Góður labbitúr um helgina skilaði tveimur fuglum og það sáust fjórar. Tvær rjúpur var bara fínt, flott veður og ekki snjór að sjá nema í efstu fjöllum. Útiveran var meiriháttar, hoppa yfir læki og koma sér áfram í mosanum, halda áfram.
Veðurfarið er ótrúlega gott þessa dagana, heitt sumstaðar og varla snjó að sjá á stórum hluta landsins. Veðurfarið er greinilega að breytast svo um munar.
Flestir veiddu hóflega um helgina, menn reyna að ná í jólamatinn og það er bara þið besta mál. Hófleg veiði skiptir öllu, rjúpan er í lægð.
Og á leiðinni í gengnum Borgarnes stoppuðum við í stutta stund, myndavélin gripinn og smellt fullt af myndum af rjúpunum þar. Það var ekki hægt að hafa þetta betra, svona átti þetta líka að vera og það var enginn að æsa sig, hvorki veiðimenn né fuglinn.
Það sem skiptir mestu er útiveran og hressandi ganga upp um hóla og hæðir, það er málið. Ísland hefur uppá svo margt að bjóða.
Mynd. Þessi rjúpa hafði komið sér fyrir niður við Borgarnes og hafi það gott ásamt fleirum flugum þar. Mynd María Gunnarsdóttir.