraverðir ótrúlega uppgötvun sem er sögð vera söguleg. Starfsmenn Homeland Security komu einnig að málinu. Um miðjan júlí uppgötvuðu lögreglumenn holu sem var að myndast á landamærunum við Mexíkó og hélt jarðvegurinn sífellt áfram að síga. Þann 27. júlí var því byrjað að bora niður við þess holu Lesa meira
Hafa fundið kórónuveirutengdan sjúkdóm hjá 600 börnum
PressanTæplega 600 börn hafa þurft að liggja á sjúkrahúsum í Bandaríkjunum vegna bólgueinkenna sem tengjast COVID-19. Tölurnar, yfir fjölda barnanna, ná yfir fjögurra mánaða tímabil þar sem heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur verið í miklum vexti í Bandaríkjunum. Bandaríska smitsjúkdómastofnunin CDC skýrir frá þessu. Bólgueinkennin sem um ræðir eru fjölkerfa og geta valdið kawasaki heilkenninu en það er bólgusjúkdómur sem leggst aðallega Lesa meira
Lögreglumaður hafði upp á manninum sem skaut hann fyrir 49 árum
PressanÍ síðustu viku var Luis Archuleta, 77 ára, handtekinn í Espanola í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. Fyrir 49 árum síðan skaut hann Daril Cinquanta, lögreglumann, í magann í Denver í Colorado. Archuleta skaut Cinquanta þegar hann stöðvaði akstur hans til að skoða skilríki hans. Til átaka kom og Archuleta skaut lögreglumanninn. Tveimur árum síðar, 1973, var Archuleta fundinn sekur um árás á lögreglumann með banvænu vopni og dæmdur í fangelsi. Honum tókst að Lesa meira
97.000 börn smituðust af kórónuveirunni á tveimur vikum í Bandaríkjunum
PressanÁ aðeins tveimur vikum smituðust 97.000 börn af kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá þekktum bandarískum barnalæknum og hefur málið vakið mikla athygli. Frá upphafi faraldursins hafa 339.000 börn smitast af veirunni í Bandaríkjunum, fjórðungur þeirra smitaðist á tveimur síðustu vikunum í júlí. New York Times skýrir frá þessu. Eins og fyrr Lesa meira
Setja upp vegatálma í New York vegna kórónuveirunnar
PressanYfirvöld í New York hafa ákveðið að koma upp vegatálmum við brýr og göng til að finna hugsanlega smitbera frá „hættulegum“ ríkjum. Einnig eiga þeir sem virða ekki fyrirmæli um að vera í sóttkví sekt yfir höfði sér en hún getur numið sem nemur allt að 1,5 milljónum íslenskra króna. Með þessu vill borgarstjórinn, Bill de Blasio, senda skýr skilaboð um að aðgerðir Lesa meira
Á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér fyrir það sem hún gerði fyrir 32 árum
PressanÞann 23. júlí síðastliðinn var Lesa Lopez, sem er 52 ára og býr í Kaliforníu, handtekin vegna rannsóknar á 32 ára gömlu máli. Hún á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér vegna málsins. Það var þann 15. maí 1988 sem tvö börn fundu pappírspoka á milli trjáa og runna við á í Castro Valley í San Francisco. Í Lesa meira