Aron Pálmarsson, einn fremsti handboltamaður Íslandssögunnar, var gestur þeirra Helga Fannars Sigurðssonar og Hrafnkels Freys Ágústssonar í Íþróttavikunni á 433.is.
Í þættinum er farið um víðan völl og meðal annars þá ákvörðun Arons að snúa heim til Íslands og ganga í raðir uppeldisfélagsins FH í fyrra eftir glæstan feril í atvinnumennsku með nokkrum af fremstu félagsliðum heims. Hann segir margar í kringum sig í handboltaheiminum hafa verið hissa.
„Þetta var alveg sjokk. Önnur lið sáu sér leik á borði og héldu að þau gætu fengið mig ódýrt en þegar ástæðan spurðist út skildi fólk þetta. Þetta eru fjölskylduástæður og lítið að segja við því,“ sagði Aron í þættinum.
„Ég var búinn að hugsa þetta í smá tíma og ég var búinn að undirbúa mig vel. Auðvitað er þetta sjokk fyrir mig, að flytja heim á þessum stað. Það var ekkert planið, sá fyrir mér 3-4 góð ár úti. Umhverfið er svo allt annað en að vera atvinnumaður úti. En það var alltaf eitt tromp sem toppaði þetta allt.“
Umræðan í heild er í spilaranum.