Fyrrverandi leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Everton hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í heimalandi sínu. Leikmaðurinn sem um ræðir lék 40 leiki fyrir Everton á árunum 2002 til 2006.
Li Tie heitir kappinn og er fyrrverandi landsliðsmaður Kína og fyrrverandi landsliðsþjálfari.
Hann lék 33 leiki fyrir Everton tímabilið 2002 til 2003 og sjö leiki tímabilið þar á eftir fyrir félagið. Þá lék hann 92 landsleiki fyrir Kína og skoraði í þeim sex mörk.
Ferill Li í ensku úrvalsdeildinni var ekki langur en hann varð fyrir slæmum meiðslum í landsleik með Kína árið 2004 þar sem hann fótbrotnaði. Hann var seldur til Sheffield United áður en hann hélt heim til Kína.
The Sun greinir frá því – og vísar í kínverska fjölmiðla – að Li hafi verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir mútugreiðslur og hagræðingu úrslita.
Tengjast mútugreiðslurnar starfi hans sem landsliðsþjálfari Kína á árunum 2019 til 2021.
Li er sagður hafa borgað sem nemur um 50 milljónum króna til að taka við kínverska landsliðinu í fótbolta.
Þá er hann sagður hafa komið að hagræðingu úrslita þegar hann stýrði liðunum Hebei China Fortuna og Wuhan Zall. Li lagði skóna á hilluna árið 2011.