,,Við ætlum að fara síðustu dagana ef veður leyfir. Veðurspáin er vægast sagt mjög skrautleg. Ekkert víst að maður náði að skjóta í jólamatinn þetta árið. Það eru aðeins komnar þrjár rjúpur núna,“ sagði veiðimaður sem ætlaði að reyna að fara til fjalla fyrir vestan núna undir lokin. En aðeins eru eftir fjórir dagar á rjúpnaveiðitímann þetta árið, frá föstudegi til mánudags.
,,Það hefur oft gengið betur,“ sagði annar sem var aðeins búinn að fá eina.
,,En það er eins gott að ana ekki úti í veðurbullið,“ sagði hann og bætti við. ,,Þá verður þá borðað bara eitthvað en rjúpu á aðfangadag ef þetta næst ekki.“
Erfitt er að henda reiður á hvað hefur náðst mikið af rjúpu núna. Það er alla vegana miklu minna en í fyrra. Í spjalli á milli veiðimanna á samfélagsmiðlum kemur fram að menn eru að fá þetta eina til tvær rjúpur eftir daginn. Miðað við aðstæður og eftir langan labbitúr telst það bara ágætt Veiðimenn með hunda eru að fá aðeins meira en alls ekki mikið.
Mynd. María Gunnarsdóttir með tvær rjúpur fyrstu helgina sem skjóta mátti þetta árið. Mynd GB