fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

Fullkomin bók um veiði 

Gunnar Bender
Þriðjudaginn 27. október 2020 09:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Héðinn er landsþekktur leiðsögumaður veiðimanna og ekki síður þekktur sem höfundur Haugsins, hinnar gjöfulu veiðiflugu. Og nú má segja að hann sé að verða þekktur sem höfundur bóka um laxveiði.

Í fyrra kom bókin Af flugum, löxum og mönnum frá honum, sem gerði það mjög gott í jólabókaflóðinu. Nú berast þær fréttir að hann sé kominn með nýja bók. Þetta er eins og metsöluhöfundarnir, það er ein bók á ári frá kallinum. Nýja bókin heitir Sá stóri, sá missti og sá landaði og þegar hún er skoðuð er ljóst að hér er á ferðinni engu síðri bók en hann gerði í fyrra.

Sigurður fer yfir veiðitækni, sérstaklega skoðar hann hegðun stórlaxins, lífið við bakkann og svo er að sjálfsögðu einkar glæsilegur flugukafli í bókinni. Auk þess eru stórskemmtilegar veiðisögur um alla bók. Það verður að segjast eins og er að hér er á ferðinni algerlega frábær bók frá Sigga og full ástæða til að óska honum til hamingju með bókina.

Sól Hilmarsdóttir (dóttir Hilmars Hanssonar stórveiðimanns) skreytir svo bókina með einkar fallegum teikningum. Þessi bók fær fullt hús, fimm stjörnur, fyrir að vera akkúrat það sem laxveiðifólk vill sjá í veiðibókum! Bókin er í prentun og kemur í verslanir í nóvember.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Strokufanginn Gabríel kallar eftir meiri sanngirni fangavarða – „Ég er að reyna að komast út í lífið“

Strokufanginn Gabríel kallar eftir meiri sanngirni fangavarða – „Ég er að reyna að komast út í lífið“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Kærasta stjörnunnar hvetur aðrar konur til að taka skrefið: Sést reglulega berbrjósta – ,,Þurfum ekki að skammast okkar“

Kærasta stjörnunnar hvetur aðrar konur til að taka skrefið: Sést reglulega berbrjósta – ,,Þurfum ekki að skammast okkar“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Besta deild kvenna: Blikar á toppinn eftir nauman sigur

Besta deild kvenna: Blikar á toppinn eftir nauman sigur
Fókus
Fyrir 20 klukkutímum

Sorglega ástæðan fyrir því að þessar myndir af stjörnunni eru að vekja athygli

Sorglega ástæðan fyrir því að þessar myndir af stjörnunni eru að vekja athygli
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Rússar setja upp verk Hildar og Philip án leyfis – „Notkun tónlistar og nafns míns án leyfis er þjófnaður“

Rússar setja upp verk Hildar og Philip án leyfis – „Notkun tónlistar og nafns míns án leyfis er þjófnaður“