Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður á handbolta, var gestur Helga Fannars og Hrafnkels Freys í nýjasta þætti af Íþróttavikunni á 433.is.
Bjarki spilar með ungverska stórliðinu Veszprem og er á sínu þriðja tímabili núna. „Mér líður mjög vel og er að eiga mitt besta tímabil núna.“
Hann fór til Veszprem eftir að hafa spilað með þremur mismunandi liðum í Þýskalandi.
„Fyrsta árið var mjög erfitt. Ég var búinn að vera í níu ár í Þýskalandi, stelpan mín í skóla og konan mín að vinna,“ sagði Bjarki.
„Svo kemurðu í land þar sem tungumálið er bara óskiljanlegt. En um leið og þetta fór að smella og ganga vel innan vallar varð þetta mjög fínt.“
Umræðan í heild er í spilaranum.