Sendiherra Bandaríkjanna staðhæfir að atkvæði hennar hafi ekki verið talið með – Ekki á rökum reist
PressanCarla Sands, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, staðhæfði um síðustu helgi að atkvæði hennar í forsetakosningum í Bandaríkjunum hafi ekki verið talið með. Hún er dyggur stuðningsmaður Trump sem skipaði hana í embætti sendiherra. „Ég kaus Donald Trump bréfleiðis. Í gærkvöldi skoðaði ég kosningaskráningarnar og sá að þeir hafa ekki talið atkvæðið mitt með,“ skrifaði hún á Twitter skömmu eftir að stærstu fjölmiðlar Lesa meira
Mörg bandarísk sjúkrahús yfirfull af COVID-19-sjúklingum
PressanÍ Wisconsin eru mörg sjúkrahús yfirfull vegna mikils fjölda COVID-19-sjúklinga og í Norður-Dakóta er staðan enn verri því þar eru öll sjúkrahús yfirfull. Á miðvikudaginn var enn eitt metið slegið í Bandaríkjunum hvað varðar fjölda smitaðra en þá greindust 140.000 smit. Í gær var þetta met síðan slegið þegar 152.000 smit greindust. CNN skýrir frá Lesa meira
Trump með grófar ásakanir – Sjónvarpsstöðvar rufu útsendingu til að leiðrétta hann – Formaður kjörstjórnar hjólar í hann
EyjanDonald Trump, Bandaríkjaforseti, virðist vera maður sem veit að hann er á góðri leið með að tapa forsetakosningunum og leitar allra ráða til að ríghalda í völd sín. Hann flutti ávarp í gærkvöldi þar sem hann setti fram grófar ásakanir um kosningasvindl, án þess að leggja fram nokkrar sannanir fyrir þeim, og sakaði Demókrata um Lesa meira
Heimilar vopnuðum lögreglumönnum að fara inn á talningarstaði – Óttast afskipti alríkisstjórnarinnar af talningunni
PressanBandaríska dómsmálaráðuneytið tilkynnti saksóknurum þar í landi í gær að lögum samkvæmt megi þeir senda vopnaða alríkislögreglumenn á talningarstaði um allt land til að rannsaka kosningasvindl. Tilkynningin var send í tölvupósti. New York Times skýrir frá þessu. Fram kemur að tölvupósturinn hafi vakið upp ótta um að alríkisstjórnin hyggist ógna embættismönnum, sem starfa við talningu atkvæða, eða skipta sér Lesa meira
Metfjöldi kórónuveirusmita í Bandaríkjunum í gær
PressanNýtt og dapurlegt met var sett í Bandaríkjunum í gær en þá greindust rúmlega 99.000 manns með kórónuveirusmit og hafa aldrei verið fleiri á einum degi. Þetta kemur fram í tölum frá Johns Hopkins háskólanum. 1.112 andlát, af völdum COVID-19, voru einnig skráð í landinu. Í heildina hafa rúmlega 9,4 milljónir greinst með kórónuveiruna, sem veldur COVID-19, í Bandaríkjunum Lesa meira
Dæmdur í 25 ára fangelsi – Kveikti í þremur kirkjum
PressanHolden Matthews, 23 ára, var nýlega dæmdur í 25 ára fangelsi í Creole sýslu í Louisiana í Bandaríkjunum. Hann þarf einnig að greiða 2,66 milljónir dollara í bætur til kirknanna sem hann kveikti í. Hann var fundinn sekur um að hafa kveikt í þremur kirkjum í sýslunni. Allar tengdust þær sögu svartra í ríkinu. Matthews játaði að hafa af ásettu ráði Lesa meira
Bandaríkin og Indland styrkja bandalag sitt gegn Kína
PressanBandarísk og indversk stjórnvöld hafa ákveðið að styrkja samstarf sitt og standa saman gegn því sem Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir vera „ágengni“ Kínverja. Þetta sagði hann á fréttamannafundi í Nýju-Delí á þriðjudaginn þar sem löndin kynntu aukið varnarsamstarf sitt. Pompeo og Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sögðu að hernaðarsamstarfið við Indland „yrði áfram hornsteinninn“ í samstarfi ríkjanna. Pompeo sagði að ríkin verði Lesa meira
Bandaríkin og Grænland sömdu um Thulestöðina eftir margra ára samningaviðræður
PressanBandaríkin, Danmörk og Grænland hafa náð samningum um þjónustusamning fyrir herstöðina í Thule á Grænlandi. Samningar náðust á miðvikudaginn að því er Sermitsiaq.ag segir. Samningurinn kveður meðal annars á um viðhald, nýframkvæmdir og rekstur mötuneytis í herstöðinni. Árum saman var þjónustusamningurinn í höndum Dana og Grænlendinga en 2014 fékk bandarískt fyrirtæki hann. Þetta telja Grænland og Danmörk vera í Lesa meira
Átta ákærðir fyrir að ætla að neyða kínverska fjölskyldu til að fara aftur til Kína frá Bandaríkjunum
PressanÁtta hafa verið ákærðir fyrir aðild að samsæri á vegum kínverskra stjórnvalda í Bandaríkjunum. Hinir ákærðu eru sagðir hafa ætlað að þvinga kínverska fjölskyldu, sem býr í Bandaríkjunum, til að snúa aftur til Kína þar sem fjölskyldan á ákæru yfir höfði sér. Fimm voru handteknir vegna málsins á miðvikudaginn en talið er að þrír séu Lesa meira
Hæstiréttur hafnaði beiðni Trump um meðferð bréfatkvæða í Norður-Karólínu og Pennsylvania
PressanHæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði á miðvikudaginn beiðni frá Donald Trump, forseta, um að ekki megi framlengja þann tíma sem kjörstjórnin í Norður-Karólínu hefur til að taka við bréfatkvæðum í forsetakosningunum í næstu viku. Kjörstjórn ríkisins hefur ákveðið að bréfatkvæði, sem eru stimpluð í síðasta lagi 3. nóvember, verði talin með þrátt fyrir að þau berist ekki fyrr Lesa meira