Frambjóðendur kjósa: Í kjölfarið fylgdi Baldur – Myndir
FréttirFrambjóðendur til forseta Íslands halda áfram að kjósa. Katrín Jakobsdóttir reið á vaðið klukkan 9:00 í Hagaskóla en Baldur Þórhallsson fylgi fljótlega í kjölfarið klukkan 9:15, einnig í Hagaskóla. Ljósmyndari DV var á staðnum og fylgdist með því þegar Baldur skilaði atkvæði sínu. Baldur hefur í skoðanakönnunum yfirleitt verið í 3-4 sæti en munurinn yfirleitt Lesa meira
Skiptar skoðanir um ákvörðun Baldurs í kappræðunum á Stöð 2 í gær
FréttirÞað vakti athygli í kappræðum Stöðvar 2 í gærkvöldi þegar Baldur Þórhallsson, einn sex frambjóðenda sem voru í þættinum, ákvað að tala íslensku í stað þess að nota ensku þegar frambjóðendur voru beðnir að sýna hvernig þeir myndu tjá sig um íslenska kvótakerfið við erlenda þjóðhöfðingja. Ýmsar þrautir voru lagðir fyrir frambjóðendur og í einni Lesa meira
Lifir enn á því að Vigdís hafi veifaði henni
FókusFjóla Einarsdóttir þróunar- og stjórnmálafræðingur ritaði fyrr í dag grein á Vísi. Tilgangur greinarinnar er einkum að lýsa yfir stuðningi við forsetaframboð Baldurs Þórhallssonar en athygli vekur einnig einlæg frásögn Fjólu af örsnöggum kynnum hennar við Vigdísi Finnbogadóttur, þegar Vigdís var forseti, sem þó er varla hægt að kalla kynni enda veifaði Vigdís Fjólu en Lesa meira
Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Ákvörðun um þingrof verður að byggjast á vilja þingsins
EyjanMikilvægt er að forseti hraði sér ekki um of þegar forsætisráðherra gengur á hans fund á miðju kjörtímabili og óskar eftir því að forseti rjúfi þing og boði til kosninga, sem gerist reglulega hér á landi. Baldur Þórhallsson segir mikilvægt að í þessum efnum sem öðrum sé ekki sjálfsafgreiðsla á Bessastöðum og að forseti gangi Lesa meira
Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Gangi Alþingi fram af þjóðinni skal forseti tafarlaust vísa málinu til þjóðarinnar
EyjanFari Alþingi fram úr sjálfu sér og gangi fram af þjóðinni t.d. með því að ætla að ganga í ESB án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu á forseti tafarlaust að vísa málinu til þjóðarinnar. Baldur Þórhallsson segir forseta hafa eftirlitshlutverk með þinginu, við búum við ákveðinn samfélagssáttmála, sem byggist á mannréttindum, lýðræði, hefðum og venjum, sem forseta beri Lesa meira
Lýsir yfir áhyggjum af vanþekkingu forsetaframbjóðenda
FréttirBjarni Már Magnússon prófessor og forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst ritaði fyrr í dag grein á Vísi þar sem hann lýsir yfir áhyggjum vegna þess að í kappræðum sex forsetaframbjóðenda á Stöð 2 í gærkvöldi hafi sumir þeirra opinberað að þeir telji ranglega að Ísland fylgi hlutleysissstefnu í alþjóðamálum. Bjarni segir sum forsetaefnin hafa einnig Lesa meira
Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Forgangsröðum í þágu barna og ungmenna
EyjanÍslendingar eiga að geta staðið fremstir meðal þjóða þegar kemur að málefnum barna og ungmenna, rétt eins og við stöndum fremstir í jafnréttismálum. Baldur Þórhallsson segist finna fyrir því að fólki um allt land finnist það afskipt og elur með sér þann draum að landið og þjóðin geti aftur litið á sig sem eina heild. Lesa meira
Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað
FréttirKappræður þeirra sex forsetaframbjóðenda sem eru efstir í skoðanakönnunum standa yfir á Stöð 2. Þar hefur verið rætt um ýmislegt. Heimir Már Pétursson vísaði meðal annars til umræðna um heimsóknir Baldurs Þórhallssonar á klúbba fyrir samkynhneigða á hans yngri árum og dreifinga á myndum sem teknar voru við þau tækifæri. Heimir spurði hina frambjóðendurna hvort Lesa meira
Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Baldur Þórhallsson – Málskotsrétturinn var virkur þegar Vigdís íhugaði að skrifa ekki undir EES
EyjanÁ grundvelli þingræðisreglunnar á forseti fyrst að veita þeim sem er líklegastur til að geta myndað ríkisstjórn stjórnarmyndunarumboð, frekar en að horfa á stærð flokka eða hver vann mest á í kosningum. Þetta segir Baldur Þórhallsson. Hann segir að það eitt að Vigdís Finnbogadóttir íhugaði alvarlega að staðfesta ekki EES-samninginn þýði að málskotsrétturinn var virkur Lesa meira
Baldur segir mikilvægt fyrir Ísland að treysta ekki alfarið á „þetta reddast“
EyjanBaldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði og forsetaframbjóðandi er nýjasti gestur hlaðvarpsins Götustrákar. Í kynningarstiklu fyrir þáttinn sem er öllum aðgengileg á Youtube ræðir Baldur m.a. um stöðu Íslands sem smáríki en í rannsóknum sínum hefur hann einkum horft til stöðu smáríkja eins og Íslands í heiminum og hvernig þau geta mögulega haft áhrif gagnvart stærri Lesa meira