Það er óhætt að segja að leikmenn Chelsea séu að skemmta sér þessa stundina en liðið leikur gegn Noah.
Um er að ræða lið í Sambandsdeildinni en spilað er á Stamford Bridge og er staðan 6-0 fyrir þeim ensku.
Chelsea á allan seinni hálfleikinn eftir og getur enn bætt við mörgum mörkum áður en flautað verður til leiksloka.
Noah er næsti andstæðingur Víkings í Sambandsdeildinni en um er að ræða lið frá Armeníu.
Ljóst að Noah er hvergi nærri nógu gott lið til að veita Chelsea samkeppni og eru það góðar fréttir fyrir Víkinga.