Ferill atvinnumanns í knattspyrnu getur verið stuttur og þegar að honum lýkur er lífið oft rétt að byrja. Ísland hefur átt marga atvinnumenn í fótbolta sem náð hafa frábærum árangri, þeir koma síðan flestir heim.
Margir fara í fjárfestingar og slíkt enda koma margir heim sterkefnaðir, aðrir fara í önnur störf enda ekki fyrir alla að sitja og slaka á heilu og hálfu dagana.
Þeir sem koma fram í þessari samantekt starfa meðal annars sem iðnaðarmenn, lögmenn og framkvæmdastjórar svo dæmi séu tekinn. Haft var að leiðarljósi að menn væru ekki með hluti tengda knattspyrnu sem aðalstarf.
Ár í atvinnumennsku – 15
Landsleikir – 89
Harðhausinn frá Eyjum er að taka að sér þjálfarastarf í Indlandi en hann á og rekur Stracta Hótel sem staðsett er á Hellu. Hermann átti frábæran feril í ensku úrvalsdeildinni og varð meðal annars bikarmeistari með Portsmouth. Þá var Hermann fyrirliði og lykilmaður í íslenska landsliðinu í fjölda ára. Eyjapeyinn hefur þjálfað hér heima en kom hótelinu af stað sem hefur verið afar vinsælt á meðal ferðamanna sem eru á ferð um landið.
Ár í atvinnumennsku – 13
Landsleikir – 30
Varnarmaðurinn af Austurlandi átti góðan feril í atvinnumennsku og hans bestu ár voru með Reading frá 2003 til 2011 en þar var hann stærstan hluta ferilsins. Ívar sneri heim á æskuslóðirnar eftir að ferlinum lauk og byggði upp ferðaþjónustu á Austfjörðum. Ívar byggði upp gistihús í botni Stöðvarfjarðar og þá fór hann í skógrækt og setti niður milljón plöntur á jörð sinni sem vaxa og dafna.
Ár í atvinnumennsku – 6
Landsleikir – 44
Ríkharður Daðason er líklega frægastur fyrir mark sitt gegn Frakklandi á Laugardalsvelli. Heimsmeistarar Frakklands komu í heimsókn og Ríkharður skallaði knöttinn af mikilli snilld yfir Fabian Barthez. Eftir að Ríkharður lauk ferli sínum í knattspyrnu sneri hann sér að viðskiptum og starfaði lengi vel í banka. Hann hefur síðan getið sér gott orð sem fjárfestir.
Ár í atvinnumennsku – 10
Landsleikir – 42
Harðjaxlinn frá Akureyri átti flottan feril á Englandi. Hann var öflugur varnarmaður en hann lék með Stoke og West Brom. Hann kom síðan heim og lauk ferlinum með Þór á Akureyri og ÍA. Skömmu eftir að Lárus kom heim gerðist hann forstöðumaður Þelamarkar sem er rétt fyrir utan Akureyri þar sem hann sér um rekstur á sundlaug og öllu því sem er í gangi á svæðinu. Auk þess er Lárus Orri þjálfari Þórs en hann stýrir liðinu í annað sinn.
Ár í atvinnumennsku – 15
Landsleikir – 55
Eftir magnaðan feril í atvinnumennsku flutti Heiðar heim til Íslands. Þessi fyrrverandi sóknarmaður er ekki týpan sem getur lengi setið kyrr. Skömmu eftir að Heiðar lauk farsælum ferli keypti hann sér bát og kvóta, hann var trillukarl og gerði bát sinn út frá Hafnarfirði. Hann seldi síðan bátinn og starfar í dag sem málari. Heiðar var harður í horn að taka sem leikmaður og kallar ekki allt ömmu sína, sama hvort það varði boltann eða pensilinn.
Ár í atvinnumennsku – 13
Landsleikir – 58
Þórður var leikinn kantmaður sem átti meðal annars farsælan feril í Þýskalandi, Spáni og á Englandi. Kantmaðurinn kom heim og lauk ferli sínum með uppeldisfélagi sínu, ÍA, árið 2008. Hann hefur síðan þá starfað mikið í kringum félagið, bæði í þjálfun og síðan í stjórnunarstörfum. Þórður var seint á síðasta ári ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Skeljungs. Áður var hann forstöðumaður viðskiptastýringar og sölu hjá fyrirtækjaþjónustu Símans frá árinu 2014.
Ár í atvinnumennsku – 7
Landsleikir – 35
Auðunn á og rekur sína eigin lögmannsstofu. Lögmannsstofa Auðuns Helgasonar tók til starfa 1. september 2015 á Höfn í Hornafirði. Auðunn lauk meistaraprófi í lögfræði og fullnaðarprófi í lögfræði frá lagadeild Háskólans í Reykjavík í júní 2013 og fékk réttindi til að vera héraðsdómslögmaður í október 2014. Auðunn hefur sérhæft sig á sviði stjórnsýsluréttar, skaðabótaréttar, vátryggingaréttar, félagaréttar og samninga- og kröfuréttar.
Ár í atvinnumennsku – 10
Landsleikir – 36
Eftir feril sinn í knattspyrnu hefur Pétur verið virkur í viðskiptalífinu á Íslandi. Pétur er einn af eigendum og stofnendum Kex hostel sem hefur fest sig rækilega í sessi. Þá er hann einn af eigendum Kaffihúss Vesturbæjar sem hefur vakið mikla lukku í Reykjavík. Þá er Pétur eigandi Borgarbrags sem vinnur í því að bæta borgarumhverfi með ráðgjafar- og verkefnastjórnun. Borgarbragur hefur unnið mikið fyrir KSÍ sem vinnur í því að gera nýjan Laugardalsvöll.
Ár í atvinnumennsku – 10
Landsleikir – 24
Hvar man ekki eftir markinu sem Gylfi skoraði gegn Ítalíu árið 2004 þegar áhorfendamet var sett á Laugardalsvelli? Gylfi skoraði í 2-0 sigri á stórveldinu en 20.200 áhorfendur voru á vellinum. Gylfi átti frábæran feril úti og lék meðal annars með Leeds á Englandi en stuðningsmenn félagsins elska Gylfa enn í dag. Hann starfaði áður hjá Cintamani en er nú eigandi í fyrirtæki sem starfar í Tax Free-bransanum og er þar framkvæmdastjóri. Fyrirtækið stofnaði Gylfi á síðasta ári.
Ár í atvinnumennsku – 7
Landsleikir – 17
Framherjinn stóri og stæðilegi átti nokkur góð ár í atvinnumennsku en hann lauk ferli sínum sem leikmaður árið 2010 með Val. Síðan þá hefur Marel getið sér gott orð í fjárfestingum með hlutabréf og fleira því tengdu. Hann bjó í Danmörku og Portúgal í nokkur ár en er nú kominn heim og býr á Álftanesi. Hann tók einmitt við sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Álftanesi í haust.