Charlie Hedbo ætlar að endurprenta Múhameðsteikningarnar
Pressan02.09.2020
Franska háðsádeiluritið Charlie Hedbo ætlar að endurprenta umdeildar teikningar af spámanninum Múhameð. Þetta er gert í tengslum við réttarhöld yfir 14 manns sem eru ákærðir fyrir aðild að mannskæðri árás á höfuðstöðvar tímaritsins í janúar 2015. Þau hefjast í dag, miðvikudag. „Við munum aldrei láta undan. Við munum aldrei gefast upp,“ skrifar Laurent Sourisseau, ritstjóri tímaritsins, í tengslum við endurútgáfuna. 12 Lesa meira