Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, var í viðtali í þættinum 433.is á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld. Vanda var nýverið kjörinn formaður sambandsins á krísutímum eftir að hvert hneykslismálið tengt sambandinu skaut upp kollinum.
Vanda styður við bakið á Arnari Þór Viðarssyni, landsliðsþjálfara karlalandsliðsins, sem þarf að stýra karlalandsliðinu á erfiðum tímum.
„Ég held að enginn annar landsliðsþjálfari í sögu Íslands hafi lent í eins miklum hremmingum og hann hefur lent í. Ég hef sagt það áður að við styðjum þá (Arnar og Eið) í þessu verkefni og við gerum okkur grein fyrir því hlutskipti sem þeir eru í.“
Arnar Þór Viðarsson, var ráðinn landsliðsþjálfari karlalandsliðsins í desember í fyrra og þá leit verkefnið framundan allt öðruvísi út. Hneykslismál tengd leikmönnum sem hafa leikið með landsliðinu hafa skotið upp kolli. Hefur Vanda átt samtöl við Arnar þar sem hann lýst því yfir að hætta sem landsliðsþjálfari sökum þessara breyttu aðstæðna?
„Við höfum ekkert rætt það og það er ekki mín tilfinning út frá þeim samtölum sem ég hef átt við hann. Mér finnst enginn bilbugur á honum. Mér finnst hann bara horfa fram á við.“
En horfir Vanda á starf sitt sem krísustjórnun?
„Já ég hef alveg sagt það. Þetta er krísa, við getum ekkert horft fram hjá því. En svo finnst mér líka að í krísum felast líka tækifæri,“ sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ
Verið er að vinna í að setja reglur, ferla og aðgerðaráætlanir til þess að bregðast við málum sem kunna að koma upp á borð knattspyrnusambandsins og svipa til ásakana um kynferðisofbeldi. Er leikmaður eða starfsmaður sem eru undir lögreglulrannsókn útilokaðir á meðan sú rannsókn stendur yfir?
„Reglurnar eru ekki komnar þannig að mín skoðun er já (eru útilokaðir á meðan lögreglurannsókn stendur). Ég byggi það bara á því að þannig er það gert víða. Þannig er það hjá íþróttabandalagi Reykjavíkur og mjög mörgum fyrirtækjum,“
Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson er undir rannsókn löreglu þessa dagana sakaðir um kynferðisbrot. Ljóst má vera að þeir spila ekki fyrir hönd Íslands á meðan málið er til skoðunnar ef vilji Vöndu nær fram að ganga.
Viðtalið við Vöndu Sigurgeirsdóttur, formann Knattspyrnusambands Íslands í þættinum 433.is má sjá hér fyrir neðan.