417.000 Evrópubúar deyja árlega vegna loftmengunar
PressanÁ ári hverju deyja 417.000 Evrópubúar ótímabærum dauða af völdum loftmengunar. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu frá Evrópsku umhverfisstofnuninni sem var birt á mánudaginn. Í henni kemur fram að 2018 hafi 417.000 Evrópubúar látist af völdum skaðlegra agna í andrúmsloftinu. Þessar agnir berast meðal annars frá ökutækjum, skipum, orkuframleiðslu, iðnaði og kamínum. Þær geta borist Lesa meira
Nú deyja rúmlega 100 af völdum COVID-19 í Bandaríkjunum á hverri klukkustund
PressanÁ miðvikudaginn létust rúmlega 2.400 af völdum COVID-19 í Bandaríkjunum. Þetta er nýtt met hvað varðar fjölda látinna á einum sólarhring. Tölur frá Johns Hopkins háskólanum sýna að 2.439 dauðsföll voru skráð. Þar með komst heildartala látinna upp í 262.080. Sama daga greindust rúmlega 200.000 manns með smit. Óttast margir að gærdagurinn, en þá var þakkargjörðarhátíðin, muni verða Lesa meira
Á 17 sekúndna fresti deyr Evrópubúi af völdum COVID-19
PressanÁ 17 sekúndna fresti deyr Evrópubúi af völdum COVID-19 að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO. Ljósi punkturinn er þó að sögn WHO að nú virðist sem önnur bylgja faraldursins sé að byrja að réna lítillega. Washington Post skýrir frá þessu. Þessi örlitla bjartsýni hjá WHO byggir á að í síðustu viku greindust 1,8 milljónir smita í álfunni en voru 2 milljónir vikuna áður. Í nokkrum Lesa meira
Kórónuveirufaraldurinn á mikilli siglingu í Svíþjóð – 96 létust á einum sólarhring
PressanFrá þriðjudegi og fram á miðvikudag létust 96 af völdum COVID-19 í Svíþjóð. Þetta er mesti fjöldi andláta af völdum COVID-19 á einum degi í þrjá mánuði. Sænsk heilbrigðisyfirvöld skýrðu frá þessu í gær. Frá upphafi heimsfaraldursins hafa rúmlega 6.300 látist af völdum COVID-19. Í gær voru 4.007 ný smit skráð. Í heildina hafa 196.446 greinst með veiruna fram Lesa meira
Hræðileg mistök – Sögðu Elísabetu II látna sem og fjölda annarra þekktra einstaklinga
PressanFranska fréttastofan Radio France International gerði hræðileg mistök á mánudaginn. Þá birti hún minningargrein um Elísabetu II Bretadrottningu og sagði að drottningin væri látin, 94 ára að aldri. En Elísabet er ekki látin og við ágætis heilsu þrátt fyrir háan aldur. Samkvæmt frétt Dagbladet þá var drottningin ekki eina fórnarlamb mistaka hjá Radio France International á mánudaginn því fréttastofan sagði einnig Lesa meira
Enn eitt andlátið skekur þekkta fjölskyldu – Hvílir bölvun yfir henni?
PressanAllt frá því að hið heimsþekkta Guinness brugghús var stofnað á átjándu öld hefur ólánið elt Guinness-fjölskylduna að vissu leyti, það er að segja að tugir fjölskyldumeðlima hafa látist á dularfullan hátt. Nýlega lést enn einn fjölskyldumeðlimur. Lengi hefur verið haft á orði að bölvun hvíli á fjölskyldunni. Að þessu sinni var það hin 19 ára gamla Honor Uloth sem lést. Daily Mail skýrir Lesa meira
Rúmlega 250.000 hafa látist úr COVID-19 í Bandaríkjunum
PressanBandaríkin hafa slegið enn eitt dapurlegt metið varðandi heimsfaraldur kórónuveirunnar. Landið varð í gær fyrsta land heims þar sem dauðsföll af völdum COVID-19 fara yfir 250.000. Miðað við skráningar Johns Hopkins háskólans þá höfðu 250.029 látist í gær og tæplega 11,5 milljónir höfðu greinst með veiruna. Bandaríkin eiga því metið hvað varðar fjölda staðfestra smita og fjölda látinna. Lesa meira
Níu úr sömu fjölskyldu létust – Borðuðu núðlur sem voru geymdar í frysti
PressanNíu manns úr sömu fjölskyldunni létust nýlega eftir að hafa borðað núðlur sem höfðu verið geymdar í frysti í rúmlega eitt ár. Þær reyndust innihalda gerjað maísmjöl en í því var bongkrek sýra sem banaði fólkinu. Daily Star skýrir frá þessu. Fram kemur að sjö fullorðnir hafi látist í Jixi í Heilongjiang héraðinu í Kína þann 10. október eftir Lesa meira
Ævintýrið breyttist í dularfulla martröð? Af hverju gerðu þau þetta?
PressanHvað gerðist þetta örlagaríka kvöld 2013 þegar Kristen Schroder og Paul Rossington hurfu af skemmtiferðaskipinu Carnival Spirit? Hvað reifst þetta unga ástralska par um í spilavíti skipsins seint um kvöldið? Af hverju hékk Kristen skyndilega fram af svölunum? Nú eru sjö ár liðin frá þessu örlagaríka kvöldi en engin skýr svör hafa fengist um hvað gerðist, af hverju draumafríið breyttist í martröð. Ættingjar þeirra Lesa meira
Neydd til að hoppa á trampólíni – Það varð henni að bana
PressanÓhugnanlegt mál skekur nú samfélagið í Odessa í Texas í Bandaríkjunum. Þar var lögreglan nýlega send að heimili einu þar sem Jaylin Anne, 8 ára, fannst látin. Rannsókn málsins hefur leitt í ljós að fósturforeldrar hennar voru að refsa henni og meinuðu henni um morgunmat. Hún var síðan send út í garð og sagt að hoppa á trampólíni í langan tíma. Lesa meira