Í 29 ár grunaði engan neitt en þá gafst hann sjálfur upp
PressanÍ síðustu viku gaf Darko Desic, 64 ára, sig fram við lögregluna í New South Wales í Ástralíu. Hann fæddist í fyrrum Júgóslavíu en flutti til Ástralíu. Þar komst hann í kast við lögin og var dæmdur í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir vera með bannaðar plöntur í garðinum sínum. Hann var 35 ára þegar hann hlaut dóminn. Þegar hann Lesa meira
Ástralar sakaðir um að vera með kolsvarta samvisku í umhverfismálum
PressanSameinuðu þjóðirnar eru ósáttar við Ástrala sem kjósa að líta fram hjá því tjóni sem vaxandi kolaútflutningur þeirra veldur. Margir Ástralar hafa áhyggjur af hvernig það muni fara með efnahag landsins ef kolaútflutningur leggst af og virðist það ekki hafa mikil áhrif á þá að mikill alþjóðlegur þrýstingur er á landið að draga úr kolavinnslu Lesa meira
Lögðu hald á 1,5 tonn af kókaíni í lystisnekkju undan strönd Englands
PressanSex voru handteknir í skútu undan strönd Plymouth í síðustu viku. Um var að ræða sameiginlega aðgerð bresku og áströlsku lögreglunnar. Um borð í skútunni fannst 1,5 tonn af kókaíni en verðmæti þess er sem nemur rúmlega 21 milljarði íslenskra króna. Skútan er skráð í Jamaíka. Einn Breti er meðal hinna handteknu en hinir eru frá Níkaragva. Lesa meira
Tímamót í raforkumálum Ástrala – Meira rafmagn frá sólarorku en kolum
PressanÞau merku tímamót urðu í raforkumálum Ástrala um síðustu helgi að meira var framleitt af raforku með sólarorku en kolum. Þetta gerðist á sunnudaginn og varði aðeins í nokkrar mínútur en þetta er í fyrsta sinn sem sólarorka hefur framleitt meira rafmagn en framleitt er með kolum. Sérfræðingar segja að þrátt fyrir að þessi merki Lesa meira
Ástralar greiða frumbyggjabörnum bætur – Voru tekin frá fjölskyldum sínum
PressanÁströlsk yfirvöld ætla að bjóða börnum af ættum frumbyggja, sem voru fjarlægð frá fjölskyldum sínum, bætur. Þeim verða boðnar 75.000 ástralskir dollarar í bætur en það svarar til um 7 milljóna íslenskra króna. Scott Morrison, forsætisráðherra, tilkynnti þetta nýlega. Frá upphafi tuttugustu aldar og allt þar til um 1970 voru rúmlega 100.000 börn af frumbyggjaættum tekin Lesa meira
Framlengja sóttvarnaaðgerðir í New South Wales um einn mánuð
PressanYfirvöld í New South Wales í Ástralíu hafa ákveðið að framlengja sóttvarnaaðgerðir í Sydney, fjölmennustu borg Ástralíu, um einn mánuð sem og í öllu ríkinu. Gladys Berejiklian, forsætisráðherra ríkisins, tilkynnti þetta á fréttamannafundi í dag. Gripið var til sóttvarnaaðgerða í lok júní vegna vaxandi fjölda smita af völdum kórónuveirunnar og áttu þær að gilda fram á næsta föstudag en verða nú framlengdar til 28. ágúst. Þetta Lesa meira
Talin hafa dáið út fyrir 150 árum – Fannst nýlega
PressanÞar til nýlega töldu vísindamenn að Gould‘s músin hefði dáið út fyrir um 150 árum en hún átti heimkynni í Ástralíu. En nú er komið í ljós að tegundin er alls ekki útdauð því vísindamenn fundu hana á eyjum undan strönd Western Australia. Vísindamenn báru saman DNA úr 42 lifandi músum og 8 ættingjum þeirra, sem drápust fyrir margt Lesa meira
Varð eiginkonunni að bana með fílastyttu – Rifust um áfengishlaup
PressanÍ síðustu viku sakfelldi hæstiréttur í Victoria í Ástralíu Edward Rowen, 84 ára, fyrir morð. Hann varð eiginkonu sinni að bana árið 2019 með fílastyttu eftir að hún bannaði honum að borða áfengt hlaup sem barnabarn þeirra hafði útbúið. ABC News skýrir frá þessu. Fyrir dómi kom fram að Rowen þjáist af ágengum heilasjúkdómi, líklegast Alzheimers. Dómurinn varð því að taka afstöðu til Lesa meira
Ástralar ætla að hætta að nota bóluefni AstraZeneca
PressanÁstralar hafa ákveðið að hætta að nota bóluefnið frá AstraZeneca og byrja nú þegar að draga úr notkun þess. Í október er stefnt á að hætta alveg að gefa fólki það nema það biðji sérstaklega um að vera bólusett með því. Þetta kemur fram í nýrri bólusetningaáætlun stjórnvalda sem var birt á miðvikudaginn. Í henni kemur fram Lesa meira
Harðar sóttvarnaaðgerðir í Sydney vegna Deltaafbrigðis kórónuveirunnar
PressanGladys Berejiklian, forsætisráðherra New South Wales ríkis í Ástralíu, tilkynnti á hádegi í dag, að áströlskum tíma, að gripið verði til harðra sóttvarnaaðgerða í hluta Sydney, sem er fjölmennasta borg landsins, vegna Deltaafbrigðis kórónuveirunnar. Verða íbúar í hluta borgarinnar beðnir um að halda sig heima næstu sjö dagana og jafnvel lengur ef þörf þykir. „Við viljum ekki vera í þessari stöðu í margar vikur. Lesa meira