Roberto Martinez þjálfari Portúgals segist ekki vera hissa á því hversu erfitt var að brjóta íslenska liðið niður í kvöld.
Portúgal marði 0-1 sigur á Íslandi þar sem Cristiano Ronaldo skoraði eina mark leiksins undir lokin.
Martinez segir að það sé einstakt að vinna með Ronaldo sem var að spila sinn 200 landsleik.
„Þetta er góð spurning, þegar þú ert fyrir utan þetta þá sérðu ekki leyndarmálið. Að spila svona 38 ára, hann hefur frábært hugarfar og vilja til að vera bestur. Hann vill bæta sig á hverjum degi, þú sérð þetta hjá ungum leikmönnum. Pepe kemur með það sama, hann er fertugur en þeir horfa á hverja æfingu sem hlut sem skiptir máli. Cristiano er ferskur, hann er líkamlega ferskur,“ segir Martinez.
Martinez kveðst ekki vera hissa á því hversu erfitt var að vinna Ísland.
„Ég var það ekki, ég hef komið hingað tvisvar áður með Belgíu. Ég veit það að liðið er frábært í návígjum. Það er mikil orka í íslenska liðinu, Ísland var mjög óheppið gegn Slóvakíu. Þeir voru að reyna að sækja úrslit eftir þau vonbrigði. Við komumst í góðar stöður og fengum 11 horn. Ég var ekki hissa, ég var ánægður með að halda hreinu.“
Martinez segist aldrei hafa íhugað að taka Ronaldo af velli