Aron Pálmarsson, einn fremsti handboltamaður Íslandssögunnar, var gestur þeirra Helga Fannars Sigurðssonar og Hrafnkels Freys Ágústssonar í Íþróttavikunni á 433.is.
Aron, sem í dag er á mála hjá uppeldisfélaginu FH, hefur spilað með stórliðum á borð við Barcelona og Kiel á ferlinum en hann náði einnig frábærum árangri með ungverska liðinu Veszprem.
Í þættinum var hann spurður út í deildina þar í landi, en þar er töluverður gæðamunur á milli betri liðanna og þeirra lakari.
„Þar í fyrsta skipti upplifi ég að þjálfarinn segi við mig að ég kæmi ekki með (í leikinn). Ég bara: Ha? Ég átti bara að vera í fríi eða lyfta eða eitthvað. Þetta var bara deildarleikur,“ rifjaði Aron upp og hló, en þar á hann við að hann hafi einfaldlega verið hvíldur.
„Þetta var enn meira svona á Spáni. Þá var maður stundum spurður hvort maður vildi sleppa heima -eða útileiknum. Það var náttúrulega alltaf útileikurinn.“
Umræðan í heild er í spilaranum.