fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024

atvinnulíf

Salóme ráðin framkvæmdastjóri rekstrar hjá Justikal

Salóme ráðin framkvæmdastjóri rekstrar hjá Justikal

Eyjan
24.08.2023

Salóme Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrar hjá Justikal og gengur jafnframt inn í stofnendateymi félagsins. Salóme mun leiða sókn og stefnu fyrirtækisins inn á erlenda markaði og bera ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu starfseminnar, eisn og segir í fréttatilkynnine en Salóme tekur til starfa næstu mánaðamót. Ráðning Salóme er liður í þeirri vegferð Lesa meira

Segir óæskilegt að næsti formaður flokksins komi úr núverandi forystu – nefnir vænlegan kandídat úr atvinnulífinu

Segir óæskilegt að næsti formaður flokksins komi úr núverandi forystu – nefnir vænlegan kandídat úr atvinnulífinu

Eyjan
02.08.2023

Næsti formaður Sjálfstæðisflokksins getur vart komið úr núverandi framvarðarsveit flokksins. Þetta kemur fram í nýjasta Náttfarapistli Ólafs Arnarsonar á Hringbraut. Ólafur vitnar í orð Brynjars Níelssonar sem lýsti því yfir í síðustu viku að ef formannsskipti væru fram undan í flokknum væri æskilegt að finna formann sem ekki væri í núverandi forystusveit flokksins. „Ég er með marga Lesa meira

Kristján Þór verður sviðstjóri í Mosfellsbæ

Kristján Þór verður sviðstjóri í Mosfellsbæ

Fréttir
20.07.2023

Kristján Þór Magnússon hefur verið ráðinn sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfis í Mosfellsbæ, en ráðning hans var samþykkt á fundi bæjarráðs í dag. Minnihluti bæjarráðs, fulltrúar D-lista, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna þar sem þeir hefðu ekki haft aðkomu að ráðningarferlinu. Kristján Þór var áður sveitarstjóri í Norðurþingi í átta ár, en sagði því starfi lausu í Lesa meira

Margrét Anna skipuð sendiherra ELTA fyrir Ísland

Margrét Anna skipuð sendiherra ELTA fyrir Ísland

Eyjan
18.04.2023

Evrópusamtökin í lögfræðitækni (ELTA) hafa skipað Margréti Önnu Einarsdóttur, framkvæmdastjóra og stofnanda Justikal, sem sendiherra samtakanna fyrir Ísland. Meginmarkmið ELTA er að efla tækni í lögfræðigeiranum í Evrópu. Samtökin taka virkan þátt í samfélagslegri og pólitískri umræðu í því skyni að tala fyrir hagsmunum og áhyggjum félagsmanna sinna og til að styrkja stöðu tækniþróunar á Lesa meira

Símon Orri ráðinn sölustjóri smart og atvinnubíla hjá Öskju

Símon Orri ráðinn sölustjóri smart og atvinnubíla hjá Öskju

Eyjan
14.04.2023

Símon Orri Sævarsson hefur verið ráðinn til Bílaumboðsins Öskju. Símon mun gegna starfi sölustjóra smart og Mercedes Benz sendibíla. Bílaframleiðandinn smart býður upp á rafknúna bíla í hæsta gæðaflokki og er nýjasta viðbótin í vöruframboð Öskju. Kemur þetta fram í tilkynningu. Símon starfaði hjá Heklu frá árinu 2013 áður en hann færði sig yfir til Lesa meira

Þetta eru 5 bestu vinnustaðir Íslands samkvæmt GPTW

Þetta eru 5 bestu vinnustaðir Íslands samkvæmt GPTW

Eyjan
14.04.2023

Great Place To Work hefur gefið út nýjan topp 5 lista yfir Bestu vinnustaði Íslands. GPTW er alþjóðleg stofnun um vinnustaðamenningu og hefur gefið út topplista yfir bestu fyrirtæki landsins undanfarin fjögur ár. Vottuðum fyrirtækjum fjölgaði úr fjórum árið 2022 í 11 árið 2023.Efstu fimm fyrirtæki landsins á listanum eru Kolibri sem er í fyrsta Lesa meira

Sunna Ben ráðin samfélagsmiðlafulltrúi Hörpu

Sunna Ben ráðin samfélagsmiðlafulltrúi Hörpu

Fókus
29.03.2023

Sunna Ben Guðrún­ar­dótt­ir, Dj Sunna Ben, hef­ur verið ráðin sam­fé­lags­miðlafull­trúi Hörpu tón­list­ar- og ráðstefnu­húss. Staðan er ný inn­an markaðsdeild­ar Hörpu og mun Sunna starfa náið með Hildi Ottesen Hauks­dótt­ur, markaðs- og kynn­ing­ar­stjóra Hörp­u. Sunna hefur starfað sem sam­fé­lags­miðlafull­trúi fyr­ir Veg­an búðina og sem sam­fé­lags­miðlaráðgjafi hjá TVIST–aug­lýs­inga­stofu og Hugs­miðjunni.

Karl og Haraldur til Terra umhverfisþjónustu

Karl og Haraldur til Terra umhverfisþjónustu

Eyjan
29.03.2023

Tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir á fjármála- og tæknisviði Terra umhverfisþjónustu. Karl F. Thorarensen hefur hafið störf sem innkaupastjóri og Haraldur Eyvinds Þrastarson sem forstöðumaður upplýsingatækni og stafrænnar vegferðar hjá fyrirtækinu. Karl mun leiða mótun nýrrar innkaupastefnu og byggja upp innkaupa- og vörustýringarferli, þvert á rekstur skipulagsheildar félagsins.  Karl kemur frá Icelandair þar sem Lesa meira

Sveinbjörn til Fossa fjárfestingarbanka

Sveinbjörn til Fossa fjárfestingarbanka

Eyjan
14.03.2023

Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignastýringar Fossa fjárfestingarbanka. Hann mun leiða reynslumikið teymi Fossa í áframhaldandi uppbyggingu eignastýringar og fjárfestingaráðgjafar til viðskiptavina bankans, eins og segir í tilkynningu. Sveinbjörn kemur til Fossa frá Íslandsbanka þar sem hann hefur starfað síðastliðin 20 ár og er því með mjög víðtæka reynslu af fjármálamarkaði og þjónustu við Lesa meira

Vilhjálmur Theodór ráðinn forstöðumaður sölu hjá Vodafone

Vilhjálmur Theodór ráðinn forstöðumaður sölu hjá Vodafone

Eyjan
14.03.2023

Vilhjálmur Theodór Jónsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður sölu hjá Vodafone. Um er að ræða forstöðumannastöðu innan fyrirtækisins þar sem lykiláhersla er að leiða söluleiðir á fjarskiptum og sjónvarpsáskriftum til einstaklinga og smærri fyrirtækja. Kemur þetta fram í tilkynningu. „Við erum einstaklega ánægð að fá jafn öflugan aðila og Vilhjálm Theodór til þess að leiða Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af